Útgerðarfólk og YouTube-stjarna tekjuhæst á Suðurnesjum

Tækni­lausn fyrir not­endur Youtube hefur reynst ábata­söm yfir einn Suð­ur­nesja­mann. Tekju­hæstu ein­stak­ling­arnir á síð­asta ári eru flestir tengdir sjáv­ar­út­vegi.

Útgerðarfólk og YouTube-stjarna tekjuhæst á Suðurnesjum
Bæði fugl og fiskur Útgerð­ar­fólk er tekju­hæsti hóp­ur­inn á Suð­ur­nesjum. Það er þó ein und­an­tekn­ing, en í öðru sæti list­ans er tækni­fröm­uður.

Hermann Thorsten­sen Ólafsson er skatta­kóngur á Suð­ur­nesjum í ár en hann er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri og einn eig­andi Stakka­víkur, sem er fisk­vinnslu­út­gerð í Grinda­vík.

Fiskur er áber­andi arð­bær á Suð­ur­nesjum en sjö af tíu tekju­hæstu ein­stak­ling­unum eiga silfri hafs­ins að þakka auð­æfi sín þetta árið. Hermann var með 419 millj­ónir króna í árs­tekjur og greiddi 88 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Hann nær þó ekki inn á topp fimm­tíu list­ann á land­inu öllu en litlu má þó muna þar sem hann er í 58. sæti yfir þá tekju­hæstu á land­inu öllu.

Það er þó ekki fiskur heldur nýsköpun sem situr í öðru sæti list­ans. Hinn tæp­lega þrí­tugi Grétar Ágúst Agn­ars­son er í öðru sæti sam­kvæmt lista Heim­ild­ar­innar en hann er með 344 millj­ónir í árs­tekjur. Hann eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins App­St­arMe sem býður upp á tækni­lausn fyrir þá sem vilja geta snérsniðið YouTube-áhorfið sitt að sínum smekk auk þess sem appið tryggir að …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár