Tómas boðaður í skýrslutöku vegna tilboðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­verandi bæjar­fulltrúi í Árborg, hefur verið boðaður í skýrslu­töku hjá embætti héraðs­saksóknara vegna frétta af tilboði sem hann fékk sem kjörinn fulltrúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjárfesti og forsvars­manni Sigtúns þróunar­félags. Tómas segir að erindi skýrslu­tökunnar sé að ræða um „mögulegt mútubrot“.

Boðaður í skýrslutöku
Boðaður í skýrslu­töku Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna fréttar af til­boði sem hann fékk frá fjár­festi á Selfossi. Mynd: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­verandi bæjar­fulltrúi í Árborg, hefur verið boðaður í skýrslu­töku hjá embætti héraðs­saksóknara í Reykjavík í kjölfar umfjöllunar Heimildarinnar um tilboð sem hann fékk frá Leó Árnasyni fjárfesti árið 2020. Þetta segir Tómas Ellert í samtali við Heimildina. „Það var hringt í mig áðan og ég var boðaður í skýrslu­töku. Mér var sagt að þetta væri vegna mögulegs mútubrots,“ segir Tómas.

Tíma­setningin á skýrslu­tökunni liggur ekki fyrir þar sem Tómas er staddur erlendis.

„Mér var sagt að þetta væri vegna mögu­legs mútu­brots“
Tómas Ellert Tómasson,
fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg

Heimildin greindi frá því fyrir helgi að Tómas Ellert hefði fengið tilboð frá Leó Árnasyni þegar hann var bæjar­fulltrúi í meirihlutanum á Selfossi árið 2020. Tilboðið gekk út á það, sagði Tómas, að hann og flokkur hans, Miðflokkurinn, áttu að fá fjárhags­lega aðstoð í …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um innan­húss­deilurnar í Sjálfstæðis­flokknum í Árborg

Dramatísk atburðarás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar fráfar­andi bæjar­stjóri, Fjóla Kristins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæjarstjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deilurnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tímann til prófkjörs­baráttu í flokknum fyrir síðustu sveitar­stjórnar­kosningar.
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum fulltrúa fjárhags­aðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning

Leó Árnason, fjár­festir og forsvars­maður fasteigna­félagsins Sigtúns á Selfossi, gerði bæjar­fulltrúa tilboð árið 2020. Bæjar­fulltrúinn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveitar­félagið hætti við að kaupa hús Lands­bankans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosninga­baráttu Miðflokksins.

12 mín. lestur

ÚttektSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Svona eignast útgerðar­maður bæ

Nýr miðbær hefur risið á Selfossi á síðustu árum og stendur til að stækka hann enn frekar. Á bak við fram­kvæmd­irnar eru Leó Árnason athafna­maður og Kristján Vilhelmsson, stofnandi Samherja. Umsvif þeirra á Selfossi eru mun meiri og snúa meðal annars að áformum um byggingu 650 íbúða í bænum. Bæjar­fulltrúi minni­hlutans, Arna Ír Gunnars­dóttir, segir erfitt fyrir sveitar­félagið að etja kappi við fjár­sterka aðila og lýðræðis­hallinn sé mikill.

17 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár