„Við þurfum að ganga lengra“

Forseti Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna er von­góð um að nýskip­aður starfs­hópur um kynja­jafn­rétti innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar muni skila árangri. Íslenskur Topp­fót­bolti á full­trúa í hópnum, sam­tök sem voru harð­lega gagn­rýnd í upp­hafi Íslands­móts­ins fyrir kynja­halla í aug­lýs­inga­efni fyrir Bestu deild­ina.

„Við þurfum að ganga lengra“
Kynja­jafn­rétti í knatt­spyrnu Starfs­hópur um kynja­jafn­rétti innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar er nú að störfum. Markmið hóps­ins er að skoða stöðu kynja­jafn­réttis innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar og leggja fram til­lögur að mark­vissum aðgerðum til að auka kynja­jafn­rétti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrsti fundur starfs­hóps um kynja­jafn­rétti innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar fór fram 14. júní síð­ast­lið­inn. Stjórn Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna hafði óskað eftir að slíkur starfs­hópur yrði stofn­aður. Hópurinn var skip­aður af KSÍ, í virku sam­tali við for­sæt­is­ráðu­neytið, sem til­nefnir full­trúa í hóp­inn. 

Anna Þor­steins­dóttir, for­seti Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna, segir vinnu hóps­ins fara hægt af stað en á fyrsta fundi voru lín­urnar lagðar. „Umræðan fór út í það hvernig starfs­hóp­ur­inn mun skila árangri, þannig að þetta verði ekki enn einn starfs­hóp­ur­inn sem skilar ekki árangri,“ segir hún í sam­tali við Heim­ild­ina.  

Auk Önnu skipa eft­ir­taldir full­trúar hóp­inn: 

  • Tinna Hrund Hlyns­dóttir, for­maður

  • Halldór Breið­fjörð Jóhanns­son

  • Haukur Hin­riks­son

  • Klara Bjartmarz

  • Fulltrúi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga

  • Fulltrúi frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu

  • Birgir Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslensks Topp­fót­bolta 

„Ég bind alveg vonir við þetta. Það sem er kannski öðru­vísi við þennan starfs­hóp er að við fáum ráðu­neytið inn og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga. Við erum að fá teng­ingu meira við hið opin­bera sem ég held að sé mjög mik­il­vægt því starfs­hópar innan KSÍ eru oft bara innan hreyf­ing­ar­innar og þetta er aðeins stærra en það. Ég er von­góð um að þetta muni skila árangri en til að vera alveg heið­ar­leg þá þarf að passa það.“

ForsetiAnna Þor­steins­dóttir, for­seti Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna, bindur vonir við að starfs­hóp­ur­inn nái end­an­legum, við­var­andi árangri.

Glöggt er gests augað 

Anna lítur á veru sína í starfs­hópnum fyrst og fremst til að gæta hags­muna knatt­spyrnu­kvenna. „Við þurfum að ganga lengra.“ Að hennar mati á starfs­hóp­ur­inn að setja saman stífa aðgerða­á­ætlun sem mun skila raun­veru­legum árangri. „Aðgerða­á­ætlun í þrepum en ekki grein­ingu á jafn­rétt­inu,“ segir Anna.

Í vinnu sinni mun starfs­hóp­ur­inn hafa til hlið­sjónar skýrslu starfs­hóps KSÍ, Heild­ar­end­ur­skoðun á knatt­spyrnu kvenna, og eft­ir­fylgni þeirra aðgerða sem ekki hafa komið til fram­kvæmda. Það liggur fyrir hvað þarf að gera, næsta skref er að fram­kvæma, segir Anna. 

Sjálf vill Anna gjarnan fá gesti á næstu fundi starfs­hóps­ins sem eru sér­fræð­ingar í jafn­rétt­is­málum en eru óháðir knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni. „Glöggt er gests augað,“ segir Anna.  

Breyt­ingar sem þurfa að koma fram eru breyt­ingar á menn­ingu og við­horfi innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar að mati Önnu. „Fólk þarf að horfast í augu við sín eigin við­horf sem getur verið erfitt.“ 

Þá þarf að skerpa á því hver ber í raun og veru ábyrgð á jafn­rétti innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. „Það eru allir að reyna en það vantar skýr­ari sýn á það hvernig þetta er gert, það er frekar vísað á aðra,“ segir Anna. Hún vonar að það breyt­ist með þátt­töku Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga í starfs­hópnum sem muni í kjöl­farið taka virk­ari þátt í mótun jafn­rétt­is­stefnu innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Sem dæmi nefnir hún að gera megi frek­ari kröfur til styrk­þega sveit­ar­fé­lag­anna þegar kemur að kynja­jafn­rétti. „Erum við bara blind­andi að gefa styrki án þess að gerðar séu kröfur?“

Íslenskur Toppfótbolti tekur þátt í vinnunni

Birgir Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslensks Topp­fót­bolta, hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­fé­laga í efstu deildum, á sæti í starfs­hópnum. Samtökin voru harð­lega gagn­rýnd fyrir ójafn­rétti og kynja­halla í aðdrag­anda Íslands­móts­ins í sumar. Gagn­rýnin sneri ekki síst að aug­lýs­ingu fyrir Bestu deild kvenna og karla. Aug­lýs­ingin er 1 mín­úta og 49 sek­úndur að lengd en konur sjást aðeins í 20 sek­úndur. Hún end­ur­speglar þann veru­leika sem íslenskar fót­bolta­konur mæta trekk í trekk þar sem karl­arnir eru í aðal­hlut­verki en þær í auka­hlut­verki. Heim­ildin ræddi við fót­bolta­konur í Bestu deild­inni í kjöl­farið og sögðu þær umgjörð­ina í kringum kvenna­fót­bolta of veika og kynja­hlut­fall­ið í nýrri aug­lýs­ingu Bestu deild­ar lé­legt. 

Anna segir að umræðan í upp­hafi Íslands­móts­ins hafi haft sýni­leg áhrif, kannski ekki mikil, en ein­hver. „Það sem hefur kannski helst breyst er að það eru fleiri að tjá sig opin­ber­lega og við erum að fá fleiri ábend­ingar. Það setur pressu á alla að standa sig.“

Kerf­is­breyt­ingin sem þarf að verða hefur hins vegar ekki enn átt sér stað. 

„Ekki á þessu sumri en við munum nota vet­ur­inn til að reyna að koma í veg fyrir að sömu mis­tök verði gerð aftur. Baráttan er ekki búin. En það eru fleiri með­vit­aðir og fleiri sem þora að segja eitt­hvað,“ segir Anna.  

Næsti fundur starfs­hóps­ins er áætl­aður í ágúst en ekki liggur fyrir hvenær hann mun skila nið­ur­stöðu. Anna hefur trú á fram­hald­inu. „En ég veit að það er margt sem þarf að gera svo við náum end­an­legum, við­var­andi árangri.“ 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár