Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína

Sandra Hlíf Ocares, fyrrum vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið ráðin verk­efna­stjóri á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Borg­ar­rit­ari segir starfið ekki hafa verið aug­lýst því ráðn­ingin sé tíma­bundin.

Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína
Réði sam­flokks­konu Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hefur ráðið Söndru Hlíf Ocares vara­borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins tíma­bundið. Mynd: Golli

Hildur Björns­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, hefur ráðið Söndru Hlíf Ocares, fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tíma­bundið sem verk­efna­stjóra á skrif­stofu borg­ar­stjóra.

Í svari borg­ar­rit­ara til Heim­ild­ar­innar segir að Sandra hafi hafið störf 1. júlí en í starfi hennar felst und­ir­bún­ingur, sam­hæf­ing og eft­ir­fylgd stefnu­mót­andi verk­efna á vegum skrif­stof­unnar. Þá kemur fram að starfið hafi ekki verið aug­lýst þar sem um tíma­bundna ráðn­ingu væri að ræða. Ekki er verið að bæta við stöðu­gildi á skrif­stof­unni.

Sandra Hlíf OcaresEr nú verk­efna­stjóri á skrif­stofu borg­ar­stjóra.

Sandra er lög­fræð­ingur að mennt en hún hefur gegnt hlut­verki vara­borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins og tók við trún­að­ar­störfum Helga Áss Grét­ars­sonar sem fyrsti vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins þegar hann sagði sig úr Sjálf­stæð­is­flokknum í byrjun árs. Sandra hefur gegnt hlut­verki vara­full­trúa í stjórn Félags­bú­staða, var áður verk­efna­stjóri hjá Íslenska bygg­inga­vett­vangnum og hefur setið í stjórn kæru­nefndar útlend­inga­mála. 

Hópuppsagnir í borginni

…

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár