Telur sig ekki geta óskað eftir því að yfirstrikaðar upplýsingar verði birtar

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið seg­ist ekki hafa aðgang að þeim upp­lýs­ingum í sátt­inni við Íslands­banka sem strikað var yfir. Það telur sig heldur ekki geta óskað eftir þeim.

Telur sig ekki geta óskað eftir því að yfirstrikaðar upplýsingar verði birtar
Ráðherra Bjarni Bene­dikts­son lagði sjálf­stætt mat á birt­ingu kaup­enda­list­ans á sínum tíma. Ráðu­neyti hans telur sig ekki vera í færum að gera slíkt hið sama með þær upp­lýs­ingar sem voru strik­aðar út úr sátt fjár­mála­eft­ir­lits­ins við Íslands­banka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í sátt sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands gerði í máli Íslands­banka vegna brota bank­ans við sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í bank­anum var búið að strika yfir ákveðnar upp­lýs­ingar. Samkvæmt sátt­inni gekkst Íslands­banki við því að marg­háttuð lög­brot hefðu verið framin innan bank­ans í tengslum við lokað útboð á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í honum í mars í fyrra. Íslands­banki mun greiða 1,2 millj­arða króna sekt í rík­is­sjóð vegna sátt­ar­innar, sem er næstum þrettán sinnum hærri en næsta hæsta sekt sem eft­ir­litið hefur lagt á íslenskt fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Heim­ildin beindi því til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að það myndi leggja sjálf­stætt mat á hvort birta ætti umræddar upp­lýs­ingar. 

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að það taki undir sjón­ar­mið um mik­il­vægi þess að upp­lýs­ingar um sölu­ferlið séu gerðar almenn­ingi aðgengi­legar en bendir þó jafn­framt á að „umbeðin gögn stafa frá …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ellý Guðmundsdóttir skrifaði
    Það er ótrúleg spillingin og og viðbjóðurinn sem viðgengst hér á landi. Hvað þarf til þess að við opnum augun mótmælum !!!
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Hve lengi og hve oft getur Vellýgni Bjarni haft almenning af fífli!
    0
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Eins lengi og fjölmiðlar leyfa. Því fjölmiðlar hafa haft alla burði til að rannsaka feril Bjarna og gerðir gegnum árin og vekja athygli íslenskra og erlendra aðila á þeirri hegðun sem snertir þá... en í skjóli meðvirkni og skúbba hefur þetta bjargast hjá honum... og líkt og ICIJ og aðrir hafa fjölmiðlar reynst ansi hallir undir skúbbin og umfjöllunina en frekar lítið fyrir að þjarma að þeim sem leyfa kerfinu að starfa svona... með bundið fyrir augun, haldið fyrir eyrun og orðagjálfur.

      Þetta breytist ekki fyrr en menn taka á kerfinu sem þýðir að þjarmað sé að þeim sem eiga að leggja línurnar og tryggja að kerfið virki. En því miður er hjólað í afleiðingarnar og usual suspects... Samherja, Íslandsbanka, lögmenn, fyrrum bankstera osf.

      Ó... athyglisvert að enginn spyr af hverju ég segi að Deutsche Bank hafi fellt íslenska bankakerfið... þó allir sem vita eitthvað vita að ég veit meira... enda miklu tengdari og hulduheimar opin bók.

      Vonda fólkið mun alltaf labba í burtu ótjónaðir... í boði kerfisins.

      Segið mér eitt ? Var BB með prófkúru á greiðslur vegna aflandseyjabústaðar skráðum í eigu föður hans í skattaskjóli... meðan hann var fjármálaráðherra... og er það í lagi að ráðherrar séu beneficial owners skattaskjóladæma ? Þeir voru jú báðir viðskiftavinir Bank Julius Baer skv. mínum gögnum... og þau eru skotheld. Og listinn lengist hratt ef menn fara í raun að skoða í stað þess að telja sig tæra snillinga.

      The truth is out there... og stundum má fá hann fyrir 500 US ... eins og Dekhilleignardæmið sannaði svo rækilega.

      Þið munuð sjá á Lindarhvolsdæminu líkt og Íslandsbankadæminu og Samherjadæminu að kerfið minimiserar og verndar svona... í boði fjölmiðla.

      Í alvöru ??? Ætlar enginn að ræða við regluverðina hjá Íslandsbanka ???

      Og Þórður... þú veist ég fer með rétt mál.. því þið Björn Leví voruð ekki valdir af handahófi og eina spurningin var hvers hratt Kýpur brygðist við. Það er nefnilega hægt að stilla kerfinu upp við vegg og fá það til að bregðast við.

      Choose your enemy carfully... Art of War ... sem Sun Tzu lét taka saman. ( Hann var ekki höfundurinn).
      1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Bjarni Ben og ráðuneytisfólkið þráast ítrekað við að greiða götu upplýsinga vegna sölu-RÁNANNA til almennings, allir vita að glæpur var framinn og þau sem vilja ekki vera viðriðin glæpinn koma þessum upplýsingum á framfæri við almenning, hinir eru samsekir glæpnum. Uppljóstarar eru verndaðir.
    1
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Uppljóstrarar eru yfirleitt hengdir og hent á haugana þegar notkunargildi þeirra minnkar... amk. er Panama Papers uppljóstrarinn ekki neitt voða kátur með stuðninginn. Flestir erlendir greinendur eru fljótir að finna út hver er uppljóstarinn á grundvelli gagnanna... og aðgæsluleysi fjölmiðlanna í þeim málum er aðdáunarvert.

      Þú sérð hvernig tekið var á islenskum fjölmiðlamönnum þegar þeir fóru að birta gögn vegna Palla litla sem virðist ekki vera einn í heiminum. Sitja eftir með kostnað og tímatap og nákvæmlega öngvan stuðning frá kerfinu... frekar undir árás frá kerfinu... þokk sé Katrín nokkurri.

      Og það var víst Steingrímur sem stakk þessu undir stólinn... ekki Bjarni... muni ég rétt.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu