Fékk 63 milljónir í þóknun vegna sjóðsins

Spakur Invest, sjóður Helgu Við­ars­dóttur skil­aði 242 millj­óna króna hagn­aði í fyrra. Seðla­bank­inn og for­sæt­is­ráðu­neytið skoð­uðu mögu­lega hags­muna­á­rekstra þar sem unnusti Helgu er Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Fékk 63 milljónir í þóknun vegna sjóðsins
Helga Við­ars­dóttir Fram­kvæmda­stjóri Spaks Invest fær umsýslu­þóknun og árang­urstengda þóknun inn í félag sitt, Barbara ehf.

Félag Helgu Við­ars­dóttur, Barbara ehf., fékk greidda rúma hálfa milljón Banda­ríkja­dala, eða and­virði tæpra 63 millj­óna króna, í fyrra fyrir umsjón með sjóðnum Spakur Invest og árang­urstengda þóknun.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi sjóðs­ins fyrir árið 2025. Spakur Invest hagn­að­ist um tæpar 2 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um tæpar 242 millj­ónir króna. Hrein eign nam rúm­lega 910 millj­ónum krónum.

Heim­ildin fjall­aði um sjóð­inn í fyrra en Helga er fram­kvæmda­stjóri hans og stofn­andi. Seðla­bank­inn og síðar for­sæt­is­ráðu­neytið könn­uðu mögu­lega hags­muna­á­rekstra vegna sjóðs­ins þar sem Helga er unnusta Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra.

Helga stofn­aði sjóð­inn árið 2021, skömmu eftir að Ásgeir var skip­aður seðla­banka­stjóri og þau höfðu trú­lofast. Fyr­ir­tæki alfarið í eigu Helgu, Barbara ehf., er skráð hjá Seðla­bank­anum sem rekstr­ar­að­ili sjóðs­ins. Í fyrra fékk félagið 140.585 dali í umsýslu­þóknun frá Spaki Invest og 367.860 dali í árang­urstengda þóknun, sam­tals and­virði tæpra 63 millj­óna króna.

Fjárfesti í íslenskum …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár