Á dögunum komst Hannes Hólmsteinn Gissurarson í mikið uppnám þegar hann taldi barnungar stúlkur ætla að stela af sér ferðatösku í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, svo mikið uppnám að hann öskraði á börnin, segja sumir, ég var ekki á staðnum, því miður, en þó tel ég mig hafa heyrt þetta sama kvöld talsverð læti og þau voru ekki í veðrinu, það var klárlega öskur, kannski alla leiðina frá Keflavík, kannski ekki, en skyldi engan undra hafi Hannes öskrað því þetta er engin smá taska, þessi sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur dregið á eftir sér í svo mörg ár, sú taska hefur farið víða, hún hefur verið lánuð í margar ferðir, reynst betri en enginn, borið alla yfirvigt, léttilega, hlæjandi, taska svo stútfull af minningum og hugmyndum og tengslum, ég hef öruggar heimildir fyrir því að þetta tiltekna kvöld hafi í henni verið snyrtilega samanbrotin skyrta og tvö bindi, þarna var líka frelsi, sú tegund frelsis sem vegur ekkert og er þannig mjög hentug í ferðalög á milli landa og hugmynda og vina- og viðskiptasambanda, það er jafnvel hægt að byggja heilan feril á frelsi sem vegur ekkert, og þarna voru auðvitað sokkar og inniskór en einnig Kristján Loftsson sem einu sinni vann Frelsisverðlaun Heimdallar rétt eins og Hannes sjálfur og þau voru þarna líka: Frelsisverðlaun Heimdallar, og líka nokkrar bækur, til dæmis Handbók um hundrað kærleiksríkar leiðir til að drepa hvali en einnig skýrsla Hannesar um hrunið og neðarlega í töskunni, á öruggum stað, voru milljónirnar tíu sem fjármálaráðuneyti Bjarna Ben greiddi Hannesi fyrir að skrifa skýrsluna og mjög neðarlega í töskunni, bara alveg neðst, voru skítugar nærbuxur – en þannig er það með öll ferðalög, sama hvað það er mikið gaman, við komum heim með skítugar nærbuxur og sum okkar, reyndar langflest okkar, förum í gegnum það ferðalag sem líf í íslensku samfélagi er með þessar skítugu nærbuxur í farangrinum alla daga, nærbuxurnar af frekum karli sem þekkir ekkert frelsi annað en það að öskra á lítil börn og ég held að ég fari ekki með rangt mál þegar ég segi að það eilífa öskur sé hinn eiginlegi þjóðsöngur okkar Íslendinga.
Dagur Hjartarson
Þjóðsöngur Íslendinga
Eilífa öskur „freka karlsins“ er að mati Dags Hjartarsonar hinn eiginlegi þjóðsöngur Íslendinga.
Mest lesið

1
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
Aðalheiður S. Gunnarsdóttir er eina konan með yfir milljarð í árstekjur á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Fjórar af tíu tekjuhæstu konum landsins tengjast útgerðum.

2
Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
Margir þeirra efstu á Hátekjulista Heimildarinnar í ár seldu fyrirtæki sem þeir höfðu byggt upp í áratugi og fengu einskiptis hagnað. Kerfið gerir hins vegar auðugustu Íslendingum auðvelt að halda arði og hagnaði af eignasölu inni í félögum sínum án þess að greiða af þeim skatt. Ríkið borgaði útsvar þeirra á listanum sem eingöngu voru með fjármagnstekjur.

3
Sigfús kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Fasteignasalinn Sigfús Aðalsteinsson, sem vakti athygli með útifundum gegn hælisleitendum, krefst þess að úrskurðarnefnd kosningamála ógildi þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag.

4
Samlíking við þýska kyndingu vekur furðu já-sinna
Formaður Sjálfstæðisflokksins útskýrði ólíka hagsmuni Íslendinga og ESB með dæmi um þýska kyndingu. Samlíkingin hefur vakið nokkra furðu já-sinna.

5
Norskur samningamaður segir SFS fara með rangt mál
Þaulreyndur samningamaður frá Noregi gagnrýnir málflutning SFS harðlega þegar kemur að varanlegum undanþágum í sjávarútvegi. Þó að Norðmenn hafi hafnað aðild að ESB hafi Noregur náð slíkum samningum á sínum tíma. Slíkt hið sama eigi við Finnland og Svíþjóð.

6
Ferðaþjónusta skilar sér í hátekjum á Suðurlandi
Baðlón, leiðsögufyrirtæki og íslenskur útivistarfatnaður skila íbúum á Suðurlandi hátekjum í ár. Fjórir af tíu efstu Sunnlendingunum tengjast ferðaþjónustu.
Mest lesið í vikunni

1
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
„Þú ert allt sem skiptir mig máli,“ sagði aðstoðarkona Bandaríkjaforseta við hann. „Þegiðu,“ sagði Trump við fréttakonu sem spurði út í málið.

2
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
Aðalheiður S. Gunnarsdóttir er eina konan með yfir milljarð í árstekjur á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Fjórar af tíu tekjuhæstu konum landsins tengjast útgerðum.

3
Ökuþórinn sem varð skattakóngur
Daníel Sigurðsson hefur unnið sleitulaust að því að byggja upp kranafyrirtækið sitt ásamt því að keppa í rallíi. Með sölu á fyrirtæki sínu varð hann skattakóngur Íslands fyrir árið 2025.

4
„Ósönn frétt“ á forsíðu Morgunblaðsins, segja prófessorar sem vitnað var til
Lagaprófessorar sem Morgunblaðið vitnar í um Evrópusambandið senda frá sér yfirlýsingu eftir að blaðið birti ósanna staðhæfingu um álitsgerð þeirra varðandi ESB.

5
Skipstjóri á Vesturlandi í milljarðaklúbbnum
Eymar Einarsson skipstjóri á Akranesi er skattakóngur Vesturlands og einn þeirra tólf einstaklinga sem komust í milljarðaklúbbinn á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Þá eru þrjú prósent Snæfellinga hátekjufólk.

6
Indriði Þorláksson
Forseti, dómari og ICESAVE
Eftir að full endurgreiðsla vegna Icesave lá fyrir, sömdu íslensk stjórnvöld við Breta og Hollendinga um að greiða þeim 20 milljarða íslenskra króna til viðbótar við greiðslur þrotabúsins.
Mest lesið í mánuðinum

1
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
„Þú ert allt sem skiptir mig máli,“ sagði aðstoðarkona Bandaríkjaforseta við hann. „Þegiðu,“ sagði Trump við fréttakonu sem spurði út í málið.

2
Fékk 63 milljónir í þóknun vegna sjóðsins
Spakur Invest, sjóður Helgu Viðarsdóttur skilaði 242 milljóna króna hagnaði í fyrra. Seðlabankinn og forsætisráðuneytið skoðuðu mögulega hagsmunaárekstra þar sem unnusti Helgu er Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

3
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
Aðalheiður S. Gunnarsdóttir er eina konan með yfir milljarð í árstekjur á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Fjórar af tíu tekjuhæstu konum landsins tengjast útgerðum.

4
Ökuþórinn sem varð skattakóngur
Daníel Sigurðsson hefur unnið sleitulaust að því að byggja upp kranafyrirtækið sitt ásamt því að keppa í rallíi. Með sölu á fyrirtæki sínu varð hann skattakóngur Íslands fyrir árið 2025.

5
Birgir Örn Steinarsson
Veröldin hrundi og það var það besta sem hefur komið fyrir
Andleg vakning fæðist yfirleitt í andlegum sársauka. Hann neyðir mann til þess að færa athyglina frá miðju sjálfsins.

6
Hvað gerðist raunverulega í Ceuta?
Sex staðreyndir um atburðina í spænska yfirráðasvæðinu Ceuta, þar sem um allt að 60 þúsund flóttamenn flykktu sér að landamærunum á meðan marokkóskir landamæraverðir fylgdust með.
































Athugasemdir (2)