Segja almannavarnir í hættu nema spilakassareglur verði samrýmdar

Tekjur Íslands­spila hafa minnkað um 70% frá alda­mótum. Stjórn félags­ins rekur tekju­tapið til þess að Happ­drætti Háskóla Íslands hafi árið 1999 neitað að end­ur­nýja sam­komu­lag á spila­kassamark­aði um að hvor­ugur aðili myndi stækka of mikið á kostnað hins. Síðan þá hafi hagn­aður HHÍ vaxið mikið. Stjórn Íslands­spila segir eig­endur sína, Rauða kross­inn og Slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björgu, ekki geta sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu nema aðstöðu­munur á spila­kassamark­aði sé leið­réttur.

Segja almannavarnir í hættu nema spilakassareglur verði samrýmdar
Sam­keppni Rauði kross­inn og Slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björg reka Íslands­spil. Þau segj­ast ótt­ast að geta ekki sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu nema reglur á spila­kassamark­aði verði sam­rýmdar. Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Stjórn Íslands­spila, sem rekin eru af Rauða kross­inum og Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björgu, telur brýnt að jafna aðstöðumun á milli sín og Happa­drættis Háskóla Íslands þegar kemur að rekstri spila­kassa. Að öðrum kosti muni íslenska ríkið þurfa að end­ur­hugsa fjár­mögnun sam­tak­anna til fram­tíðar litið. Yfirvöld eru með sér­stakan samn­ing við félögin tvö vegna almanna­varna og hafa þau því skyldum að gegna gagn­vart stjórn­völdum.

Þetta kemur fram í umsögn um drög að breyt­ingum á reglu­gerð dóms­mála­ráðu­neyt­isns um Íslands­spil sem eru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og Þor­steinn Þor­kels­son, stjórn­ar­for­maður Íslands­spila, skrifar undir fyrir hönd stjórnar. Umsagna­ferli er lokið og eru nið­ur­stöður í vinnslu.

Eins og Heim­ildin hefur fjallað um verða hámarks­vinn­ingar í spila­kössum Íslands­spila hækk­aðir úr 300 þús­und krónum upp í 5 millj­ónir sam­kvæmt drög­unum frá ráðu­neyt­inu. Hámarks­vinn­ingar í spila­kössum HHÍ eru í fram­kvæmd …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PJ
    Pétur Jósafatsson skrifaði
    Finnst fólki eðlilegt að almannavarnir séu fjármagnaðar af spilafíklum?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár