Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.

Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
Átaka­tímar í Ölfusi Miklir átaka­tímar eru nú í Þor­láks­höfn í Ölfusi vegna deilna um fram­kvæmdir við möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg sem stærsta land­eld­is­fyr­ir­tækið í sveit­ar­fé­lag­inu, First Water, telur spilla fyrir starf­semi sinni. Út frá umræðu um málið virð­ist Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri vera fylgj­andi verk­smiðj­unni. Mynd: Samsett / Heimildin

For­svars­menn sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss komu á fund Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar, for­stjóra land­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins First Water, eftir að hann sendi sveit­ar­fé­lag­inu gagn­rýnið bréf um fyr­ir­hug­aða möl­un­ar­verk­smiðju Heidel­berg og lýstu yfir mik­illi óánægju sinni með skrif hans. 

First Water hefur síð­ast­liðin ár unnið að upp­bygg­ingu á land­eld­is­stöð í Ölfusi þar sem rækt­aður verður eld­is­lax. Fram­kvæmdin kostar um 115 millj­arða króna og er stærsta fjár­fest­ing einka­að­ila í sveit­ar­fé­lag­inu í sög­unni og stærsta einka­fram­kvæmd sem ráð­ist hefur verið í hér á landi. 

Bréfið sem breytti stöð­unniBréfið sem Eggert Þór Krist­ó­fers­son, fram­kvæmda­stjóri First Water, skrif­aði breytti stöð­unni í mál­inu og varð til þess að íbúa­kosn­ingu um verk­smiðju Heidel­berg var frestað.

Land­eld­is­fyr­ir­tækið er ekki hrifið af verk­smiðj­unni sem Heidel­berg vill reisa í tún­fæt­inum á Þor­láks­höfn og lýsti Eggert Þór þeirri skoðun í bréf­inu. „Þar sem við erum að byggja upp hágæða mat­væla­fram­leiðslu á Laxa­braut þá …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Allir sem lesa greinargerð Skipulagsstofnunar ,,Mölunarverksmiðja við Þorlákshöfn-Álit um umhverfismat framkvæmdar ", sjá að Skipulagsstofnun fer yfir athugasemdirnar, ber þær undir HeidelbergCement, sem gerir lítið úr alvarleika athugasemdanna og það lætur Skipulagsstofnun nægja og gefur samþykki sitt fyrir að Ölfus klári skipulagsvinnu við verkefnið til að HeidelbergCement geti klárað undirbúninginn og hafið starfsemi. Þetta eru óvönduð vinnubrögð hjá Skipulagsstofnun og nauðsynlegt að óháðir aðilar meti umsagnir upp á nýtt og túlki þær ekki bara HeidelbergCemnet í hag.
    3
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Veit ekki afhverju heimildin skrumskælir athugasemdina svona en hér er hlekkurinn þar sem hægt er að kynna sér allt ferlið
    https://www.skipulag.is/umhverfismat-framkvaemda/gagnagrunnur-umhverfismats/alit-skipulagsstofnunar-111/nr/1282#amum
    -2
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Allir sem lesa greinagerð Skipulagsstofnunar vegna skýrzlu HeidelbergCement um ,,Mölunarverksmiðja við Þorlákshöfn
    Álit um umhverfismat framkvæmdar ", sjá að Skipulagsstofnun fer yfir athugasemdirnar, ber þær undir HeidelbergCement, sem gerir lítið úr alvarleika athugasemdanna og það lætur Skipulagsstofnun nægja og gefur samþykki sitt fyrir að Ölfus klári skipulagsvinnu við verkefnið til að HeidelbergCement geti klárað undirbúninginn og hafið starfsemi. Þetta eru óvönduð vinnubrögð hjá Skipulagsstofnun og nauðsynlegt að óháðir aðilar meti gögn sem gagnrýndu skýrzluna.

    https://www.skipulag.is/media/attachments/Umhverfismat/2259/%C3%81lit%20um%20m%C3%B6lunarverksmi%C3%B0ju%20%C3%9Eorl%C3%A1ksh%C3%B6fn.pdf
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár