Hæsti vinningur hækkar úr 300 þúsundum í 5 milljónir

Ekkert bólar á inn­leið­ingu spila­korta til að koma í veg fyrir nafn­leysi og „falska vinn­inga“. Þrátt fyrir það hefur verk­efnið verið á aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka síðan Ísland fór á gráa list­ann. Dóms­mála­ráðu­neytið leggur nú hins vegar til breyt­ingar á reglu­gerð um spila­kassa Íslands­spila þar sem hámarks­vinn­ingur er hækk­aður úr 300 þús­und krónur í 5 millj­ónir. Virkur spilafík­ill vill hert aðgengi að spila­kössum frekar en að banna þá.

Hæsti vinningur hækkar úr 300 þúsundum í 5 milljónir
Enn hærri hjá HHÍ Hæstu vinn­ingar hjá Íslands­spilum verða 5 millj­ónir verði breyt­ingin gerð en hæsti vinn­ingur hjá Happ­drætti Háskóla Íslands hefur í fram­kvæmd verið 17 millj­ónir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samkvæmt aðgerða­á­ætlun stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka átti á haust­þingi 2022 að leggja fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um spila­kassa með það í huga að tak­marka reiðufjár­notkun og inn­leiða spila­kort. Ástæðan var að tak­marka nafn­leysi spil­ara og koma í veg fyrir „falska vinn­inga“, eða pen­inga­þvætti í gegn um spila­kassa.

Inn­leið­ingin er sögð í for­gangi vegna „mik­illar áhættu.“ Þetta frum­varp hefur hins vegar ekki litið dags­ins ljós. Samkvæmt fyrri aðgerða­á­ætlun átti að leggja frum­varpið fram haustið 2020.

Nafn­lausir spil­arar í spila­kössum hér­lendis geta búið til „falska vinn­inga“ með því að hlaða tugi þús­unda í kass­ana í einu og í stað þess að spila fyrir allt féð þá prenta þeir ein­fald­lega út vinn­ings­miða. Hann er síðan hægt að inn­leysa og fá fjár­hæð­ina sem um ræðir milli­færða inn á reikn­ing vinn­ings­hafa. Þar með er búin til lög­mæt slóð fjár­muna.

Áhættu­flokkun fjár­hættu­spilasam­kvæmt aðgerða­á­ætlun stjórn­valda gegn …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HL
    Hjalti Leifsson skrifaði
    Afhverju að stoppa holur í kerfi sem er klárlega rammspillt frá toppi til táar? Spilakassa ætti að banna, og framleiðendur þeirra reknir úr landi.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Þingmenn ættu endilega að samþykkja þetta, væri ekki nær að hækka vinningana í 30 milljónir.
    Eða hvað skyldi þessum „siðblindingjum“ þykja við hæfi?
    0
  • Hjörleifur Harðarson skrifaði
    Athyglisvert...og á þvi þarf að vekja athygli.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár