Tilboð Leós til Tómasar: „Ég er líka eiginlega bara sorgmæddur“

Bæj­ar­full­trú­arnir sem störf­uðu með Tómasi Ellert Tómassyni í meiri­hlut­anum í Árborg segj­ast hafa orðið misundr­andi þegar þeir sáu fréttir af til­boð­inu sem hann fékk. Enginn þeirra fékk við­líka til­boð, frá Leó Árnasyni fjár­festi eða öðrum.

Tilboð Leós til Tómasar: „Ég er líka eiginlega bara sorgmæddur“
Undrun og sorg Bæj­ar­full­trú­arnir sem voru í meiri­hlut­anum með Tómasi Ellert Tómassyni í Árborg 2018 til 2022 eru misundr­andi á til­boð­inu sem hann greindi frá að hann hefði fengið fyrir helgi. Einn, Sigurjón Vídalín Guð­munds­son úr Sam­fylk­ing­unni, seg­ist vera sorg­mæddur yfir mál­inu. Frá vinstri úr efri röð Arna Ír Gunn­ars­dóttir, Eggert Valur Guð­munds­son og Tómas Ellert. Neðri röð frá vinsti Sigurjón Vídalín Guð­munds­son og Helgi Sigurður Har­alds­son.

„Meinarðu hvort þetta hafi komið mér á óvart? Ég veit ekki hvað ég að segja en jú: Þetta kom mér á óvart,“ segir Eggert Valur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Árborg, aðspurður um hvað honum fannst þegar hann sá fréttir af til­boð­inu sem Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Árborg, seg­ist hafa fengið frá fjár­fest­inum Leó Árnasyni árið 2020. Heim­ildin greindi frá mál­inu fyrir helgi. 

Tómas sagði frá því að hann hefði fengið til­boð frá Leó þegar hann var bæj­ar­full­trúi í meiri­hlut­anum á Selfossi árið 2020. Tilboðið gekk út á það, sagði Tómas, að hann og flokkur hans, Mið­flokk­ur­inn, áttu að fá fjár­hags­lega aðstoð í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2022 gegn því að hann stuðl­aði að því að sveit­ar­fé­lagið Árborg félli frá kaupum á húsi Lands­bank­ans á Selfossi. Enginn af hinum bæj­ar­full­trú­unum í Árborg, sem voru í meiri­hlut­anum með Tómasi, sögð­ust í grein­inni hafa fengið sam­bæri­leg til­boð og Tómas vegna söl­unnar á Lands­banka­hús­inu. 

Leó neitar að hafa gert Tómasi skil­yrt til­boð um fjár­hags­að­stoð gegn því að fá póli­tíska fyr­ir­greiðslu frá honum. 

„Það eru stórir pen­ingar í húfi, hvort sem það eru lóðir eða aðrar eignir.“

Eggert Valur, sem í dag er sveita­stjórn­ar­maður í Rangár­þingi ytra á Suð­ur­landi, seg­ist aldrei hafa séð eða heyrt af slíku til­boði áður. „Ég er odd­viti Rangár­þings ytra og er búinn að vera í sveita­stjórn­ar­málum meira eða minna frá árinu 1998 og þetta er alveg unique fyrir mér. Ég held að það eigi nú við um fleiri í kringum mig sem hafa unnið í þessum geira.“

Heim­ildin greindi frá því fyrr í dag að Tómas hefði verið boð­aður í skýrslu­töku hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna máls­ins. 

Sigurjón upplifir sorg

Sigurjón Vídalín Guð­munds­son, sem var bæj­ar­full­trúi Á-list­ans en er í dag bæj­ar­full­trúi fyrir Sam­fylk­ing­una, seg­ist hafa orðið mjög undr­andi. „Þetta kom mér veru­lega á óvart; ég átti ekki von á þessu.“

Hann segir við Heim­ild­ina að hann hafi upp­lifi sorg út af mál­inu. „Ég hef alveg upp­lifað það að svona stórir aðilar hafa reynt að þrýsta á mann til að láta mál ganga hratt fyrir sig. Þá gildir að standa í lapp­irnar. Ég var alltaf mjög skýr á því að ekk­ert yrði þvingað í gegnum mig. Ég var nú bæði bara mjög hugsi og ég er líka eig­in­lega bara sorg­mæddur ef þetta er eins og þetta lítur út fyrir að vera. Ef þetta orðið þannig að stórir aðilar séu farnir að bera fé á kjörna full­trúa til að reyna að fá sitt í gegn.“

Helgi ekki alveg eins undrandi 

Helgi Sigurður Har­alds­son úr Fram­sókn­ar­flokknum var ekki alveg eins undr­andi og Eggert Valur og Sigurjón. „Ég eig­in­lega veit það ekki. Já, að hluta til. Kannski með þetta til­tekna dæmi en það kemur ekk­ert á óvart að eitt­hvað svona hafi verið í gangi ein­hvers staðar. Mér kemur ekk­ert á óvart að það sé verið í svona fyr­ir­greiðslu til að reyna að hafa áhrif á kjörna full­trúa. Heim­ur­inn er lít­ill. Svo er spurn­ing hvort farið sé alla leið eða þetta bara reynt. Það eru stórir pen­ingar í húfi, hvort sem það eru lóðir eða aðrar eignir.“

Helgi Sigurður seg­ist furða sig á því að ein­hverjum detti í hug að gera slíkt til­boð og halda að það komi ekki upp á yfir­borðið. 

Ekki náð­ist í Örnu Ír Gunn­ars­dóttur úr Sam­fylk­ing­unni til að fá við­brögð hennar við umfjöll­un­inni. 

Hinir fengu engin tilboð 

Heim­ildin spurði hina bæj­ar­full­trú­ana í þáver­andi meiri­hluta að því í síð­ustu viku, áður en umfjöll­unin um til­boð Leós var birt, hvort þeir hefðu ein­hvern tím­ann fengið sam­bæri­leg til­boð og Tómas  lýsir á sínum ferli í stjórn­málum. Spurning Heim­ild­ar­innar til bæj­ar­full­trú­anna var almenn og var þeim ekki sagt frá máli Tómasar þegar spurn­ingin var borin upp við þá.   

Bæj­ar­full­trú­arnir fjórir sögðu allir nei við þess­ari spurn­ingu. „Ég segi bara nei við spurn­ing­unni hvað mig snertir,“ sagði Eggert Valur  úr Sam­fylk­ing­unni.

Sam­flokks­kona hans, Arna Ír Gunn­ars­dóttir, sagði að slíkt til­boð hafi aldrei verið lagt fyrir hana. „Mig rekur ekki minni til þess og held að ég geti sagt bara nei. Kannski er það út af því að ég er kona og þeir, karl­arnir, hringja minna í konur. Mögulega hefur þetta líka eitt­hvað með það að gera hvaða strauma maður sendir frá sér.“

Sigurjón Vídalín, sagð­ist aldrei hafa fengið boð frá neinum sem snýst um óeðli­lega fyr­ir­greiðslu. 

Helgi Sigurður úr Framsókn tók í sama streng. „Ég hef aldrei upp­lifað slíkt.“ 

Miðað við þetta var Tómas eini bæj­ar­full­trú­inn sem fékk til­boð frá Leó og Sigtúni. Ástæðan fyrir þessu kann meðal ann­ars að liggja í per­sónu­legum tengslum þeirra sem ná ára­tugi aftur í tím­ann en þeir eru æsku­fé­lagar frá Selfossi og fyrr­ver­andi sam­starfs­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um innanhússdeilurnar í Sjálfstæðisflokknum í Árborg
SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um inn­an­húss­deil­urnar í Sjálf­stæð­is­flokknum í Árborg

Dramat­ísk atburða­rás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar frá­far­andi bæj­ar­stjóri, Fjóla Krist­ins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæj­ar­stjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deil­urnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tím­ann til próf­kjörs­bar­áttu í flokknum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.
Tómas boðaður í skýrslutöku vegna tilboðs Leós
FréttirSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Tómas boð­aður í skýrslu­töku vegna til­boðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna frétta af til­boði sem hann fékk sem kjör­inn full­trúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjár­festi og for­svars­manni Sigtúns þró­un­ar­fé­lags. Tómas segir að erindi skýrslu­tök­unnar sé að ræða um „mögu­legt mútu­brot“.
Bauð kjörnum fulltrúa fjárhagsaðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum full­trúa fjár­hags­að­stoð í skiptum fyrir póli­tískan stuðn­ing

Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa til­boð árið 2020. Bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveit­ar­fé­lagið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins.
Svona eignast útgerðarmaður bæ
ÚttektSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Svona eign­ast útgerð­ar­maður bæ

Nýr mið­bær hefur risið á Selfossi á síð­ustu árum og stendur til að stækka hann enn frekar. Á bak við fram­kvæmd­irnar eru Leó Árnason athafna­maður og Kristján Vil­helms­son, stofn­andi Samherja. Umsvif þeirra á Selfossi eru mun meiri og snúa meðal ann­ars að áformum um bygg­ingu 650 íbúða í bænum. Bæj­ar­full­trúi minni­hlut­ans, Arna Ír Gunn­ars­dóttir, segir erfitt fyrir sveit­ar­fé­lagið að etja kappi við fjár­sterka aðila og lýð­ræð­is­hall­inn sé mik­ill.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár