Spilakort mögulega tekin upp til að draga úr áhættu á peningaþvætti

Markmið fyr­ir­hug­aðrar laga­setn­ingar sem felur í sér mögu­lega inn­leið­ingu spila­korta er einkum að stuðla að ábyrgri spilun, sporna við spila­vanda og verj­ast pen­inga­þvætti. Tvívegis áður hefur staðið til að leggja fram sam­bæri­legt frum­varp.

Spilakassar
Spila­kassar Möguleg inn­leið­ing spila­korta er hluti af vinnu stjórn­valda að úrbótum í vörnum gegn pen­inga­þvætti. Mynd: Shutterstock

Dóms­mála­ráðu­neytið hyggst draga úr áhættu á pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka með breyt­ingu á lögum um söfn­un­ar­kassa og lögum um Happ­drætti Háskóla Íslands. Helstu breyt­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru snúa að því að ákvæði verði sett í lögin sem um ræðir sem gera kröfu til auð­kennis, „mögu­lega með spila­korti“.

Áhrif og mark­mið fyr­ir­hug­aðrar laga­breyt­ingar eru víð­tæk. „Markmið með inn­leið­ingu spila­korta er einkum að stuðla að heil­brigð­ari leikja­mark­aði og ábyrgri spilun, sporna við spila­vanda og verj­ast pen­inga­þvætti.“

Í áformum að laga­breyt­ing­unni segir að í áhættu­mati Rík­is­lög­reglu­stjóra (RLS) fyrir árið 2019 hafi komið fram að veru­leg hætta væri á því að spila­kassar gætu verið not­aðar til að þvætta fé og að sama áhættu­flokkun hafi verið til staðar í mati RLS árið 2021. Verði ekk­ert aðhafst munu lögin sem undir eru ekki vera „í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands og hætta á pen­inga­þvætti væri til staðar á þeim sviðum sem lögin taka til“.

Úrbætur á peningaþvættisvörnum staðið yfir frá 2018

Ísland hefur frá árinu 1991 skuld­bundið sig til að sam­ræma lög­gjöf sína til­mælum alþjóð­lega fjár­mála­að­gerða­hóps­ins Financial Action Task Force (FATF). Í apríl árið 2018 var skýrsla um úttekt FATF á vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti, fjár­mögnun hryðju­verka og fjár­mögnun ger­eyð­ing­ar­vopna birt. Í henni kom fram að tals­verðir veik­leikar væru á íslenskri lög­gjöf og fram­kvæmd hennar. Síðan þá hefur verið unnið að úrbótum, „sem meðal ann­ars birt­ast í þeim viða­miklu breyt­ingum sem gerðar hafa verið á íslenskum lögum og reglum hvað þetta varðar,“ segir í áformunum.

Eins og sakir standa upp­fylla hvorki lög um söfn­un­ar­kassa né lög um Happ­drætti Háskóla Íslands kröfur um full­nægj­andi varnir gegn pen­inga­þvætti. Samkvæmt áður­nefndu áhættu­mati RLS er áhætta af pen­inga­þvætti í gegnum spila­kassa talin vera mikil. 

„Helstu áhættu­þætt­irnir eru umfang áhættu, bæði hvað varðar fjölda spila­kassa og veltu, notkun reiðu­fjár, sá mögu­leiki að hægt sé að hlaða inn reiðufé og prenta í kjöl­farið út vinn­ings­miða án þess að spila eða spila fáa leiki, aðgengi spila­staða og ann­arra til kaupa á vinn­ingsmiðum og nafn­leysi spil­ara. Þessi atriði þarf öll að taka til skoð­unar við breyt­ingar á lög­unum.“

Líkt og segir í þess­ari til­vitnun sem fengin er úr áformunum eins og þau eru birt á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda þá geta nafn­lausir spil­arar hlaðið tugum þús­unda króna í spila­kass­ana í einu og í stað þess að spila fyrir allt féð, þá prenta spil­ar­arnir ein­fald­lega út vinn­ings­miða sem síðan er hægt að inn­leysa og þannig verður til lög­mæt slóð fjár­muna.

Mun ekki síst gagnast spilurum

Í mati á áhrifum laga­setn­ing­ar­innar kemur fram að laga­breyt­ing­arnar gætu haft áhrif á afkomu Íslands­spila og Happ­drættis Háskóla Íslands en óljóst sé hversu mikil áhrifin kunni að vera. Ekki er gert ráð fyrir að breyt­ing­arnar muni koma til með að hafa áhrif á afkomu rík­is­sjóðs eða sveit­ar­fé­laga.

Ljóst er að fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar muni stuðla að vernd þeirra sem stunda spila­kass­ana. „Með upp­töku spila­korta verður vernd þeirra sem stunda spila­mennsku hjá Íslands­spilum og HHÍ aukin. Verði fyr­ir­hugað frum­varp óbreytt að lögum mun það styrkja stöðu allra kynja, en þá sér­stak­lega karla þar sem þeir eru í meiri­hluta þeirra sem stunda spila­mennsku hjá fram­an­greindum aðilum,“ segir í áformunum.

Staðið til að leggja fram sambærilegt frumvarp áður

Líkt og Heim­ildin hefur fjallað um þá stóð til á haust­þingi 2022 að leggja fram laga­frum­varp sem myndi fela í sér inn­leið­ingu spila­korta. Það var í sam­ræmi við aðgerða­á­ætlun stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þá var inn­leið­ing slíkra spila­korta sögð vera í for­gangi vegna „mik­illar áhættu“. Samkvæmt fyrri aðgerða­á­ætlun átti að leggja frum­varpið fram haustið 2020. Nú stendur enn á ný til að leggja slíkt frum­varp fram.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Spilakort mögulega tekin upp"
    Það færist bara meira yfir á netið - nema fyrir þá allslausu sem hvorki eru með net né greiðslukort.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    90 % peningarþvættis fer gegnum fyrirtæki og fjármálastofnanir. Þetta batterí er bara fyrir smælkið og smadopsala. Kaninn byrjaði með þetta fyrir löngu og þá beint gegn vændi og dopsölum. Ekki alvöru peningaþvætti.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár