„Langþráður draumur að rætast“

Á döf­inni í menn­ing­ar­líf­inu næstu vik­urnar.

Eggert Pétursson

Hvar? i8

Hvenær? Frá 19. jan­úar til 4. mars 

Miðaverð? Ekkert 

Í verkum mynd­list­ar­manns­ins Eggerts Pét­urs­son og banda­ríska skúlp­t­úrist­ans Kathy Butterly má finna ákveðin lík­indi. Áhugi þeirra á eig­in­leikum efnis, langur vinnslu­tími og næmni þeirra beggja fyrir smá­at­riðum leiðir af sér kraft­mikil, gríp­andi verk sem bjóða áhorf­and­anum að hug­leiða þol­mörk lita og forma. Kathy brennir keramíkverk sín allt að 40 sinnum til að ná fram réttri sam­setn­ingu lita og forms, rétt eins og Eggert glæðir strig­ann íslenskri flóru af kost­gæfni og elju. Bæði taka mán­uði, jafn­vel ár í sköpun verka sinna og vinna innan ramma sem þau hafa sett sér. 

Skúlp­t­úrar Kathy sam­an­standa af tveimur formum: Mót af fjölda­fram­leiddu fiska­búri stendur ofan á fern­ingi. Hún hellir postu­líns­leir í gifs­mót af fiska­búr­inu og vinnur síðan með óbrenndan leir­inn í hönd­unum. Verkið er í fram­hald­inu gljáð og brennt end­ur­tekið undir vök­ulu auga lista­manns­ins svo mán­uðum skiptir þar til enda­punkti er náð. Fern­ing­arnir, sem Kathy nefnir stöpla, eru órjúf­an­legur hluti verka hennar og jafn veiga­miklir og formið sem þeir bera.

Íslensk flóra er við­fangs­efni Eggerts. Í gegnum ólík sjón­ar­horn af lands­lagi og nátt­úru Íslands tekst honum að draga fram nýjar, allt að því óhlut­bundnar hliðar inn á sjón­ar­svið áhorf­and­ans. Frá upp­hafi hefur Eggert verið trúr umfjöll­un­ar­efni sínu og ára­tuga löng holl­usta hans við flóru Íslands hefur gefið af sér undra­verða tækni við að fanga hina hverf­andi og síbreyti­legu orku plöntu­rík­is­ins.


Chicago 

Hvar? Sam­komu­húsið á Akureyri

Hvenær? Frum­sýn­ing 27. jan­úar

Miðaverð? 8.900 krónur

Söng­leik­ur­inn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekkt­asti og vin­sæl­asti söng­leikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verð­launa. Chicago var frum­sýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en upp­setn­ingin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú lang­lífasta á Broadway frá upp­hafi. Hafa ófáar kvik­mynda­stjörnur tekið að sér aðal­hlut­verkin, meðal ann­ars Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvik­mynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðal­hlut­verkum sló einnig í gegn og vann til fjölda ósk­arsverð­launa, meðal ann­ars sem besta kvik­myndin.

Sagan ger­ist á þriðja ára­tug síð­ustu aldar í hinni spilltu og losta­fullu Chicagoborg þar sem svik og prettir eru dag­legt brauð. Glæpa­kvendin Velma Kelly og Roxy Hart berj­ast um athygli fjöl­miðla í von um frægð og frama og þrátt fyrir að vera báðar undir lás þá svífast þær einskis til að slá í gegn. Chicago er mein­fyndin og skemmti­leg ádeila á spill­ingu og yfir­borðs­mennsku fjöl­miðla og rétt­ar­kerf­is­ins og iðar af fjöri, hisp­urs­leysi og húmor ásamt ógleym­an­legri tón­list og dans­at­riðum sem kitla öll skyn­færi. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vin­sæli og marg­verð­laun­aði söng­leikur er sýndur á Akureyri í atvinnu­leik­húsi. Chicago var fyrst sýndur í Þjóð­leik­hús­inu 1985 í þýð­ingu Flosa Ólafs­sonar og svo aftur í Borg­ar­leik­hús­inu árið 2005.

„Lang­þráður draumur minn er að ræt­ast, að setja upp Chicago, einn flottasta söng­leik allra tíma,“ segir Marta Nordal, leik­stjóri Chicago og leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar.


Moses Hightower spilar í Mengi

Hvar? Mengi

Hvenær? 3. og 4. febr­úar

Miðaverð? 4.500 krónur.

3. og 4. febr­úar ætlar hljóm­sveitin Moses Hightower að koma fram í fyrsta skipti í Mengi við Óðins­götu. Þótt með­limir hennar hafi með hinum og þessum mús­ík­öntum verið eins og gráir kettir þar nokkurn veg­inn frá opnun stað­ar­ins þá marka þessi tvö kvöld tíma­mót.

„Við erum ótrú­lega spenntir fyrir því að telja í Moses katalóg­inn innan þess­ara veggja því við tengjum svo mikið við Mengi,“ segir Andri Ólafsson, bassa­leik­ari sveit­ar­innar. „Húspí­anóið er mjög sér­stakt hljóð­færi með eigin karakter og planið er að útsetja lögin dálítið í kringum það og eig­in­leika rým­is­ins. Orð kvölds­ins verður „nánd“ og við ætlum að spila nokkur „deep cut“ númer í bland við smell­ina.“

Hvað er svo fram undan? „Við ætlum að spila ein­hverja tón­leika eins og gengur og gefa út ný lög sem fá okkur til að brosa. Það verður frum­sýnd heim­ilda­mynd um nýj­ustu plöt­una og svo fer að koma tími á að hræra í næstu.“


Dýrin í Hálsaskógi

Hvar? Bæj­ar­leik­húsið í Mos­fellsbæ

Hvenær? Frá 29. jan­úar

Miðaverð? 3.500 krónur

Leik­fé­lag Mos­fells­sveitar setur upp Dýrin í Hálsa­skógi eftir Thor­bjørn Egner þar sem áhorf­endur kynn­ast líf­inu í skóg­inum og skemmti­legum karakt­erum á borð við hinn söng­elska Lilla klif­ur­mús og hinn lævísa Mikka ref. Alls taka um þrjá­tíu manns þátt í upp­setn­ing­unni; leik­arar, tón­list­ar­fólk og bak­sviðs­fólk. Leik­stjóri er Birna Pét­urs­dóttir, tón­list­ar­stjóri er Sigurjón Alex­and­ers­son og Eva Björg Harð­ar­dóttir hann­aði leik­mynd og bún­inga.

„Ég hafði aldrei komið áður í litla leik­húsið í Mosó, sem er auð­vitað skammar­legt, en þarna er svo mikil sál og góður andi. Ég hef notið þess í botn að vinna í leik­hús­inu,“ segir Birna. „Þetta hefur verið ótrú­lega skemmti­legt og gef­andi ferli fyrir mig enda er leik­hóp­ur­inn með ein­dæmum skap­andi og skemmti­legur. Styrk­leikar hóps­ins fel­ast ekki síst í fjöl­breyti­leika hans.“


Katrín Halldóra - Af fingrum fram

Af fingrum fram – Katrín Halldóra

Hvar? Salurinn

Hvenær? 2. og 11. febr­úar

Miðaverð? 6.200–6.900 krónur

Katrín Halldóra verður gestur Jóns Ólafs­sonar í Salnum, Kópavogi, 2. febr­úar sem og 11. febr­úar. Spjalltón­leika­röðin Af fingrum fram hefur verið í gangi í 12–13 ár að sögn Jóns og tón­leika­gestir skipta tug­þús­undum. Af fingrum fram voru upp­haf­lega vin­sælir sjón­varps­þættir á RÚV áður en Jón tók hug­mynd­ina lengra og fór með á svið Salarins.

„Þetta hefur gengið vonum framar og er það skemmti­leg­asta sem ég geri; spjalla við kollega mína um fer­il­inn og spila þeirra þekkt­ustu lög,“ segir Jón. „Þeir nota gjarnan tæki­færið og syngja og spila eitt­hvað sem þeir fá sjaldan tæki­færi til að koma að.“ Að sögn Jóns er Salurinn full­kom­inn fyrir tón­leika af þessu tagi; þar eru til dæmis tveir flyglar í boði og allt til alls. 

Katrín Halldóra er ein ást­sælasta söng- og leikk­kona lands­ins og sló í gegn svo um munar í sýn­ing­unni um Elly Vil­hjálms í Borg­ar­leik­hús­inu og er þetta nokkuð fágætt tæki­færi til að sjá hana í návígi og heyra sög­urnar á bak við lögin og margt fleira skemmti­legt. Með þeim verða Ásgeir Ásgeirs­son gít­ar­leik­ari og Birgir Steinn á kontra­bassa.

„Ég hlakka mikið til að fara yfir fer­il­inn með Jóni, flytja mörg þeirra laga sem bæði hafa mótað mig og minn feril sem söng­konu og segja líka ein­hverjar skemmti­legar sögur inn á milli,“ segir Karín Halldóra. „Við munum koma víða við.“


Ragnar Kjart­ans­son. The Visitors.

The Visitors

Hvar? Lista­safnið á Akureyri

Hvenær? 4. febr­úar til 13. ágúst

Miðaverð? Almennt verð: 2.000 krónur. Eldri borg­arar og náms­menn 1.000 krónur

The Visitors er sýn­ing Ragnars Kjart­ans­sonar í Lista­safn­inu á Akureyri. The Visitors er óður vin­áttu við tón­fall róm­an­tískrar örvænt­ingar. Hópur vina og tón­list­ar­manna safn­ast saman í kjör­lendi bóhem­í­unnar, í ljósa­skipt­unum, á hinum stór­brotna og hnign­andi Rokeby Farm í Upstate New York. Stað­ur­inn verður vett­vangur þess sem Ragnar kallar fem­inískt, níhil­ískt gospellag: Marglaga por­trett af vinum lista­manns­ins, könnun á mögu­leikum tón­listar í kvik­mynda­form­inu og dregur titil sinn af síð­ustu plötu ABBA, The Visitors, sem mörkuð var aðskiln­aði og ósigri. Lagið er samið við texta­brot úr mynd­bands­verkum og gjörn­ingum Ásdísar Sifjar Gunn­ars­dóttur.

The Guardian valdi The Visitors besta lista­verk 21. ald­ar­innar eftir að það var fyrst sett upp í Migrossafn­inu í Zürich 2012. Verkið hefur farið sig­ur­för um helstu lista­söfn heims og hefur ein­ungis einu sinni áður verið sýnt á Íslandi, í Kling og Bang 2012.

Ragnar Kjart­ans­son nam við Lista­há­skóla Íslands, Kon­ung­legu Aka­dem­í­una í Stokk­hólmi og Hús­stjórn­ar­skól­ann í Reykja­vík. Einka­sýn­ingar hans hafa verið haldnar í mörgum af virt­ustu lista­söfnum heims og hann var full­trúi Íslands á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum 2009.


Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna)

Hvar? Land­náms­setrið í Borg­ar­nesi

Hvenær? Til 25. febr­úar

Miðaverð? 3.900 krónur

Uppi­stands­sýn­ingin Ferðabók Gísla Ein­ars­sonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) var frum­sýnd um miðjan jan­úar og er upp­selt á fyrstu sex sýn­ingar og næstu sex að fyll­ast. Ferðabók Eggerts og Bjarna kom út árið 1772 en í henni er að finna nið­ur­stöður rann­sókna þeirra Eggerts Ólafs­sonar og Bjarna Páls­sonar á nátt­úru lands­ins og lífs­háttum íbú­anna. Bókin hefur hvorki verið upp­færð né end­ur­skoðuð síðan, ekki fyrr en hinn víð­förli Gísli Ein­ars­son tók það að sér, óum­beðið. Gísli fjallar um skap­gerð­ar­ein­kenni og lifn­að­ar­hætti íbúa í ein­stökum byggð­ar­lögum, á ófag­legan, ósmekk­legan og ómerki­legan hátt. Er þar engum hlíft nema helst Borg­firð­ingum en það hefur samt ekk­ert með það að gera að Gísli er sjálfur Borg­firð­ingur. Þess ber að geta að upp­haf­lega verkið hefur rödd í sýn­ing­unni en Ferðabók Eggerts og Bjarna er þar túlkuð með raf­rænum hætti af Sigríði Guð­munds­dóttur. Þeim sem hafa áhuga á hámenn­ingu eins og hún ger­ist hæst er ráðið frá því að mæta á þessa sýn­ingu en þeir sem aðhyll­ast lág­menn­ingu eins og hún ger­ist lægst eru þarna algjör­lega á réttum stað.

„Við­tök­urnar og athyglin sem þessi sýn­ing hefur fengið er langt fram úr því sem ég hafði þorað að vona,“ segir Gísli. „Ég er að sjálf­sögðu í skýj­unum yfir þessu. Ég er búinn að leggja mikla vinnu í þetta verk­efni og frá­bært að upp­skera eftir erf­iðið með þessum hætti. Ég er hins vegar ekki einn í þessu því öll fjöl­skyldan kemur að þessu með einum eða öðrum hætti, börn og tengda­börn. Leik­stjórn, leik­munir, sýn­ing­ar­stjórn, förðun og flest annað; allt er þetta heima­feng­inn baggi og það gerir þetta enn stærra fyrir mér. Að auki er það nátt­úr­lega sér­stakur heiður að fá að láta móð­ann mása á Sögu­loft­inu og sam­starfið við starfs­fólk Land­náms­set­urs­ins er frá­bært.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á döfinni

Á döfinni: Uppistand, mysingur og örverudans
Á döfinni

Á döf­inni: Uppi­stand, mys­ingur og örveru­dans

Uppi­stand­ari með lausa auga­steina þvælist um landið, frönsk þjóð­laga­söng­kona á Gauknum, pólskar fjöl­skyldur lenda í drama á danskri eyju, tón­list­ar­menn slá upp tón­leikum í mjólk­ur­porti og svo er dansað innan um efna­hvörf sem hafa verið stækkuð með nýj­ustu tækni svo manns­augað greini þau. Þetta er meðal þess sem er á döf­inni í menn­ing­ar­lífi land­ans síð­ustu tvær vik­urnar í ágúst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár