Ferðaþjónusta skilar sér í hátekjum á Suðurlandi

Baðlón, leið­sögu­fyr­ir­tæki og íslenskur úti­vi­starfatn­aður skila íbúum á Suð­ur­landi hátekjum í ár. Fjórir af tíu efstu Sunn­lend­ing­unum tengj­ast ferða­þjón­ustu.

Ferðaþjónusta skilar sér í hátekjum á Suðurlandi
Fé í ferða­þjón­ustu Fjórir af tíu tekju­hæstu Sunn­lend­ing­unum tengj­ast ferða­þjón­ustu. Mynd: Golli

Sigríður Elín Sig­fús­dóttir, fjár­festir og fyrrum banka­stjóri Nýja Lands­bank­ans, er skatta­drottn­ing Suð­ur­lands. Hún er með 469.852.163 krónur í árs­tekjur fyrir tekju­árið 2025. Í dag starfar Sigríður sjálf­stætt, situr í stjórn Beru og er stjórn­ar­for­maður Hann­es­ar­holts og Arnrúnar íbúða­fé­lags. Sigríður var sak­felld í Ímon-mál­inu en Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að hún hefði ekki fengið máls­með­ferð fyrir óhlut­drægum dóm­stóli.

Íbúar Suð­ur­lands virð­ast einnig hafa nýtt sér tæki­færi sem ferða­þjón­ustan býður upp á eða fjórir af tíu efstu Sunn­lend­ingum Hátekju­list­ans. Í öðru sæti list­ans á Suð­ur­landi er Sverrir Steinn Sverr­is­son, einn af stofn­endum ferða­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Godo. Hann var með 464.617.935 krónur í árs­tekjur fyrir tekju­árið 2025. Ólíkt öðrum á lista Suð­ur­lands sem fá sínar tekjur að mestu leyti í gegnum fjár­magnstekjur, voru það launa­tekjur Sverris sem skil­uðu honum hátekj­unum en hann var með árs­laun upp á 449.552.244 krónur. Það eru sömu­leiðis hæstu árs­laun á Suð­ur­landi í ár.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu