Milljón fyrir aðgerð sem ætti að kosta mest um 30 þúsund

Þrátt fyrir að hafa fengið sam­þykki frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands um greiðslu­þátt­töku þurfa konur sem und­ir­gang­ast brjóstaminnkun gjarnan að greiða í kringum eina milljón króna úr eigin vasa. Ein þeirra hefur gert hlé á lyfja­með­ferð til þess að kom­ast í aðgerð­ina sem hún hélt að hún þyrfti ekki að borga fyrir. En nú er fram­haldið í lausu lofti og hún veit ekki hvenær hún getur tekið lyfin sín næst.

Milljón fyrir aðgerð sem ætti að kosta mest um 30 þúsund
Peningar Læknar sem und­ir­ritað hafa samn­ing við SÍ sjá sér ekki fært að fram­kvæma brjóstaminnkun vegna lágrar greiðslu frá SÍ. Því leita konur til lækna sem ekki eru á samn­ingi og greiða um milljón fyrir aðgerð­ina. Mynd: Unsplash: Philippe Spitalier

Anna og Guðrún voru enn börn, rétt níu ára gamlar, þegar framan á þeim fóru að vaxa brjóst. Þau stækk­uðu eftir því sem þær elt­ust og þegar þær voru komnar á full­orð­ins­ald­ur­inn voru þau farin að valda þeim lík­am­legum kvölum, hafa áhrif á svefn­gæði þeirra og dag­legt líf. Í dag þurfa þær að leita í sjúkra­þjálfun viku­lega vegna þeirra bak­verkja sem þyngd brjóst­anna hefur valdið þeim.

Þær voru búnar að hugsa í áraraðir um að fara í brjóstaminnkun þegar þær loks­ins pönt­uðu sér tíma hjá lýta­læknum á þessu ári.

Konurnar heita ekki Anna og Guðrún en kjósa að koma ekki fram undir sínum eigin nöfnum þar sem þær ótt­ast að það gæti haft áhrif á lækn­is­með­ferð þeirra. Því verða þessi tvö algeng­ustu eig­innöfn íslenskra kvenna notuð fyrir þær.

Brjóstaminnkun kostar um eina milljón króna á einka­stofu. Hún er einnig fram­kvæmd á Land­spít­ala en þar er biðlist­inn langur …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár