Höfundur áhættumats Hafró hluthafi í eldisfyrirtæki með stofnanda Arctic Fish

Rann­sókn­ar­stjóri fisk­eldis hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun á hluta­bréf í eld­is­fyr­ir­tæki í Grinda­vík sem fram­leiðir sæeyru. Stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins, Sigurður Pét­urs­son, er stofn­andi og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Arctic Fish á Ísafirði sem seldi sig út úr fyr­ir­tæk­inu í fyrra fyrir tæpa tvo millj­arða króna. Umræddur starfs­maður Hafró, Ragnar Jóhanns­son er einn af höf­undum stefnu­mark­andi gagns um áhættu­mat erfða­blönd­unar í íslensku lax­eldi. Hann telur teng­ing­una við Sigurð langsótta.

Höfundur áhættumats Hafró hluthafi í eldisfyrirtæki með stofnanda Arctic Fish
Seldi hlut í Arctic Fish fyrir tæpa tvo millj­arða króna Stofn­andi og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Arctic Fish, Sigurður Pét­urs­son, seldi hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu í fyrra ásamt með­fjár­festum sínum fyrir tæpa tvo millj­arða króna. Skömmu áður hafði hann keypt hluta­bréf í eld­is­fyr­ir­tæk­inu Sæbýli og tekið við stöðu stjórn­ar­for­manns.

Starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem unnið hefur áhættu­mat vegna erfða­blönd­unar villtra laxa og eld­is­laxa hér á landi er hlut­hafi í fyr­ir­tæki sem stundar eldi á sæeyrum í Grinda­vík. Starfs­mað­ur­inn heitir Ragnar Jóhanns­son og er er rann­sókn­ar­stjóri fisk­eldis hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Eld­is­fyr­ir­tækið heitir Sæbýli ehf. Meðal ann­arra hlut­hafa er Sigurður Pét­urs­son, stofn­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish, og er hann jafn­framt stjórn­ar­for­maður Sæbýlis. 

Ragnar á í dag 0,16 pró­senta hlut í Sæbýli og hefur hlutur hans minnkað veru­lega í hluta­fjár­aukn­ingum síð­ustu ár. Ragnar er einn af höf­undum síð­ustu áhættu­mata um erfða­blöndun hjá Hafró og vinnur nú að því þriðja. Hann hefur meðal ann­ars sótt um styrki frá sjóðum RANNÍS fyrir Sæbýli og fengið þá. 

„Það er réttur Íslend­inga að eiga hluta­bréf og ég get ekki séð tengsl þarna“
…
Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár