Tálsýn að fólk hafi stjórn á leiknum

Óljósar hug­myndir um ábyrga spilun, tál­sýn um að fólk hafi stjórn á leiknum og vill­andi hug­taka­notkun þegar kemur að því sem sem spilar á fíkn veiks fólks er meðal þess sem kemur fram í umsögnum um breyt­ingar á reglu­gerð um spila­kassa Íslands­spila.

Tálsýn að fólk hafi stjórn á leiknum
Veikir fíklar Samkvæmt sænskri rann­sókn komu 70% af tekjum spila­kassa frá spilafíklum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Óljósar hug­myndir um ábyrga spilun, tál­sýn um að fólk hafi stjórn á leiknum og vill­andi hug­taka­notkun þegar kemur að því sem sem spilar á fíkn veikra mann­eskjaer meðal þess sem kemur fram í umsögnum um breyt­ingar á reglu­gerð um spila­kassa Íslands­spila.

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp vilja láta loka spila­kössum og segja að rann­sóknir sýni að fólk með þroska­hömlum og skyldar fatl­anir, eða með ein­hverfu, sé ber­skjaldað fyrir spilafíkn.

Þetta kemur fram í umsögn Þroska­hjálpar við drög að reglu­gerð­ar­breyt­ingu dóms­mála­ráð­herra um spila­kassa Íslands­spila sem er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þroska­hjálp vinnur að rétt­inda- og hags­muna­málum fatl­aðs fólks, með sér­staka áherslu á fólk með þroska­hömlun og/eða skyldar fatl­anir og fötluð börn.

Umsagn­ar­ferli um drögin er lokið en þau sem sendu inn umsögn voru Þroska­hjálp, Samtök áhuga­fólks um spilafíkn, SÁÁ, borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sós­í­alista og Íslands­spil. Drögin voru sett í sam­ráðs­gátt­ina þann 16. júní síð­ast­lið­inn.

70% af veltunni í Svíþjóð frá spilafíklum

Í umsögn sinni vísar Þroska­hjálp í umsögn emb­ættis land­læknis frá því í fyrra við frum­varp um bann við spila­kössum sem tveir þing­menn Flokks fólks­ins lögðu fram en sofn­aði í nefnd eftir fyrstu umræðu á þingi. Embætti land­læknis sagð­ist þar styðja bann við spila­kössum og vís­aði í erlendar rann­sóknir sem sýna að þátt­taka í spila­kössum sé sú teg­und fjár­hættu­spila sem teng­ist helst spilafikn.

„Ástæðan fyrir því er að hver leikur tekur mjög stuttan tíma frá því að stutt
er á hnapp­inn og nið­ur­staðan er fengin. Tíðni end­ur­gjafar í formi vinn­ings, sem oft­ast er smá­vinn­ingur, er mikil og fólk upp­lifir að það hafi stjórn á leiknum sem er tál­sýn þar sem nið­ur­staðan er ávallt til­vilj­unum háð. Í sumum spila­kössum er mögu­leiki að geta notað stopp-takka sem ýtir undir þessa álykt­un­ar­villu spilar­ans um að hann hafi stjórn á leiknum því nið­ur­staða leiks­ins var í raun ákveðin. Vegna þess­ara eig­in­leika spila­kassa teng­ist notkun þeirra sterkt spilafíkn t.d. voru um 90% af þeim sem leit­uðu til hjálpa­stöðva um spila­vanda í Noregi fólk sem spil­aði í spila­kössum. Spila­kassar voru bann­aðir í Noregi 1. júlí 2007. Samkvæmt sænskri rann­sókn kemur um 70% af velt­unni frá spila­kössum frá fólki með spila­vanda,“ segir í umsögn­inni sem Þroska­hjálp vísa til.

Rafræn skilríki hið minnsta

Eins og Heim­ildin hefur fjallað um þá taka Íslands­spil undir flest það sem kemur fram í drög­unum en finnst þau þó ekki ganga nógu langt í að jafna aðstöðumun Íslands­spila og Happa­drættis Háskóla Íslands á spila­kassamark­aði, og segja að ef ekki verði úr bætt verði það til þess að ríkið þurfi að end­ur­hugsa fjár­mögnun Rauða kross­ins og Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar, eig­endur Íslands­spila, því tekj­urnar af spila­köss­unum hafi dreg­ist svo mikið saman, á sama tíma og hagn­aður HHÍ eykst.  Yfirlýst mark­mið dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins með breyt­ing­unum er að jafna aðstöðumun þeirra á milli en þessir tveir aðilar eru þeir einu sem reka spila­kassa á Íslandi.

Samkvæmt drög­unum kemur nýtt inn í reglu­gerð­ina: „Stjórn Íslands­spila ákveður hvar söfn­un­ar­kössum verður komið fyrir.“ Þetta truflar flesta umsagn­ar­að­ila og telja þeir að þetta muni auka aðgengi að köss­unum, jafn­vel nálægt sam­býlum fólks með þroska­haml­anir og stöðum sem börn og ung­menni sækja mikið. Þá telur borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sós­í­alista rétt­ast að sveit­ar­fé­lögin hafi um það að segja hvar spila­kassar séu stað­settir innan þeirra marka.

Í skrif­legu svari frá stjórn­ar­for­manni Íslands­spila segir hins vegar: „Samkvæmt núgild­andi reglu­gerð Íslands­spila er til­greint hvar söfn­un­ar­kassar megi vera stað­settir en gera má ráð fyrir að þarna sé verið að horfa til þess að jafna stöðu aðila með hlið­sjón af reglu­gerð HHÍ sem til­greinir engar stað­setn­ingar. Þessi breyt­ing myndi ekki hafa nokkur áhrif á stað­setn­ingu kass­anna.“

Þá telja Þá telur Þroska­hjálp að „ákvæði í reglu­gerð­ar­drög­unum og reglu­gerð­inni varð­andi ábyrga spila­hegðun og heilsu almenn­ings og eft­ir­lit séu mjög óljós og afar ólík­leg til að hafa veru­leg áhrif í fram­kvæmd“.

Þetta tekur borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sós­í­alista undir, sem og SÁÁ sem segir þörf á nán­ari útlist­unum og spyr: „Hverjar eru skyldur rekstr­ar­að­ila þegar kemur að ábyrgri spilun og hvernig kemur því til með að vera fram­fylgt? Að lág­marki ætti að setja raf­ræn skil­ríki sem skil­yrði fyrir spilun, til þess að koma í veg fyrir að ólög­ráða ein­stak­lingar og börn geti spilað í spila­kössum.“

Þarf er mati SÁÁ mik­il­vægt, í nafni ábyrgrar spila­hegð­unar, að ein­stak­lingar geti sett hámörk á upp­hæðir sem þeir spila fyrir, á sól­ar­hring, á viku og á mán­uði. Þetta er í anda þeirra mið­lægu spila­korta sem ýmsir hafa talað fyrir og eru að nor­rænni fyr­ir­mynd. Íslands­spil hafa til að mynda lýst því yfir að þau styðji upp­töku slíkra korta.

Samtök áhuga­fólks um spilafíkn segja í sinni umsögn: „Fyrir hefur legið álit og nið­ur­staða starfs­hóps á vegum Háskóla Íslands, fag­legs hóps sem skil­aði áliti byggðu á rann­sóknum og fræði­legum álitum. Nið­ur­staða þess hóps var afger­andi og var þar lagt til að spila­kort yrðu tekin upp taf­ar­laust.“

Ekki siðferðislega réttlætanlegt

Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sós­í­alista gera athuga­semd við að í reglu­gerð­inni sé talað um „söfn­un­ar­kassa“ þegar átt er við það sem í dag­legu tali kall­ast spila­kassar. Hvergi í lögum eða reglu­gerðum um spila­kassar eru þeir nefndir sem slíkir. „Hér er um að ræða spila­kassa sem spila á fíkn veikra mann­eskja og hafa þannig áhrif á heilu fjöl­skyld­urnar til hins verra og því vart hægt að tala um spila­kass­ana sem ein­falda söfn­un­ar­kassa í jákvæðri merk­ingu. Orð eru sterk og lýsa ákveðnum veru­leika,“ segir í umsögn borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins.

Þá bendir borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn á að í grein­ar­gerð með drög­unum segir að Rauði kross­inn og Lands­björg reiði sig á tekjur úr spila­kössum til að fjár­magna starf­semi sína sem felst í hjálpar- og mann­úð­ar­starfi.

„Borg­ar­full­trúar Sós­í­alista­flokks­ins benda á að erfitt sé að rétt­læta sið­ferð­is­lega að hjálpar- og mann­úð­ar­starf í þágu neyðar ákveð­ins hóps innan sam­fé­lags­ins sé fjár­magnað með að nýta sér neyð ann­ars sam­fé­lags­hóps,“ segja þeir.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár