Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku hjá Háskóla Íslands, gagnrýnir Hjört J. Guðmundsson harðlega fyrir villandi tilvitnun í Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, í færslu sem Hjörtur birti á Facebook. Eiríkur er yfirlýstur stuðningsmaður Já til að sjá.
Hjörtur er hins vegar andstæðingur ESB og hefur ritað ótal greinar í Morgunblaðið og víðar vegna málsins, en hann starfaði á Morgunblaðinu í um áratug. Hjörtur birtir í dag tilvitnun í forsætisráðherra og vísar í viðtal sem birtist í hlaðvarpinu Chess After Dark þann 23. ágúst síðastliðinn.
Á spjaldinu, þar sem má jafnframt finna mynd af Kristrúnu, hefur Hjörtur eftir henni: „Ég fór á einn fund um daginn þar sem manneskja, sem er með mikla hagsmuni í útgerð, byrjaði á því að ávarpa herbergið með: Ég ætla að kjósa já vegna þess að ef við göngum inn í Evrópusambandið þá get ég selt allan kvótann minn til Hollendings og cash-að út.“

















































Athugasemdir