Ráðgjafi Hvals átti einkaleyfi á hluta sprengjuskutulsins í 20 ár

Hvalur hf. hyggst hefja hval­veiðar aftur í byrjun sept­em­ber eftir að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra bann­aði þær tíma­bundið fyrr í sumar. Einn helsti ráð­gjafi Hvals hf. Egil Ole Øen, norskur dýra­læknir, hann­aði hluta sprengju­skut­uls­ins sem not­aður er við veið­arnar. Talsvert er rætt um Egil í nýlegri skýrslu Mat­væla­stofn­unar um veið­arnar. Hann segir í við­tali við Heim­ild­ina að sprengju­skut­ull­inn hafi bætt hval­veið­arnar mikið.

Ráðgjafi Hvals átti einkaleyfi á hluta sprengjuskutulsins í 20 ár
Skutlar í hval Á mynd­inni sést Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals, við hval sem í standa tveir skutlar. Mynd: Arne Feuerhahn

Norski dýra­lækn­ir­inn sem starfað hefur sem ráð­gjafi Hvals hf. vegna lang­reyða­veiða Íslend­inga hann­aði einn hluta á sprengju­skutl­inum sem fyr­ir­tækið notar og átti einka­leyfi á þeim í 20 ár. Þetta einka­leyfi hans var skráð í Noregi og rann það út árið 2020. Þetta kemur fram í norsku einka­leyfa­skránni. Um var að ræða einka­leyfi á örygg­is­mek­an­isma á hvalskutl­inum sem virkar þannig að sprengju­hleðslan á skutl­inum springur aðeins ef skut­ull­inn hæfir dýrið.   

Dýra­lækn­ir­inn heitir Egil Ole Øen og er hann einn helsti sér­fræð­ingur heims í hval­veiðum. Auk þess að hafa starfað sem ráð­gjafi við veið­arnar fyrir Hval hf. þá hefur hann einnig verið ráð­gjafi íslenskra stjórn­valda vegna hval­veiða. 

Þannig má segja að Egil Ole hafi hagn­ast á hverjum ein­asta sprengju­skutli sem not­aður var á hvalskutul á Íslandi frá því Hvalur hf. hóf aftur veiðar á lang­reyðum við Ísland árið 2006, eftir 20 ára hlé, og þar til árið 2020.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár