Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

„Kúnnahópurinn er orðinn miklu upplýstari og ákveðnari“

Ís­lenskt fyr­ir­tæki hef­ur náð ár­angri er­lend­is með sölu á húð­vör­um sem bún­ar eru til úr byggi. Sigrún Dögg Guð­jóns­dótt­ir fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­un­ar hjá BI­OEF­FECT fagn­ar því að neyt­end­ur séu upp­lýst­ari en áð­ur. Ragna Hlín Þor­leifs­dótt­ir húð­lækn­ir seg­ir regl­ur um efni í húð­vör­um í Evr­ópu strang­ar.

„Kúnnahópurinn er orðinn miklu upplýstari og ákveðnari“
Sigrún Dögg Guðjónsdóttir Framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá BIOEFFECT segir neytendur upplýstari en áður um húðvörur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikilvægi húðumhirðu hefur verið í brennidepli á samfélagsmiðlum síðustu ár.  Markaðsvirði húðumhirðu bransans vex milli ára og spá sérfræðingar því að árið 2023 verði bransinn metinn á 155 milljarða Bandaríkjadala. Erlendis eru Johnson Johnson, L’Oréal og Estée Lauder þrjú af verðmætustu fyrirtækjum húðvöruiðnaðarins. BIOEFFECT, Bláa Lónið og Sóley eru meðal þeirra fyrirtækja sem eru leiðandi í framleiðslu á húðvörum hérlendis. 

Ragna Hlín ÞorleifsdóttirHúðlæknir segir ekki hægt að búa til eina húðvöru sem hentar öllum.

Húðlæknirinn Ragna Hlín Þorleifsdóttir segir mikla vitundarvakningu hafa orðið síðustu ár hvað varðar húðumhirðu, þá sérstaklega um skaðleg áhrif sólarinnar. Hins vegar má öllu ofgera og tekur hún fram að einfaldleikinn sé ávallt betri en flóknar húðrútínur með mörgum vörum. Það er til rosalega mikið af húðvörum og það er líka vandamál að fólk er að nota of mikið af þeim. Þú ert að nota 10 vörur í kvöldrútínu þegar þú þarft kannski bara tvær eða þrjár vörur.“ 

Strangar reglur 

Ragna segir það ómögulegt að búa til eina vöru sem hentar öllum. „Í rauninni er þetta meira spurning um að fólk noti vörur sem henta þeirra húðtýpu.“ Til dæmis velur fólk með þurra húð frekar olíukenndari og feitari vörur. Alls kyns frasar eru notaðir til þess að lokka fólk að vörum samkvæmt húðlækninum. Hún nefnir það sem dæmi að þrátt fyrir að vara sé búin til úr lífrænum efnum sé ekki víst að hún henti öllum. „Þú getur fengið ofnæmi fyrir vörum sem innihalda bara lífræn efni.“ Algengast er þó að fólk þrói með sér ofnæmi fyrir ilmefnum. „Það er rosalega mikið af ilmefnum í snyrtivörum og jafnvel í vörum eins og sprittbrúsum. Við erum að sjá aukin ofnæmisvandamál út af efnum sem eru sett í snyrtivörur.“

Hún segir lítið fylgst með markaðshlutanum af húðvörugeiranum þó að eftirlit með innihaldsefnum vara sé strangt í Evrópu. „Það eru rosalega strangar reglur í Evrópu um innihaldsefni í snyrtivörum þannig að hlutir eru ekki settir á markað með einhverjum hættulegum efnum. Og það er alveg búið að taka út fullt af efnum sem voru í vörum áður fyrr.“ Aukin þekking vegna fleiri rannsókna leiddi í ljós að efni sem áður voru notuð höfðu slæm áhrif á fólk eða lífríkið. „Það er mikið svoleiðis í umræðunni í dag, hvaða áhrif efni hafa á lífríkið í sjónum og umhverfið.“ 

Upplýstur kúnnahópur

Sigrún Dögg Guðjónsdóttir er framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá íslenska fyrirtækinu BIOEFFECT sem selur húðvörur um allan heim. Rekstrartekjur fyrirtækisins voru 1 milljarður og 731 milljón árið 2022 samkvæmt Keldunni

„Við erum alíslenskt fyrirtæki. Gróðurhúsið er rétt hjá Grindavík og þar ræktum við bygg. Allar vörurnar okkar eru framleiddar hér og það er okkur mjög mikilvægt að Ísland sé kjarninn, það er okkar sérstaða.“  

Framkvæmdastjórinn hefur tekið eftir aukinni vitundarvakningu fólks er varðar húðumhirðu, sérstaklega hjá yngri kynslóðum. „Fólk vill fá vöru sem virkar og gerir það sem við segjum að hún geri. Kúnnahópurinn er orðinn miklu upplýstari og ákveðnari. Það eru meiri kröfur gerðar á fyrirtækin. Fólk er alveg óhrætt við að setja sig inn í vísindin af því að það er svo auðvelt að afla sér upplýsinga, miðað við hvernig það var fyrir 20 árum síðan. Við sjáum alveg að fólk setur sig inn í hlutina, sýnir áhuga og spyr dýpri spurninga en áður.“ 

Fyrsta varanBIOEFFECT býr til serum úr íslensku byggi.

Rúmlega 42 þúsund manns fylgja íslenska fyrirtækinu á Instagram og tæp hálf milljón notenda á TikTok hefur horft á myndbönd merkt myllumerkinu BIOEFFECT. 

Aðspurð hvers vegna fyrirtækið veki athygli í geira þar sem samkeppni er hörð, segir Sigrún Dögg: „Hérna heima auglýsum við vörurnar mjög vel og eigum traustan kúnnahóp. Fyrir það erum við ofboðslega þakklát. Svo má bæta við að við komumst í gegnum Covid-19 og hrunið. Þetta er orðið rótgróið fyrirtæki og orðsporið ferðast mjög hratt hér á Íslandi.“ 

Byggt á vísindum

„BIOEFFECT var undir Orf líftækni þar til í byrjun ársins 2022. Orf líftækni var stofnað af þremur vísindamönnum sem fundu leið til að framleiða vaxtarþætti í byggi.“ Við rannsóknir sínar áttuðu vísindamenn Orf líftækni sig á mikilvægi vaxtarþáttarins EGF í húðinni. Skammstöfunin EGF stendur fyrir Epidermal Growth Factor. „Þetta er vaxtarþáttur sem við fæðumst með í húðinni og erum með alla lífsleiðina. Þegar við fáum sár eða eitthvað slíkt þá eykst framleiðsla og losun en þessi vaxtarþáttur í húðinni hjálpar meðal annars til við að græða og byggja húðina upp aftur.“

Fyrirtækið hefur staðið fyrir rannsóknum hérlendis þar sem áhrif EGF eru skoðuð. „Við höfum séð að húðin þykkist, styrkist og verður stífari.“ 

„EGF serumið var fyrsta varan okkar. Hún er rosalega hrein og með fá innihaldsefni. Við erum enn þá að fá fólk sem er með ofnæmi eða óþol í húðinni og þetta er það eina sem þau geta notað.“ Sigrún Dögg segir vöruna strax hafa fengið meðbyr frá almenningi. Í dag framleiðir BIOEFFECT 14 húðvörur og selur þær víðs vegar um heim, til dæmis í Lundúnum, París, Japan og Bandaríkjunum. 

Vörurnar, sem hugsaðar eru fyrir hinn hefðbundna kúnna, hafa einnig komið þeim sem glíma við sértækari húðvandamál að góðum notum. „Við vorum hér með ungan mann sem var með mjög mikið fótaexem sem gerði það að verkum að það var sárt að ganga. Hann byrjaði að nota EGF serumið á fæturna og það hefur alveg bjargað honum. Eins vitum við af því að handboltamaður notar EGF á hendurnar til að halda exemi í lófunum niðri vegna þess að húðin hans tekur ekki vel í harpexið.“ 

Á sama tíma og neytendur eru orðnir meðvitaðri um virkni og virði ákveðinna vara hefur skapast undiralda á markaði af karlmönnum sem nota húðvörur. Sigrún Dögg segir flesta karlmenn varla hafa borið á sig krem fyrir nokkrum áratugum en nú sé það algengara. „Vörurnar okkar eru kynlausar þannig að ég held að við myndum alveg ná til karlmanns á sextugsaldri sem hefur aldrei borið á sig krem.“  

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RA
    Reykjavíkur Akademían skrifaði
    Um sumt upplýsandi en vekur furðu að hægt sé að rita heila grein um Orf og EGF án þess að geta þess að um erfðabreytta ræktun sé að ræða.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
3
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
6
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.
Bjarni segir þetta ár það sterkasta í íslenskri efnahagssögu
8
Fréttir

Bjarni seg­ir þetta ár það sterk­asta í ís­lenskri efna­hags­sögu

„Þetta er sterk­asta ár Ís­lands í efna­hags­sög­unni,“ full­yrti Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og nú­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á Al­þingi. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formað­ur Við­reisn­ar, bað ráð­herra að „girða sig í brók“, skoða stóru mynd­ina og taka ut­an um alla hópa, ekki bara sína eig­in.
Grátrana sást á Vestfjörðum
10
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
7
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
10
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár