Seðlabankinn neitar að birta sáttina við Íslandsbanka án yfirstrikanna

Í sátt­inni sem Seðla­bank­inn gerði við Íslands­banka, þar sem bank­inn ját­aði marg­háttuð lög­brot við sölu á rík­is­eign, var búið að strika yfir upp­lýs­ingar. Heim­ildin hefur kært yfir­strik­un­ina til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Seðlabankinn neitar að birta sáttina við Íslandsbanka án yfirstrikanna
Seðla­banka­stjóri Ásgeir Jónsson er æðsti yfir­maður Seðla­banka Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Seðla­banki Íslands hefur hafnað beiðni Heim­ild­ar­innar um að fá sam­komu­lag Íslands­banka við Seðla­banka Íslands um að ljúka með sátt máli vegna brota bank­ans við sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í bank­anum án þess að búið sé að strika yfir upp­lýs­ingar úr sátt­inni. 

Að mati Heim­ild­ar­innar eiga upp­lýs­ing­arnar sem strikað var yfir ríkt erindi við almenn­ing, enda var um að ræða sölu á rík­is­eign sem nú liggur fyrir að var fram­kvæmd með ólög­mætum hætti. Auk þess ákvað Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að birta lista yfir kaup­endur á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka í apríl 2022. Ráðu­neyti hans mat það svo að upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa féllu ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríkti um ráð­stöfun opin­berra hags­muna ákvað ráð­herra …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Hvaða andsk. pukur eru þetta i flestum malum sem varðar okkur alla þjoðina.
    Þetta lið er alaunum fra okkur-hvað heldur þetta lið það se.

    Eg sem einn af launagreiðendum ykkar Alþingismanna, embættismanna eða bara allra
    þeirra sem hanga ajötunni segi ykkur öllum upp.Ef þið minnist a starfslokasamninga
    varðar það brottrekstur af landi.
    1
  • Guðbjörn Sigurmundsson skrifaði
    Prentvilla í fyrirsögn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár