Á döfinni: Uppistand, mysingur og örverudans

Uppi­stand­ari með lausa auga­steina þvælist um landið, frönsk þjóð­laga­söng­kona á Gauknum, pólskar fjöl­skyldur lenda í drama á danskri eyju, tón­list­ar­menn slá upp tón­leikum í mjólk­ur­porti og svo er dansað innan um efna­hvörf sem hafa verið stækkuð með nýj­ustu tækni svo manns­augað greini þau. Þetta er meðal þess sem er á döf­inni í menn­ing­ar­lífi land­ans síð­ustu tvær vik­urnar í ágúst.

Á döfinni: Uppistand, mysingur og örverudans

Morjane Ténéré

Hvar? Gauk­ur­inn.

Hvenær? 20. ágúst.

Upphæð? Ókeypis.

Morjane Ténéré er söng­kona og laga­höf­undur frá París sem er inn­blásin af þjóð­lagatón­list, blús og tón­list inn­fæddra Amer­ík­ana, sem og hefð­bund­inni norður-afrískri tón­list. Hún leikur með fransk-íslenska tón­list­ar­mann­inum Christian Helga, sem leikur á slag­verk, gítar og flautu, og er tón­listin sögð minna helst á helgisiði, ferða­lög og vígslu, en eft­ir­nafnið Ténéré þýðir „Eyðimörk“ á tamasheq, ber­bírsku máli sem talað er í Malí og Búrkina Fasó.

Sjónskekkja – uppistand

Hvar? Kex Hostel og Aust­firðir.

Hvenær? 24.–27. ágúst kl. 20.

Upphæð? 3.500 kr.

Stefán Ingvar er með lausa auga­steina. Það hefur haft alls konar áhrif á hann; hann getur ekki orðið flug­maður, mátti aldrei æfa fót­bolta eða vera í skát­unum og svo sér hann allt skakkt, eða vit­laust, en það virð­ist ekki hindra hann í að þvæl­ast lands­horn­anna á milli með uppi­stand.

Hann er nýbú­inn að frum­sýna uppi­standið Sjón­skekkja fyrir vestan og eftir stutt stopp í bænum, nánar til­tekið á Kex Hostel fimmtu­dag­inn 24. ágúst, er tíma­bært að túra Aust­firð­ina, nánar til­tekið mætir Stefán í Félags­heim­ilið Mikla­garð á Vopna­firði föstu­dag­inn 25. ágúst, þaðan fer hann á Tehúsið Hostel á Egils­stöðum laug­ar­dag­inn eftir og endar sunnu­dag­inn 27. ágúst á Hafinu á Höfn á Horna­firði.

Stefán Ingvar er með­limur í uppi­stands­hópnum VHS en þetta er önnur einka­sýn­ing hans, en sú fyrsta, Full­komið ójafn­vægi, var sýnd í Tjarn­ar­bíói.

„Þessi sýn­ing er aðeins per­sónu­legri en það sem ég hef gert áður. Und­an­farið ár hefur verið afar við­burða­ríkt og krefj­andi á köflum, sem hefur gefið tæki­færi til sjálfs­skoð­unar. Það er spenn­andi að vera með klukku­tíma sýn­ingu sjálfur. Sumt grín sem ég skrifa getur verið of óað­gengi­legt fyrir korters sett í skemmti­dag­skrá VHS flokks­ins, en virkar vel sem hluti af stærri mynd. Ég myndi segja að það væri myrkur yfir þessu, en meira gaman,“ segir Stefán sem lofar klukku­stund af svart­sýn­asta gríni sem þú heyrir í ár.

Við erum jörðin – við erum vatnið / Dansverk Soft Collective

Hvar? Sjó­minja­safnið

Hvenær? 19. ágúst kl. 14.00.

Upphæð? Ókeypis.

Í verk­inu Við erum jörðin – við erum vatnið eftir Heimi Frey Hlöðvers­son fáum við óvenju­lega inn­sýn í ægi­fögur form nátt­úr­unnar. Ljóðræna sýn á hið agn­arsmáa í hinu risa­stóra, sem tækninýj­ungar veita okkur. Um leið er verkið dreym­inn sjón­rænn leikur við síbreyt­an­leg form sem skap­ast stöðugt í kringum okkur en við komum alla jafna ekki auga á. Okkur er boðið í ferða­lag nán­ast inn í efnin sjálf, sam­ein­ingu og umbreyt­ing­ar­ferli þeirra. 

„Hug­myndin að verk­inu kom þegar ég var að skoða töflu frá Nasa sem sýnir hækkun á hita jarð­ar­innar frá iðn­bylt­ingu til dags­ins í dag. Þar sést að loft­hiti hefur hækkað um 1,1 gráðu frá 1880 og á ógn­væn­legum hraða síð­ast­liðin 40 ár,“ segir Heimir Freyr um verkið. „Þó að breyt­ing á hita­stigi sé að ein­hverju leyti nátt­úru­leg, þá eru eins og við vitum yfir­gnæf­andi sann­anir sem sýna að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af manna­völdum er að mestu leyti ástæðan fyrir hlýnun plánet­unnar okkar. Það má segja að verkið mynd­hverf­ist í kringum þessa töflu frá Nasa. Öðrum megin í salnum er hit­inn og sólin og hinum megin hafið og ísinn. Hitinn leys­ist upp og efna­hvörf mynd­ast sem breyta jafn­vægi líf­rík­is­ins. Verkið er allt unnið á vinnu­stof­unni minni í petr­í­skálum, þar sem ég bý til efna­hvörf sem eiga að end­ur­spegla það sem er að ger­ast í nátt­úr­unni. Allt sem þú sérð eru 3 mm til 1 cm stækk­aðir upp með macro linsum og allt tekið upp í raun­tíma.“

Á menn­ing­arnótt bæt­ist svo við dans­verk eftir þær Lilju Björk Har­alds­dóttur, Linde Rongen, Júlíu Kolbrúnu Sig­urð­ar­dóttur og Sigrúnu Ósk í Soft Collective, sem sýna nýtt dans­verk inn­blásið af mynd­bands­verki Heimis í sama rými og sýn­ingin er.

Mysingur VI: Miomantis og Helgi og hljóðfæraleikararnir

Hvar? Mjólk­ur­portið bak­við Lista­safnið á Akureyri.

Hvenær? 26. ágúst kl. 17.

Upphæð? Ókeypis. 

Mysingur er tón­leika­röð sem hóf göngu sína sum­arið 2022. „Þetta port bak við Lista­safnið, okkur fannst eitt­hvað eiga að ger­ast þarna, þannig að við ákváðum að stökkva á tón­leika,“ segir Eyþór Gylfason, sem rekur Ket­il­kaffi í Lista­safn­inu. Hug­myndin er ein­föld: riggað er upp sviði í mjólk­ur­port­inu á bak við Lista­safnið á Akureyri þrjú síð­degi yfir sum­ar­tím­ann, kveikt undir grill­inu og bassamagn­ar­anum stungið í sam­band. Aðgangur er ókeypis og leggja skipu­leggj­endur áherslu á að veita nýjum hljóm­sveitum rými og tæki­færi til að koma fram, þó þekkt­ari nöfn hafi líka stigið á svið.

„Nafnið er dregið af því að það var hrært í mys­ing þarna þegar KEA fram­leiddi mjólk­ur­vörur í húsum safns­ins og Mysingur er ein­hvers konar hræri­grautur, eins og þessi tón­leika­röð er.“

Síðasti Mysingur þessa sum­ars verður á Akur­eyr­ar­vöku, en þá koma fram Miom­antis og Helgi og hljóð­færa­leik­ar­arnir fram. Tón­leika­röðin er sam­starfs­verk­efni Ket­il­kaffis og Lista­safns­ins á Akureyri og styrkt af Akur­eyr­arbæ og Geim­stof­unni. Verk­efna­stjóri er Egill Logi Jónasson, betur þekktur undir lista­manns­nafn­inu Dreng­ur­inn feng­ur­inn.

Fucking Bornholm

Hvar? Bíó Paradís.

Hvenær? Frumsýnd 31. ágúst.

Upphæð? 1.990 kr.

Tvenn pólsk vina­hjón bregða sér í sum­ar­frí með börn og buru til dönsku eyj­unnar Bornholm. Eða öllu heldur hjón og par, annar helm­ingur vina­hjón­anna end­aði á að skilja og ný kærasta er því komin í spilið öðrum megin. Við hittum þau fyrst um borð í ferju á leið á áfanga­stað, það er aug­ljóst að Dawid og Maja eiga sér sína for­tíð, en núna er hún gift Hubert og Dawid frá­skil­inn og að deita sál­fræði­nem­ann Ninu, sem er mun yngri en þau hin.

En svo dregur skugga fyrir sólu þegar einn strák­anna trúir mömmu sinni fyrir vafasömum full­orð­ins­leikjum sem hinir strák­arnir þröngv­uðu honum í – sem kostar svo upp­gjör hjá hinum full­orðnu og myndin fjallar í raun fyrst og fremst um hvernig þessi upp­á­koma reyn­ist vera próf­raun á hin full­orðnu, sem bregð­ast mjög mis­mun­andi við þessum tíð­indum – og allt kallar þetta á löngu tíma­bært upp­gjör.

Þessi pólska tragikó­medía er full af inn­sæi og húmor, inn­sæi í hvernig Pól­verjar og Skand­ína­var sjá hvorir aðra, af því hvernig fólk bregst mis­mun­andi við áföllum og í mynd­inni er líka eitt stykki ógleym­an­legur danskur bangsi með sýni­kennslu í hygge.

Dagatalið

Föstu­dagur 18. ágúst:

Benjamín Gísli Trio: Line of Thought

16.30 Reykja­vík Record Shop 

Punker In A Bunker

18.30 Álfta­mýri 2

Arto Lindsay

20.00 Mengi

Term­inator 2: Judgement Day – föstu­dagspar­tí­sýn­ing

21.00 Bíó Paradís

Kári og dopa­mine machine

23.00 Græni hatt­ur­inn

Laug­ar­dagur 19. ágúst:

Myrkr­anna á milli / What we do in the shadows

12.00 Hverf­is­götu 50

Barna­söng­stund með Ólöfu Arnalds

13.00 Mengi

Áður en ver­öld steyp­ist

13.00 Norð­ur­ljós, Hörpu

Færeyska Sanna Bæk Hoydal

13.30 Sendistova Føroya í Reykja­vík

Við erum jörðin – við erum vatnið, dans­sýn­ing

14.00 Sjó­minja­safnið

MENNINGARNÓTT: Leiðsögn með sýn­ing­ar­stjóra

14.00 Hvelfing Norræna húss­ins

Magnús Jóhann og Óskar Guð­jóns­son

14.00 Kaldalón, Hörpu

Fjöl­skyldu­ball með Stór­sveit Reykja­víkur og Sveiflu­stöð­inni

14.00 Silf­ur­berg, Hörpu

Lúðra­sveita­bar­dagi árs­ins

14.00 Hörpu­torg

Ljóða­lestur fyrir steina

15.00 Sólfarið

Menn­ing­ar­næt­ur­tón­leikar KEX

15.00 Kex Hostel

Opið hús á Menn­ing­arnótt – Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands

15.00 & 17.00 Eldborg, Hörpu

Spuna­mara­þon Improv Ísland

15.00 Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn

Ljóða­lestur í heima­húsi: Þórarinn Eldjárn

16.00 Ásvalla­götu 12

Sanna Bæk Hoydal

16.10 Kaldalón, Hörpu

Swangah

16.50 Kaldalón, Hörpu

Soffía Björg og Pétur Ben

17.00 Telebar, Iceland Parli­ament Hotel

Sveita­ball Högna og vina á Kastrup

17.00 Kastrup

Langi Seli og Skugg­arnir – lit­ríkt fjör!

20.40 Ljós­mynda­safn Íslands

Sunnu­dagur 20. ágúst:

Hæg­læt­is­tónar á Árbæj­ar­safni

13.00 & 15.00 Árbæj­ar­safn

Morjane Ténéré

21.00 Gauk­ur­inn

Mið­viku­dagur 23. ágúst:

Jazzhátíð

19.00 Norð­ur­ljós, Hörpu

Reykja­vík Poetics #3

20.00 Kex Hostel

Fimmtu­dagur 24. ágúst:

D49: Helena Margrét Jóns­dóttir

10.00 Lista­safn Reykja­víkur

Siggi og Sigga með Sinfó – Einu sinni á ágúst­kvöldi

20.00 Eldborg, Hörpu

Sjón­skekkja – uppi­stand

20.00 Kex Hostel

Blood Harmony

21.00 Græni hatt­ur­inn

Föstu­dagur 25. ágúst:

Sundbíó RIFF – Life of Pi

19.00 Laug­ar­dals­laug

Stella í orlofi – föstu­dagspar­tí­sýn­ing

21.00 Bíó Paradís

GDRN og Magnús Jóhann – Íslensk sönglög

21.30 Hofi, Akureyri

LICKS – Afmæl­is­tón­leikar til heið­urs Gene Simmons

22.00 Dillon

Laug­ar­dagur 26. ágúst:

Óhljóða­messa – punk concert

19.00 Catalína

Eros Ramazzotti

20.00 Laug­ar­dals­höll

Tófa, Oyama & Hasar

21.00 Gauk­ur­inn

Á móti sól

23.00 Græni hatt­ur­inn

Mysingur VI

Mjólk­ur­portið bak­við Lista­safnið á Akureyri

Sunnu­dagur 27. ágúst:

Davíð Þór Jónsson: Spunatón­leikar í Tví­mán­uði || 2/3

13.29 Salurinn, Kópavogi

Spyrjið lista­mann­inn: Sig­tryggur Bjarni Bald­urs­son

14.00 Lista­safn Íslands

Bjarki Frið­riks­son – minn­ing

16.00 Norð­ur­ljós, Hörpu

Mozart Requiem og Bern­stein - Hátíð­ar­tón­leikar í Eldborg Hörpu

17.00 Eldborg, Hörpu

Fimmtu­dagur 31. ágúst:

Fimmtu­dag­ur­inn langi - Hugsun um teikn­ing­una

20.00 Lista­safn Íslands

Gra­veslime - Útgáfu­tón­leikar „Roughness and Toughness“

20.00 Kex Hostel

Hákon Hjaltlín - Shadows útgáfu­tón­leikar

21.00 Gauk­ur­inn

Fucking Bornholm

Bíó Paradís

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á döfinni

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár