Ofbeldi undir yfirskini markþjálfunar

Sér­trú­ar­söfn­uðir eru gjarnan dul­búnir sem eitt­hvað allt annað. Einn slíkur er í sviðs­ljós­inu í hlað­varp­inu A Very British Cult, eða upp á íslensk­una: Mjög breskur sér­trú­ar­söfn­uður.

Ofbeldi undir yfirskini markþjálfunar
Költ Hlað­varpið segir nán­ast ótrú­lega sögu úr nútím­anum.

Catrin Nye hjá breska rík­is­út­varp­inu flettir í þátt­unum hul­unni af því hvernig breskt mark­þjálf­un­ar­fyr­ir­tæki not­aði hót­anir og and­legt ofbeldi til þess að taka yfir líf fólks, pumpa út úr þeim pen­inga og tvístra fjöl­skyldum. Starfs­hættir fyr­ir­tæk­is­ins minna um margt á sér­trú­ar­söfn­uði sem ein­angra með­limi sína til þess að öðl­ast völd yfir fólki. 

Sagan er nán­ast ótrú­leg og varpar mjög skýru ljósi á það hve auð­velt það reynd­ist stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins að lokka til sín fólk með lof­orðum um aukin lífs­gæði. Hlust­and­inn áttar sig á því að þarna er á ferð­inni nútíma­legt „költ“ og finnur til veru­legrar sam­kenndar með fólk­inu sem lenti í klóm þess. Það var nefni­lega bara venju­legt fólk eins og ég og þú – fólk sem vildi ná mark­miðum sínum, kom­ast yfir áföll eða verða ham­ingju­sam­ara. 

Það sem gerir þætt­ina sér­stak­lega áhrifa­ríka er að stjórn­endur mark­þjálf­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins tóku öll sam­skipti við „kúnna“ sína upp á seg­ul­band. Þessi sam­skipti eru spiluð í þátt­unum og veita ein­staka inn­sýn í það hvernig þeir brutu fólkið niður og sann­færðu það síend­ur­tekið um að láta af hendi fé og völd yfir eigin lífi. 

Á sama tíma og þætt­irnir hvetja hlust­and­ann til þess að vera var um sig fjalla þeir um málið með ábyrgum hætti og gæta þess að skýra hlust­and­anum frá því að mark­þjálfar starfi almennt ekki með þessum ósið­lega hætti.

Þó að umfjöll­un­ar­efni þátt­anna sé nýtt þá er boð­skap­ur­inn gömul tugga: Ef eitt­hvað virð­ist of gott til að vera satt, þá er það lík­lega raunin. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár