Heimar hf. fjórfalda hagnaðinn

Fast­eigna­fé­lag­ið Heim­ar, sem Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son er for­stjóri fyr­ir, hagn­að­ist um 4,6 millj­arða króna á fyrri helm­ingi árs­ins.

Heimar hf. fjórfalda hagnaðinn
Halldór Benjamín Þorbergsson Forstjórinn segir að rekstur Heima hf. sé „stöðugur og tekjugrunnur félagsins traustur“. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fasteignafélagið Heimar hf. hagnaðist um 4,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins, sem er hækkun úr 1,1 milljarði króna frá sama tímabili í fyrra. 

Stór hluti hagnaðarins er matsbreyting fjárfestingaeigna, sem nam 7,7 milljörðum króna.

Alls voru rekstrartekjur Heima 8,7 milljarðar króna. Þær hækkuðu um 16% á milli ára. Leiðrétt fyrir verðbólgu og breytingar á eignasafni var raunvöxtur leigutekna 3,1% á milli ára.

„Rekstur Heima er stöðugur og tekjugrunnur félagsins traustur. Útleiguhlutfall er áfram hátt, eða 96%, og 42% leigutekna koma frá opinberum aðilum og skráðum félögum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., í yfirlýsingu um afkomuna.

Virði fasteigna Heima er metið á um 237 milljarða króna, en vaxtaberandi skuldir eru 146 milljarðar króna. Fjárhagsstaða félagsins er sögð sterk og eiginfjárhlutfall 32,1%.

Félagið átti 4,8 milljarða króna í handbæru fé í lok tímabilsins.

Á sama tíma og fasteignafélög sýna mikinn hagnað hækkaði vísitala neysluverðs um 0,2% í ágúst, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
4
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár