Reykjavíkurborg segir upp 86 starfsmönnum

Borg­ar­ráð sam­þykkti skipu­lags­breyt­ingar sem fela í sér að 86 starfs­mönnum er sagt upp. Af þeim fá 32 boð um nýja vinnu hjá Reykja­vík­ur­borg. Aðgerð­irnar eru sagðar spara 900 millj­ónir. Boðað var til auka­fundar í borg­ar­ráði til að sam­þykkja nið­ur­skurð­inn.

Reykjavíkurborg segir upp 86 starfsmönnum

Reykja­vík­ur­borg ætlar að segja upp 86 starfs­mönnum vegna breyt­inga á stjórn­skipu­lagi vel­ferð­ar­sviðs og skóla- og frí­stunda­sviðs. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 verður ekki boðið áfram­hald­andi starf hjá borg­inni. Þetta var sam­þykkt á sér­stökum auka­fundi borg­ar­ráðs sem boðað var til í morgun. 

Ekki liggur fyrir hvaða störf það eru sem borgin ætlar að leggja niður en í til­kynn­ingu frá borg­inni segir að meðal þeirra starfa sem hverfa séu 22 stöðu­gildi sem lögð verða niður þegar samn­ingur borg­ar­innar við ríkið um sam­ræmda mót­töku flótta­manna rennur út um næstu ára­mót. Ný skipu­rit eiga að taka gildi 1. sept­em­ber 2026 og inn­leið­ing­unni að ljúka fyrir 1. jan­úar 2027.

Beinist að stjórnendum

Í til­kynn­ing­unni, sem borg­ar­rit­ari sendi út, segir að breyt­ing­arnar bein­ist einkum að stjórn­endum og milli­stjórn­endum og að fram­línu­þjón­usta verði varin. Þjónusta mið­stöðv­anna verður veitt með óbreyttu fyr­ir­komu­lagi á meðan breyt­ing­arnar eru inn­leiddar, þó ekki lengur en til árs­loka 2026.

Verkefni og þjón­usta mið­stöðv­anna, frí­stunda­mið­stöðv­anna, Keðj­unnar og Virkni­húss verða færð inn í nýtt skipu­lag. Þjón­ustan verði í auknum mæli skipu­lögð eftir fag­greinum og sam­ræmd þvert á borg­ina í stað land­fræði­legrar hverfa­skipt­ingar.

Frá næstu ára­mótum verður barna- og fjöl­skyldu­þjón­usta ásamt skóla- og frí­stunda­þjón­ustu með aðsetur í Borg­ar­túni 12–14. Félags- og hús­næð­is­þjón­usta verður á Bílds­höfða 20. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu borg­ar­innar eiga börn og fjöl­skyldur þar með að geta sótt þjón­ustu á einn stað.

Borg­ar­yf­ir­völd segja nær­þjón­ustu við íbúa í hverfum, skólum og frí­stunda­starfi áfram verða í for­grunni. Að baki þjón­ust­unni verði stærri og sér­hæfð­ari fagteymi, skýr­ari verka­skipt­ing og styttri boð­leiðir.

Starf­semi og rekstur mið­stöðv­anna hefur sam­kvæmt til­kynn­ing­unni dreg­ist saman um 60 pró­sent frá því að mál­efni fatl­aðs fólks voru færð frá mið­stöðv­unum til fag­skrif­stofu vel­ferð­ar­sviðs í árs­byrjun 2025.

Gera ráð fyrir 900 milljóna sparnaði

Áætlað er að breyt­ing­arnar skili um 900 millj­óna króna hag­ræð­ingu á ári þegar þær hafa komið að fullu til fram­kvæmda. Sparn­að­ur­inn er sagður fel­ast í fækkun stöðu­gilda, breyttu stjórn­skipu­lagi og lægri hús­næð­is­kostn­aði.

„Rekstr­ar­staða borg­ar­innar kallar á hag­ræð­ingu og því miður verður ekki kom­ist hjá því að hún hafi áhrif á starfs­fólk. Við höfum lagt meg­in­á­herslu á að ein­falda stjórn­skipu­lagið og fækka stjórn­enda­stöðu­gildum í mið­lægri stjórn­sýslu,“ segir Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri í frétta­til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar um breyt­ing­arnar.

Stefán Pálsson, vara­borg­ar­full­trúi Vinstr­is­ins, gagn­rýnir máls­með­ferð­ina í færslu á Facebook. Hann segir borg­ar­stjórn fram­selja borg­ar­ráði vald sitt í sum­ar­leyfi svo hægt sé að taka ákvarð­anir sem þoli illa bið. Það sé hins vegar ekki í anda sveit­ar­stjórn­ar­laga að boða skyndi­lega til auka­fundar í borg­ar­ráði undir lok ágúst til að sam­þykkja umfangs­miklar kerf­is­breyt­ingar áður en borg­ar­stjórn kemur aftur saman.

Stefán bendir á að fundir borg­ar­stjórnar fari fram fyrir opnum tjöldum og með þátt­töku allra kjör­inna full­trúa, en borg­ar­ráðs­fundir séu lok­aðir og trún­aður ríki um flest það sem þar sé sagt.

„Þessi afgreiðsla fær því fall­ein­kunn út frá lýð­ræð­is­sjón­ar­miðum einum og sér og þá eigum við enn eftir að ræða inni­haldið!“ skrifar Stefán á Facebook.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þessi gjörningur sýnir fyrir hvað þetta hiski stendur ,eg skora á sameinaða verkalýðshreyfingu að brjóta þetta á bak aftur með góðu eða illu þetta má ekki ske
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár