Heimar hf. fjórfalda hagnaðinn

Fasteigna­félagið Heimar, sem Halldór Benjamín Þorbergsson er forstjóri fyrir, hagnaðist um 4,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins.

Halldór Benjamín Þorbergsson
Halldór Benjamín Þor­bergs­son For­stjór­inn segir að rekstur Heima hf. sé „stöð­ugur og tekju­grunnur félags­ins traustur“. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fasteigna­félagið Heimar hf. hagnaðist um 4,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins, sem er hækkun úr 1,1 milljarði króna frá sama tímabili í fyrra. 

Stór hluti hagnaðarins er mats­breyting fjár­festinga­eigna, sem nam 7,7 milljörðum króna.

Alls voru rekstrar­tekjur Heima 8,7 milljarðar króna. Þær hækkuðu um 16% á milli ára. Leiðrétt fyrir verðbólgu og breytingar á eigna­safni var raun­vöxtur leigu­tekna 3,1% á milli ára.

„Rekstur Heima er stöðugur og tekju­grunnur félagsins traustur. Útleigu­hlutfall er áfram hátt, eða 96%, og 42% leigu­tekna koma frá opinberum aðilum og skráðum félögum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., í yfir­lýsingu um afkomuna.

Virði fasteigna Heima er metið á um 237 milljarða króna, en vaxta­berandi skuldir eru 146 milljarðar króna. Fjárhags­staða félagsins er sögð sterk og eiginfjár­hlutfall 32,1%.

Félagið átti 4,8 milljarða króna í handbæru fé í lok tíma­bilsins.

Á sama tíma og fasteigna­félög sýna mikinn hagnað hækkaði …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Baráttufélagi formanns Eflingar-Sólveigar Önnu Jónsdóttur :( Hvar er stéttvísin hjá henni?
    2
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    er þetta hagnaður en ekki þjófnaður ??????????
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár