Verðbólgan heldur áfram að hækka

Verð­bólga mælist nú 5,6 pró­sent á 12 mán­aða tíma­bili eftir að vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,2 pró­sent á milli mán­aða. Hækkun skrá­setn­ing­ar­gjalda í opin­bera háskóla hafði áhrif til hækk­unar. For­sendur kjara­samn­inga eru nú form­lega brostnar.

Verðbólgan heldur áfram að hækka
Hækkun Hag­stofan bendir á að skrá­setn­ing­ar­gjöld í opin­bera háskóla hafi hækkað úr 75 þús­und í 100 þús­und. Mynd: Golli

Verð­bólga mælist nú 5,6 pró­sent eftir að hafa mælst 5,3 pró­sent í júlí. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,2 pró­sent á milli mán­aða, sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þetta er öfugt við þró­un­ina í ágúst í fyrra, þegar vísi­talan lækk­aði um 0,15 pró­sent vegna útsölu­á­hrifa.

For­sendur kjara­samn­inga eru nú form­lega brostnar. Í kjara­samn­ing­unum sem gerðir voru árið 2024 er ákvæði um að verði verð­bólga meiri en 4,7 pró­sent í ágúst sé heim­ilt að segja þeim upp. Það ger­ist þó ekki sjálf­krafa. Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins þurfa í næsta mán­uði að taka afstöðu til þess hvort for­sendur samn­ing­anna stand­ist og hvernig bregð­ast skuli við.

Þeir geta ann­að­hvort samið um við­brögð við stöð­unni og látið samn­ing­ana halda gildi sínu eða ákveðið að segja þeim upp. Verði samn­ing­unum sagt upp falla þeir úr gildi 31. októ­ber.

Í takt við væntingar Seðlabankans

Verð­bólga án hús­næðis mælist 5,2 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis lækk­aði hins vegar lít­il­lega á milli mán­aða, eða um 0,02 pró­sent.

Hækkunin kemur rúmri viku eftir að Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig í 8 pró­sent. Pen­inga­stefnu­nefnd vís­aði þá til þess að verð­bólga hefði verið yfir 5 pró­sent það sem af er ári og að verð­bólgu­vænt­ingar væru enn of háar. Bankinn taldi því nauð­syn­legt að auka pen­inga­legt aðhald.

Nýjasta verð­bólgu­mæl­ingin er jafn­framt á sama stigi og Seðla­bank­inn hafði gert ráð fyrir að verð­bólga yrði að með­al­tali á þriðja árs­fjórð­ungi. Í spá bank­ans frá 19. ágúst var gert ráð fyrir 5,6 pró­senta verð­bólgu á þriðja árs­fjórð­ungi og 5,7 pró­sentum á þeim fjórða. Það var 0,2 pró­sentu­stigum meira en bank­inn hafði spáð í maí.

Húsnæðisverð stærsti áhrifaþátturinn

Hækkun reikn­aðrar húsa­leigu hafði mest áhrif til hækk­unar vísi­töl­unnar í ágúst. Hún hækk­aði um 0,9 pró­sent frá júlí og hafði 0,18 pró­sentu­stiga áhrif á vísi­töl­una.

Fata­út­sölur eru jafn­framt víða gengnar til baka og hækk­aði verð á fötum um 4,1 pró­sent á milli mán­aða. Sú hækkun hafði 0,10 pró­sentu­stiga áhrif til hækk­unar vísi­töl­unnar.

Gjöld í háskóla hækk­uðu um 15,1 pró­sent og höfðu 0,07 pró­sentu­stiga áhrif. Hækkunin skýrist að mestu af því að skrán­ing­ar­gjald í opin­berum háskólum hækk­aði úr 75 þús­und krónum í 100 þús­und krónur. Gjaldinu hafði ekki verið breytt í tólf ár.

Þessi hækkun var meðal þeirra þátta sem Seðla­bank­inn hafði sér­stak­lega horft til í verð­bólgu­spá sinni. Bankinn sagði horfur á að verð opin­berrar þjón­ustu hækk­aði tölu­vert á næstu mán­uðum, meðal ann­ars vegna hækk­unar skrán­ing­ar­gjalda við Háskóla Íslands og fyr­ir­hug­aðra hækk­ana á gjöldum fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu. Þá benti bank­inn á að tíma­bundnar aðgerðir stjórn­valda vegna elds­neytis renni út í sept­em­ber þegar virð­is­auka­skattur á elds­neyti hækkar á ný.

Ferðakostnaður milli landa lækkaði

Á móti hækk­unum í ágúst vó tals­verð lækkun flug­far­gjalda til útlanda. Þau lækk­uðu um 9,6 pró­sent frá júlí og drógu vísi­tölu neyslu­verðs niður um 0,34 pró­sentu­stig.

Seðla­bank­inn hefur sagt aukn­ingu mældrar verð­bólgu að und­an­förnu fyrst og fremst hafa lit­ast af hækkun opin­berra gjalda og áhrifum stríðs­á­taka í Mið-Aust­ur­löndum, meðal ann­ars í gegnum hærra alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð. Bankinn telur þó að und­ir­liggj­andi verð­bólgu­þrýst­ingur hafi lítið breyst og að ann­arrar umferðar áhrif verð­hækk­ana hafi enn sem komið er verið minni en ótt­ast var.

Bankinn gerir því enn ráð fyrir að verð­bólga hjaðni nokkuð hratt á næsta ári. Samkvæmt grunn­spá hans verður hún 4,5 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi 2027 og um 3 pró­sent undir lok árs­ins. Verð­bólga verði síðan komin niður í 2,5 pró­senta mark­mið Seðla­bank­ans á fyrri hluta árs 2028. Bankinn telur þó meiri hættu á að verð­bólga verði meiri en spáin gerir ráð fyrir en að hún verði minni.

Vísitala neyslu­verðs stendur nú í 694,6 stigum. Ágúst­vísi­talan gildir til verð­trygg­ingar í októ­ber.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Mentun gefur mátt. Afnemum innritunargjald í háskóla!
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Áfrma heldur verðtryggingin að mata verðbólguna án aðgerða til að afnema hana.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu