Fullyrðingar um 50 milljarða kostnað við ESB standast ekki samanburð

And­stæð­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa full­yrt að kostn­aður vegna aðildar myndi nema 50 millj­örðum á ári. Sam­an­burður við fram­lög ann­arra ríkja og end­ur­heimtur þeirra sýna þó aðra mynd. Finnar fengu um 75 pró­sent af fram­lagi sínu til baka árið 2024 í formi styrkja, meðal ann­ars vegna stað­setn­ingar lands­ins.

Fullyrðingar um 50 milljarða kostnað við ESB standast ekki samanburð
Villandi fram­setn­ing Kostn­aður við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ræðst meðal ann­ars af því hversu mikið ríki fá til baka. End­ur­heimtur eru mis­jafnar. Í til­viki Finna voru þær 76 pró­sent árið 2024. Svo eru önnur ríki sem hafa bein­línis hagn­ast af aðild.

Fram­setn­ing and­stæð­inga Evr­ópu­sam­bands­ins í umræð­unni varð­andi kostnað íslenska rík­is­ins við inn­göngu er vill­andi sé litið til sam­an­burð­ar­landa innan sam­bands­ins. Því hefur verið haldið fram að kostn­aður rík­is­ins vegna aðildar myndi nema 50 millj­örðum á ári, en aldrei er tekið fram hvað ríkið end­ur­heimtir á móti í formi styrkja.

Þegar litið er til Finn­lands má sjá að á síð­ustu fjórum árum hafa Finnar mest fengið um 76 pró­sent af fram­lagi sínu til baka, árið 2024, en minnst 59,5 pró­sent árið 2021. Pen­ing­arnir hafa skilað sér aftur í formi alls kyns styrkja frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Annað smá­ríki innan Evr­ópu­sam­bands­ins, Malta, sem er sam­bæri­legt því íslenska hvað varðar íbúa­fjölda þó að aðstæður séu að mörgu leyti ólíkar, end­ur­heimti helm­ingi meira af fram­lag­inu en greitt var til sam­bands­ins árið 2024.

Malta kemur út í plús

Malta greiddi 173 millj­ónir evra, eða 25 millj­arða íslenskra króna, til Evr­ópu­sam­bands­ins en fékk styrki upp á 263 millj­ónir evra, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár