Umhverfismat Sundabrautar hafið – Framkvæmdir hefjist 2026

Hún hefur verið á teikni­borð­inu í hálfa öld og nú, reyndar í annað sinn, er mat á umhverf­is­á­hrifum Sunda­brautar milli Sæbrautar og Kjal­ar­ness hafið. Brýr, göng, mis­læg gatna­mót, laxa­ganga, útsýni og gamlir, gaslos­andi sorp­haugar eru meðal þess sem skoða á ofan í kjöl­inn.

Umhverfismat Sundabrautar hafið – Framkvæmdir hefjist 2026
Fram­kvæmda­svæðið Fram­kvæmda­svæðið sem Sunda­braut myndi fara um er allt í eigu Reykja­vík­ur­borgar. Sunda­braut myndi liggja frá Sæbraut og upp á Kjal­ar­nes. Mynd: Vegagerðin

Segja má að hug­myndin að Sunda­braut hafi fyrst verið sett fram árið 1975 og núna, tæp­lega hálfri öld síðar, hefur rykið verið dustað ræki­lega af áformum sem hafa í alla þessa ára­tugi oft­sinnis komið til umræðu. Ef áætl­anir ganga eftir munu fram­kvæmdir við þessa marg­um­töl­uðu braut, sem yrði ein stærsta fram­kvæmd Íslands­sög­unnar, hefj­ast þegar árið 2026 og vera lokið fimm árum síðar, árið 2031. Þá gæti fólk og far­ar­tæki farið að streyma yfir (eða undir) sundin blá, ýmist í stokkum, mögu­lega göngum eða á brúm og þá um eða yfir eyjar, voga og firði. Og í þess­ari atrennu að Sunda­braut er stefnt að því að byggja hana í einum áfanga.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í mats­á­ætlun Sunda­brautar frá Sæbraut upp á Kjal­ar­nes sem Vega­gerðin í sam­vinnu við Reykja­vík­ur­borg hefur lagt fram til kynn­ingar hjá Skipu­lags­stofnun. Mats­á­ætlun er upp­hafs­skref umhverf­is­mats fram­kvæmda sem stofn­anir, almenn­ingur og aðrir hags­muna­að­ilar geta tekið þátt í með athuga­semdum og umsögnum.

Brú eða göng?Tillögur að legu Sunda­brúar ann­ars vegar og Sunda­ganga hins vegar.

Til­gangur fram­kvæmd­anna er rak­inn ítar­lega í mats­á­ætl­un­inni og m.a. sagður sá að bæta sam­göngur fyrir alla ferða­máta á norð­ur­hluta höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, auka skil­virkni umferðar á svæð­inu, dreif­ing umferðar á fleiri leiðir og fjölgun flótta­leiða út úr borg­inni. Í umhverf­is­mats­ferl­inu á að meta áhrif á lofts­lag, haf­strauma, nátt­úru­minjar og vernd­ar­svæði, dýra­líf og á ásýnd og lands­lag, svo dæmi séu tekin.

Kolefn­is­spor Sunda­brautar hefur þegar verið reiknað, segir í mats­á­ætl­un­inni, en verður ekki útgefið fyrr en á síð­ari stigum ferl­is­ins.

Smá sagnfræði

Árið 1975 var Kletts­vík­ur­brú svokölluð sett fram í til­lögu að aðal­skipu­lagi Reykja­víkur. Sú til­laga átti eftir að taka tölu­verðum breyt­ingum og hin svo­nefnda Sunda­braut var ekki sett á aðal­skipu­lag fyrr en 1981. Áratug síðar var hún tekin í tölu þjóð­vega og hófst und­ir­bún­ingur hennar fyrir alvöru árið 1995.

Árið 2004 féll úrskurður Skipu­lags­stofn­unar um umhverf­is­mats­skýrslu fyrsta áfanga braut­ar­innar og féllst stofn­unin á alla kosti sem lagðir voru fram. Hins vegar voru þá komnar fram athuga­semdir við að jarð­göng hefðu ekki verið tekin til mats. Vinna við slíkt mat hófst en skýrsla þar um var aldrei lögð fram til Skipu­lags­stofn­unar og ekki heldur umhverf­is­mats­skýrsla 2. áfanga fram­kvæmd­ar­innar. Vegna ástands í efna­hags­málum eftir hrun og óein­ingar um leið­ar­val sem þá var orðin aug­ljós lá frek­ari vinna við Sunda­braut niðri um nokk­urt skeið.

Þráð­ur­inn var tek­inn upp að nýju árið 2018 með vinnu starfs­hóps á vegum sam­göngu­ráð­herra og Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hópurinn skil­aði skýrslu sinni árið 2021 þar sem lega Sunda­brautar var rýnd og þeir tveir val­kostir við þverun Klepps­víkur sem taldir eru koma til greina teknir til umfjöll­unar; ann­ars vegar Sundabrú, sem myndi tengj­ast Sæbraut til móts við Holtaveg, og hins vegar Sunda­göng. Jafn­framt var það nið­ur­staða hóps­ins að Sundabrú væri um 14 millj­örðum króna ódýr­ari kostur en Sunda­göng. Göng hefðu hins vegar minni sjón­ræn áhrif og brú­ar­fram­kvæmdir aukin áhrif á hafn­ar­starf­semi á fram­kvæmda­tíma.

Göng eða brú um Kleppsvík?

Nú er vinna við frum­drög Sunda­brautar hafin að nýju sem og und­ir­bún­ingur fram­kvæmda, sem meðal ann­ars felst í umhverf­is­mati. Í skýrslu um mats­á­ætlun, sem nú liggur frammi til kynn­ingar, eru settir fram tveir val­kostir fyrir þverun Klepps­víkur: Sunda­göng (jarð­göng undir höfn­ina og Klepps­vík) og Sundabrú (yfir höfn­ina og Klepps­vík). Þá eru settir fram þrír val­kostir fyrir legu í Gufunesi og tveir fyrir legu brúar um Kolla­fjörð.

Leiðin langaSunda­braut myndi liggja frá Sæbraut til Kjal­ar­ness.

 Ólíkt því sem áður var er nú fyr­ir­hugað að Sunda­braut verði fram­kvæmd í einum áfanga í stað tveggja en við mat á umhverf­is­á­hrifum verður svæð­inu skipt í fjóra hluta:

• Hluti I: Sæbraut – Gufunes.

• Hluti II: Gufunes – Geld­inga­nes.

• Hluti III: Geld­inga­nes – Álfsnes.

• Hluti IV: Álfsnes – Kjal­ar­nes.

Ef Sundabrú yrði fyrir val­inu myndi hún liggja frá gatna­mótum Sæbrautar og Holta­vegar og fara á sam­felldri brú yfir hafn­ar­svæðið og Klepps­vík og lenda á fyll­ingu út af Gufu­nes­höfða. Sunda­göng myndu hins vegar tengj­ast við Sæbraut á tveimur stöðum; til vest­urs vestan við Dalbraut og hins vegar til suð­urs milli Holta­vegar og Klepps­mýr­ar­vegar.

Þrír val­kostir koma til greina fyrir legu Sunda­brautar í Gufunesi en þaðan færi hún svo austan við nýju byggð­ina í Gufunesi og að Eiðsvík. Gert er ráð fyrir að Geld­inga­nesið verði þverað í beinni línu við aust­ur­hluta ness­ins.

 

Frá Geld­inga­nesi lægi Sunda­braut að mestu á fyll­ingum yfir Leiruvog, en gert er ráð fyrir tveimur um 80 metra löngum brúm í vog­inum. Leiru­vogur er grunnur og þar eru stór leiru­svæði, fjöl­breyttur strand­gróður og mikið fugla­líf. Í vog­inn renna Leir­vogsá, Kalda­kvísl, Varmá og Úlfarsá. Meta á mögu­legar breyt­ingar á seltu og straumum í Leiru­vogi með til­komu fram­kvæmd­anna, og hugs­an­leg áhrif þess á líf­ríki. Auk þess verður metið hvort rask á fram­kvæmda­tíma geti haft áhrif á sjó­göngu­fiska.

Frá Leiru­vogi færi brautin yfir Gunnunes og þaðan áfram yfir Álfsnes.

Tveir val­kostir eru til skoð­unar fyrir þverun Kolla­fjarðar. Á svo­kall­aðri innri leið myndi Sunda­braut þvera Kolla­fjörð vestan Helgu­skers og tengj­ast Vest­ur­lands­vegi vestan Leið­hamra. Ytri leiðin myndi þvera fjörð­inn um 200 metrum utar.

Innan áhrifa­svæðis fyr­ir­hug­aðrar Sunda­brautar eru svæði sem njóta verndar. Má þar nefna Gufu­nes­höfða, vest­ur­horn Laug­ar­ness og eyjar á Kolla­firði. Þá myndi brautin liggja í nálægð við önnur frið­lýst svæði s.s. Blika­staða­kró og Elliða­vog. Á svæð­inu er einnig að finna forn­minjar og eru margar þeirra frið­lýstar m.a. á Gufunesi, Geld­inga­nesi og Álfsnesi.

Í umhverf­is­mats­skýrslu verða áhrif fram­kvæmd­ar­innar á ásýnd og lands­lag einnig metin. Vinna á lík­an­myndir af Sunda­braut til að bera saman sjón­ræn áhrif mis­mun­andi val­kosta. Leitast verður við, segir í mats­á­ætl­un­inni, að sýna ein­kenn­andi útsýni frá fjöl­förnum stöðum, íbúa­byggð og stöðum sem þykja mik­il­vægir með til­liti til úti­vistar og útsýnis.

Á samgönguáætlun

Sunda­braut er innan sam­þykktrar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um sam­göngu­á­ætlun til árs­ins 2034. Í til­lög­unni er ekki gerð grein fyrir kostn­aði fram­kvæmd­ar­innar heldur er bent á að unnið sé að því að fjár­magna Sunda­braut í sam­starfi við einka­að­ila.

Almenn­ingur og aðrir hags­muna­að­ilar sem og stofn­anir hafa nú um fjórar vikur til að skila athuga­semdum við mats­á­ætl­un­ina til Skipu­lags­stofn­unar.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Það er líka svolítið skrýtið að aldrei skuli vera skoðað að taka Sundabrautina í land á Geirsnefinu; fara utan í Gufuneshöfðanum, þvera Grafarvog utarlega og tengja umferðina inn í slaufurnar við Elliðaárnar. Alltsvo hugsa þetta sem framhald af Reykjanesbrautinni og sleppa þessari rándýru þverun Elliðavogs.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Við þetta má bæta að við fyrstu hugmyndirnar um þessa Sundabraut var fullyrt að ekki síðar en um 2006 myndi þessi leið verða ekin. Nú hefur ekki verið lagður svo mikið sem einn metri af henni.
    Í millitíðinni var lagt ofurkapp á að breikka og tvöfalda Vesturlandsveginn. Það þótti hagkvæmara en hefur valdið því að Mosfellsbærinn er nánast skipt niður í tvo helminga fyrir vikið. Þetta var einnig afardýr framkvæmd sem enn hefur verið að föndra við.
    Nú má reikna með töluverðri andstöðu um Sundabrautina m.a. þeirra sem njóta sjávarútsýnis í Staðarhverfi og vestast í Mosfellsbæ. Einnig þarf að huga vel að lífríki Leirvogs sem er mjög viðkvæmt þar sem fuglalíf er mikið og þar halda selir við. Hvaða áhrif hefur þessi framkvæmd á fiska en þarna eiga bæði laxar og kolar leið um?
    Vonandi verður ekkert fúsk við undirbúning og framkvæmd þessa viðamikla verkefnis og ekki endurtekin mistök eins og gerð voru í Kolgrafarfirði á norðanverðu Snæfellsnesi hérna um árið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár