Útgáfa nýs áhættumats um laxeldi á Íslandi dregst vegna nýrra gagna

Haf­rann­sókn­ar­stofnun vinnur nú nýtt áhættu­mat um erfða­blöndun í íslensku lax­eldi. Guðni Guð­bergs­son hjá Hafró segir að skýrslan sé á loka­metr­unum. Í síð­asta áhættu­mati 2020 var mælt með auknu lax­eldi. Síðan þá hefur hins vegar stærsta slysa­slepp­ing Íslands­sög­unnar átt sér stað.

Útgáfa nýs áhættumats um laxeldi á Íslandi dregst vegna nýrra gagna
Stóru tíð­indin í síð­asta áhættu­mati Stóru tíð­indin í síð­asta áhættu­mati Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar voru þau að opnað var fyrir lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi sem fyrra áhættu­mat gerði ekki. Myndin sýnir lax­eld­iskvíar við Vigur í mynni Skötu­fjarðar í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

Útgáfa nýs áhættu­mats erfða­blönd­unar í lax­eldi á Íslandi hefur dreg­ist vegna þess að ný gögn hafa komið fram. Vinnsla mats­ins er nú á loka­metr­unum. Þetta segir Guðni Guð­bergs­son, sviðs­stjóri ferskvatns- og eld­is­sviðs hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun, í sam­tali við Heim­ild­ina. Meðal þess­ara gagna er ný skýrsla Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um erfða­blöndun villts lax á Íslandi og norska eld­is­laxs­ins sem not­aður er í íslensku lax­eldi. Skýrslan kom út í júlí og vakti tals­verða athygli vegna þess hversu mikil erfða­blöndun frá norskum eld­is­löxum fannst í villtum löxum hér á landi. 

Samkvæmt lögum sem sett voru árið 2019 á Haf­rann­sókn­ar­stofnun að skila nýju áhættu­mati á þriggja ára fresti. Síðasta áhættu­mat var gert opin­bert í maí árið 2020. Stóru tíð­indin í því áhættu­mati var að opnað var fyrir lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi á Vest­fjörðum en þetta hafði verið umdeilt í umræð­unni um eldið hér á …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Fallega og sérstaka eyjan Vigur varð ekki söm eftir að fyrsta laxakvíin var sett þar rétt hjá,
    nú eru þær þrjár. Bara hræðilegt.
    1
  • M
    magnus.tm skrifaði
    Hvernig stendur á þessari breytingu í Seyðisfirði úr 0 í 6500 tonn frá 2017 til 2020? Ingi - getur þú spurt Guðna að því?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár