Til stendur að greina ítarlega frá brotum Íslandsbanka á mánudag

Íslands­banki hefur enn ekki skrifað undir sátt við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans vegna alvar­legra brota við sölu á 22,5 pró­senta hlut í bank­anum. Tilkynnt var þó í gær­kvöldi að stjórn bank­ans hefði ákveðið að „þiggja boð“ eft­ir­lits­ins um að greiða 1,2 millj­arða króna í sekt vegna brot­anna.

Til stendur að greina ítarlega frá brotum Íslandsbanka á mánudag
Met Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka, sem mun slá met í sekt­ar­greiðslu vegna alvar­legra brota á lögum við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum. Mynd: Nasdaq Iceland

Sáttin sem Íslands­banki und­ir­gengst við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands verður birt á mánu­dag. Ekki er enn búið að skrifa undir hana og hefur stjórn bank­ans fram á morgun til að gera það. Hluti af sátt­inni er birt­ing á upp­lýs­ingum um hver nákvæm­lega brot Íslands­banka voru. Það verður gert á mánu­dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. 

Full­trúar Seðla­bank­ans hafa ekki viljað tjá sig um málið; hvorki þegar það var til rann­sóknar né núna, þegar ljóst er að mál­inu er við það að ljúka. „Þegar bank­inn hefur afhent Seðla­bank­anum und­ir­rit­aða sátt þá verður hún birt eins venja er. Í sátt­inni koma fram máls­at­vik og nið­ur­staða máls­ins,“ sagði í skrif­legu svari Seðla­bank­ans til Heim­ild­ar­innar nú í morgun. 

Í til­kynn­ingu Íslands­banka um sekt­ina í gær segir að bank­inn hafi í raun sjálfur verið, í meg­in­at­riðum, búinn að kom­ast að sömu nið­ur­stöðu og Seðla­bank­inn um hvaða brot hefðu verið framin. Bankinn gjald­færði þó aðeins 300 millj­ónir vegna yfir­vof­andi sektar, sem end­ur­speglar að ein­hverju leyti mat bank­ans á hversu alvar­lega brotin væru litin. Sektin er því 860 millj­ónum krónum hærri en stjórn­endur bank­ans gerðu ráð fyrir. 

Það er þó langt frá þeirri hámarks­sekt sem fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­bank­ans er heim­ilt að leggja á Íslands­banka. Sekt­ar­fjár­hæðir mega nema allt að tíu pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi. Í til­felli Íslands­banka eru það hátt í sex millj­arðar króna. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sést a viðbrögðunum að sektin er of lág. Því miður er mórallinn þannig.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu