Enginn hlustaði á sársaukaópin

Sögur kvenna sem und­ir­geng­ust egg­heimtu hjá frjó­sem­is­stofu Yale-háskóla í Banda­ríkj­unum sýna skýrt hvernig sárs­auki þeirra var hunds­aður.

Enginn hlustaði á sársaukaópin
Reynsla Mynd­irnar sem fylgja þátt­unum sýna bak­svip kvenn­anna sem fóru í egg­heimtu hjá lækna­stof­unni. Mynd: The New York Times/Erik Tanner

Konum sem mættu í egg­heimtu hjá frjó­sem­is­stofu Yale-háskóla í Banda­ríkj­unum var sagt að þær myndu varla finna til við aðgerð­ina því að þær fengju sterka verkja­lyfið fentanýl. En þegar aðgerðin hófst öskr­uðu þær af sárs­auka og báðu um meiri verkja­lyf. Það var ekki hægt var þeim sagt, þær höfðu fengið eins mikið og hægt var að gefa þeim. Eða það hélt heil­brigð­is­starfs­fólkið, nema ein kona sem þar starf­aði. Hún vissi vel af hverju nístandi sárs­auk­inn staf­aði því það var hún sem var að taka inn fentaný­lið og gaf kon­unum salt­vatns­lausn í stað­inn. 

Þessi hroll­vekj­andi saga er sögð í nýjum hlað­varps­þáttum New York Times, The Retri­evals. 

Stuld­ur­inn sjálfur er fram­inn af konu sem er langt leidd í sinni fíkn. Hann er ekki það átak­an­leg­asta við þætt­ina heldur sú stað­reynd að kon­urnar mættu daufum eyrum þegar þær sögðu frá sárs­auk­anum. Þær fóru að velta fyrir sér hvort þær væru gall­aðar. Og Yale-háskóli gerði ekk­ert til þess að draga úr þeim hugs­unum. 

Ég grét yfir fyrsta þætt­inum. Hann sagði ekki ein­ungis sögu af ein­angr­uðu atviki. Hann sagði sögu kvenna. Kvenna sem efast er um dag­lega. Kvenna sem reyna að segja frá en mæta lít­il­lækk­andi við­brögðum.

Þætt­irnir eru ekki bara sorg­legir, þeir eru líka vald­efl­andi. Þeir draga efa­semd­araddir í garð kvenna undir skær flóð­ljós. Þar engj­ast radd­irnar um allsnaktar, verða hlægi­legar undir skærum ljósum sem eru svo heit að húðin utan af þeim skrælnar þannig að kjarni þeirra kemur í ljós: Lygin.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár