Svona eignast útgerðarmaður bæ

Nýr mið­bær hefur risið á Selfossi á síð­ustu árum og stendur til að stækka hann enn frekar. Á bak við fram­kvæmd­irnar eru Leó Árnason athafna­maður og Kristján Vil­helms­son, stofn­andi Samherja. Umsvif þeirra á Selfossi eru mun meiri og snúa meðal ann­ars að áformum um bygg­ingu 650 íbúða í bænum. Bæj­ar­full­trúi minni­hlut­ans, Arna Ír Gunn­ars­dóttir, segir erfitt fyrir sveit­ar­fé­lagið að etja kappi við fjár­sterka aðila og lýð­ræð­is­hall­inn sé mik­ill.

Svona eignast útgerðarmaður bæ
Mið­bær­inn og 650 íbúðir Nýi mið­bær­inn á Selfossi mun stækka enn meira í 12 til 13 millj­arða fram­kvæmdum félags Krist­jáns Vil­helms­sonar í Samherja. Auk mið­bæj­ar­ins stefnir fyr­ir­tækið að því að standa að bygg­ingu 650 nýrra íbúða á Selfossi. Mynd: Auðunn Níelsson

Árið 2016 seldi félag í eigu Krist­jáns Vil­helms­sonar, útgerð­ar­manns í Samherja, félags­mið­stöð og aðstöðu fyrir dagdvöl eldri borg­ara til Sveit­ar­fé­lags­ins Árborgar fyrir tæp­lega hálfan millj­arð króna. Sveit­ar­fé­lagið efndi ekki til útboðs um fram­kvæmd­ina, tæp­lega 1.000 fer­metra við­bygg­ingu við íbúðir og félags­að­stöðu aldr­aðra á Aust­ur­vegi á Selfossi. Þegar kaup­samn­ing­ur­inn var gerður árið 2016 var félags­mið­stöðin óbyggð og var tekið fram í samn­ingnum að verk­taka­fyr­ir­tækið Jáverk ætti að byggja hana. Á þessum tíma var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í meiri­hluta í Árborg. 

Þetta fyr­ir­tæki Krist­jáns, og Leó Árna­sonar við­skipta­fé­laga hans, heitir Aust­ur­bær fast­eigna­fé­lag. Þetta sama félag er stærsti hlut­haf­inn í nýja mið­bænum á Selfossi. Auk félags­mið­stöðv­ar­innar byggði Aust­ur­bær 54 íbúðir fyrir eldri borg­ara á nær­liggj­andi lóð og seldi svo á almennum mark­aði. 

Aust­ur­bær hagn­að­ist þannig bæði á því að byggja þjón­ustu­mið­stöð­ina fyrir sveit­ar­fé­lagið sem …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EV
    Emil Vals skrifaði
    Komið til Reykjanesbæjar, þar er gríðarleg vöntun á leiguhúsnæði. :/
    0
  • JV
    Júlía Valsdóttir skrifaði
    Er mjög ánægð með nýja miðbæinn á Selfossi og íbúðir aldraða eru mjög flottar og ég bý á Selfossi og er spennt að sjá meiri uppbyggingu í nýja miðbænum á Selfossi sem er mjög fallegur og er bæjarprýði
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Græðgin ríður ekki við einteyming.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um inn­an­húss­deil­urnar í Sjálf­stæð­is­flokknum í Árborg

Dramat­ísk atburða­rás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar frá­far­andi bæj­ar­stjóri, Fjóla Krist­ins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæj­ar­stjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deil­urnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tím­ann til próf­kjörs­bar­áttu í flokknum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.
FréttirSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Tómas boð­aður í skýrslu­töku vegna til­boðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna frétta af til­boði sem hann fékk sem kjör­inn full­trúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjár­festi og for­svars­manni Sigtúns þró­un­ar­fé­lags. Tómas segir að erindi skýrslu­tök­unnar sé að ræða um „mögu­legt mútu­brot“.
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum full­trúa fjár­hags­að­stoð í skiptum fyrir póli­tískan stuðn­ing

Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa til­boð árið 2020. Bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveit­ar­fé­lagið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins.

Myndband12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár