Segir sátt Íslandsbanka kalla á að þáttur ráðherra verði rannsakaður

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að sátt Íslands­banka við Fjár­mála­eft­ir­litið sýni að eitt­hvað mikið hafi verið að í stjórn­sýsl­unni varð­andi söl­una á bank­anum. Nauð­syn­legt sé að setja á fót rann­sókn­ar­nefnd sem fari yfir málið allt. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir ábyrgð­ina á mál­inu öllu liggja hjá fjár­mála­ráð­herra.

Segir sátt Íslandsbanka kalla á að þáttur ráðherra verði rannsakaður
Vilja að þáttur ráðu­neyt­isns verði rann­sak­aður Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segja að ábyrgðin á söl­unni á Íslands­banka liggi hjá Bjarna Bene­dikts­syni og það sé nauð­syn­legt að sett verði á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd sem fari yfir málið allt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kallað hefur verið eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í næstu viku til að fjalla um Íslands­banka­málið. Vara­for­menn nefnd­ar­innar eru sam­mála um að málið slái þau ekki vel og þörf sé á því að fá frek­ari gögn og upp­lýs­ingar um málið. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, 2. vara­for­maður nefnd­ar­innar, segir að tíð­indin veki enn á ný upp spurn­ingar um hæfi Banka­sýslu rík­is­ins „og sömu­leiðis fjár­mála­ráð­herr­ans, sem á end­anum ber ábyrgð á þessu öllu saman.“ Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að með nið­ur­stöðu sátt­ar­innar sé enn frekar orðið ljóst að nauð­syn­legt sé að sett verði á fót rann­sókn­ar­nefnd sem fari yfir sölu­ferlið allt.

Íslands­banki birti í gær til­kynn­ingu um að bank­inn myndi gang­ast undir sátt við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands vegna brota á lögum við sölu á eign­ar­hlutum í bank­anum sjálfum. Sam­komu­lag sem náðst hefur milli Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Íslands­banka gerir ráð fyrir að bank­inn greiði 1.160 millj­ónir króna í sekt í rík­is­sjóð vegna þess meðal ann­ars að hafa ekki fylgt lögum og eigin reglum við flokkun fjár­festa og að hafa ekki gert við­eig­andi ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra.

Heim­ildin hefur í morgun reynt að ná í ráð­herra og for­menn stjórn­mála­flokka til að fá þeirra við­brögð, en án mik­ils árang­urs. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá aðstoð­ar­mönnum Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, hyggj­ast ráð­herr­arnir ekki tjá sig um málið fyrr en eftir að sáttin verður birt, sem stendur til næst­kom­andi mánu­dag. Ekki náð­ist í aðra ráð­herra.

Vekur spurningar um hæfi

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, 2. vara­for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, hefur farið fram á að hald­inn verði fundur í efna­hags- og við­skipta­nefnd í næstu viku. Þar verði í það minnsta full­trúar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins boð­aðir til fundar og hugs­an­lega fleiri.

„Það er fullt til­efni til þess að það verði farið ítar­lega yfir þetta mál“
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

„Það er fullt til­efni til þess að það verði farið ítar­lega yfir þetta mál. Mér finnst mjög mik­il­vægt að þingið, og almenn­ingur líka, fái nán­ari útlistun á því í hverju þessi brot hafi falist. Þær upp­lýs­ingar sem koma fram í til­kynn­ingu Íslands­banka eru frekar rýrar. Miðað við hvað þetta mál er mik­il­vægt fyrir almanna­hags­muni er mik­il­vægt að fáum frek­ari upp­lýs­ingar um það beint frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

Spurð hvort nið­ur­staðan hafi komið henni á óvart segir Þór­hildur Sunna að hún hafi í sjálfu sér ekki verið búin að meta það með sér hver sektin kynni að vera, né heldur hafi henni verið ljóst hver brotin kynnu að vera. „Ég var hins vegar nokkuð viss um að nið­ur­staðan yrði sú að um brot hefði verið að ræða. Það getur auð­vitað ekki stað­ist að banki sem er að selja hlut í sjálfum sér, fær að taka þátt í því ferli, leyfi síðan eigin starfs­mönnum að taka þátt í því. Það er í sjálfu sér mjög alvar­legt þegar verið er að sýsla með rík­is­eignir, þegar það birt­ast manni svona miklir hags­muna­á­rekstrar, og það var í mínum huga aug­ljóst að það yrðu að verða ein­hverjar afleið­ingar af því.

Ríkið er ennþá meiri­hluta­eig­andi í bank­anum á þessum tíma og Banka­sýslan lýsir því yfir að þar hafi menn talið að allir innri verk­ferlar hjá Íslands­banka væru í lagi. Þetta er sama stofn­unin og ber ábyrgð á því að koma eig­enda­stefnu rík­is­ins á bönk­unum í fram­kvæmd sam­kvæmt lög­unum. Staðan reyn­ist síðan, eins og nú hefur komið í ljós, ekki betri en þessi. Það voru engir innri ferlar til staðar til að koma í veg fyrir þessi brot. Þetta vissi Banka­sýslan á ein­hvern undra­verðan hátt ekki. Þetta vekur auð­vitað aftur upp spurn­ingar um hæfi þess fólks sem er í Banka­sýsl­unni og sömu­leiðis fjár­mála­ráð­herr­ans, sem á end­anum ber ábyrgð á þessu öllu saman.“

„Hún slær mig ekk­ert sér­stak­lega vel á þessum tíma­punkti“
Ágúst Bjarni Garð­ars­son
um til­kynn­ingu Íslands­banka
Ágúst Bjarni Garð­ars­son

Ágúst Bjarni Garð­ars­son, 1. vara­for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, segir að til­kynn­ing Íslands­banka sé ein­hliða lýs­ing og því erfitt að gera sér fulla grein fyrir máls­at­vikum. „Eina sem við höfum í hönd­unum er þessi til­kynn­ing sem kom frá bank­anum í gær. Per­sónu­lega finnst mér hún loðin, mér finnst hún óskýr og hún slær mig ekk­ert sér­stak­lega vel á þessum tíma­punkti. Þing­nefndin, í raun hvaða þing­nefnd sem það verður, hlýtur að þurfa að fá frek­ari gögn og upp­lýs­ingar um þetta mál, það er bara staðan, mér finnst það.“

Þáttur ráðuneytisins hvergi verið rannsakaður

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, situr einnig í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Hún segir að Sam­fylk­ingin hafi sam­þykkt ósk Þór­hildar Sunnu um að nefndin komi saman vegna máls­ins. Kristrún segir hins vegar að þessar lyktir máls­ins sýni enn frekar hversu mik­il­væg, og rétt­mæt, krafa stjórn­ar­and­stöð­unnar um að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd sem fari yfir málið frá upp­hafi til enda sé.

Kristrún Frosta­dóttir

„Það eru í gildi lög um sölu fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­is­eign, þau voru sett sér­stak­lega eftir hrun út af því sem áður gekk á. Það er mjög skýrt að ábyrgðin sé fjár­mála­ráð­herra. Nú erum við með tvo aðila, ann­ars vegar Banka­sýsl­una og núna Íslands­banka, sem hafa fengið umtals­verðan skell varð­andi hvernig var haldið utan um málið. Fyrst fengum við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem fyrst og fremst tók á þætti Banka­sýsl­unnar. Við í minni­hlut­anum bentum á það, þegar for­sæt­is­ráð­herra tal­aði um að þetta væri sú leið sem að myndi veita hvað mestar upp­lýs­ingar um feril máls­ins, að þar yrði aðkoma ráðu­neyt­is­ins ekki rædd að neinu leyti. Síðan var sagt að fjár­mála­eft­ir­litið myndi rann­saka þátt Íslands­banka og gott og vel. En þarna eru komnir fram tveir stakir þætti í mál­inu núna, sem báðir virð­ast enda með frekar alvar­legum nið­ur­stöðum, það alvar­legum fyrir Banka­sýsl­una að það á að loka henni, og það alvar­legum fyrir Íslands­banka að það á sekta hann um 1,2 millj­arða króna. Hvergi í öllu þessu ferli hefur þáttur ráðu­neyt­is­ins verið rann­sak­aður,“ segir Kristrún.

„Þá hefði átt að sjást að þarna væri pottur brot­inn, við sölu á þjóð­ar­eign“
Kristrún Frosta­dóttir

Kristrún segir að stjórn­mála­menn og almenn­ingur séu í raun enn hálf­blind varð­andi aðkomu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, ráðu­neyt­is­ins og rík­is­stjórn­ar­innar, sem beri ábyrgð á sölu­ferl­inu en hafi í raun útvi­stað þeirri ábyrgð til Banka­sýsl­unnar og Íslands­banka. „Ég myndi því segja að þessi nið­ur­staða sannar ein­fald­lega rétt­mæti kröfu okkar í minni­hlut­anum um rann­sókn­ar­skýrslu um heild­ar­ferlið. Ábyrgðin er alveg skýr í lög­unum, fjár­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin getur ekki ein­fald­lega litið fram­hjá því að ef keðjan fyrir neðan þau er öll brotin, þá er eitt­hvað að efst í stjórn­sýsl­unni og ákvarð­ana­tök­unni í þessu máli. Í raun­inni er ekk­ert mikið meira að segja um málið á þessum tíma­punkti, það hlýtur bara að vekja upp spurn­ingar um hvort fólki þyki í lagi að sitja uppi með þessa nið­ur­stöðu og kanna ekki sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við Banka­sýsl­una og við Íslands­banka. Það hlýtur því að þurfa að setja á rann­sókn­ar­nefnd sem fer yfir málið allt.“

Kristrún segir að málið sé alvar­legt, það hafi verið ljóst áður en komi nú enn frekar í ljós. Lögin séu skýr varð­andi að gæta þurfi að hag­kvæmni, gagn­sæi og jafn­ræði sem snýr að vali á fjár­festum. Lögum sam­kvæmt beri fjár­mála­ráð­herra að ganga úr skugga um að gætt sé að þessum þáttum. „Það er engan veg­inn verið að gera þá kröfu að fjá­mála­ráð­herra fletti upp hverjum aðila sem kaupi sig inn í útboðið, en það eiga að vera girð­inga, verk­ferlar og flögg í kerf­inu sem hann, ráðu­neytið og hans ráð­gjafar geta stuðst við. Og þá hefði átt að sjást að þarna væri pottur brot­inn, við sölu á þjóð­ar­eign.“

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár