Efnahagsleg velsæld þjóðarinnar „sjaldan gengið betur“

Þingmenn gagn­rýndu rík­is­stjórn fyrir upp­gjöf og spurð­ust fyrir um aðgerðir vegna verð­bólgu og yfir­vof­andi stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­banka Íslands.

Efnahagsleg velsæld þjóðarinnar „sjaldan gengið betur“
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Svaraði fyr­ir­spurnum Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur og Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur á þingi í dag. Mynd: Bára Huld Beck

„Þó að mis­tök hafi verið gerð þá þýðir ekki að gef­ast upp núna,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er hún spurði for­sæt­is­ráð­herra Katrínu Jak­obs­dóttur hvað rík­is­stjórnin hyggst gera vegna verð­bólgu og yfir­vof­andi stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­banka Íslands á morgun. 

Hafnar mistökum

Samkvæmt for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar er enn tími til þess að grípa til aðgerða sem gætu aukið stöð­ug­leika og styrkt stöðu heim­il­anna áður en að Alþingi fer í sum­ar­frí eftir þrjár vikur. Þá spurði Kristrún sér­stak­lega um leigu­bremsu og vaxta­bætur. 

„Að sjálf­sögðu eru stór mál undir sem er verið að ræða og kannski eitt af þeim stærstu fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar þar sem svo sann­ar­lega eru boð­aðar aðgerðir, bæði á tekju- og gjalda­hlið, til að slá á þenslu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og hafn­aði því að mis­tök hafi verið gerð af hálfu rík­is­stjórnar. 

For­sæt­is­ráð­herra var sam­mála for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar um að verð­bólgu þyrfti að lækka. Hins vegar minnti hún á aðgerðir rík­is­stjórnar í heims­far­aldr­inum COVID-19 sem skil­uðu auknum kaup­mætti meðal almenn­ings og á lífs­kjara­samn­ing frá 2019. „Þar voru ótal breyt­ingar boð­aðar og staðið við, hvort sem það var breyt­ing á skatt­kerf­inu og upp­taka þrepa­skipts skatt­kerfis, skatta­lækkun fyrir tekju­lægstu hópana, upp­bygg­ing á hús­næð­is­mark­aði, leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs eða efl­ing barna­bóta­kerf­is­ins.“ 

Kristrún hjó eftir skýr­ara svari og sagði þá for­sæt­is­ráð­herra fjár­mála­ætlun vera til með­ferðar á Alþingi og bætti við: „Við hækk­uðum hér skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta um 50% um ára­mótin og hækk­uðum hús­næð­is­stuðn­ing“. Ráðherra sagði verka­lýðs­hreyf­ing­una vera í hópi með inn­við­a­ráð­herra sem væri að skoða „hvernig mætti skapa betri ramma um leigu­markað“. 

„Sjaldan gengið betur“

Í fyr­ir­spurn sinni til fjár­mála­ráð­herra spurði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar um verð­bólg­una. „Við erum að sjá að Seðla­banki Íslands hefur ítrekað sagt að það sé ófært að hann einn beri byrð­arnar af því að berj­ast við verð­bólg­una.“ Í fram­haldi spurði for­maður Við­reisnar um stöðu frum­varps „[...]sem á að liðka fyrir og auka heim­ildir til rík­is­sátta­semj­ara[...].“

Fjár­mála­ráð­herra nefndi þá að atvinnu­þátt­taka hefði auk­ist en það var eitt af stærri mark­miðum efna­hags­stefnu rík­is­ins og brýndi ráð­herra fyrir mik­il­vægi umbóta á ramma vinnu­mark­aðslög­gjöf. Einnig sagði Bjarni að það hefði „sjaldan gengið betur“ að auka efna­hags­lega vel­sæld þjóð­ar­innar en þó  vantar upp á stöð­ug­leika. 

Þor­gerður Katrín gagn­rýndi núver­andi rík­is­stjórn fyrir ákvarð­ana­leysi er kemur að málum sem hafa mikla vigt í sam­fé­lag­inu. „[...] Ungt fólk, lág­tekju- og milli­tekju­fólk þarf að taka erf­iðu sam­tölin heima í eld­húsi um það hvernig eigi að brúa bilið því það kemur ekk­ert frá rík­is­stjórn­inni.“

„Ungt fólk, lág­tekju- og milli­tekju­fólk þarf að taka erf­iðu sam­tölin heima í eld­húsi um það hvernig eigi að brúa bilið því það kemur ekk­ert frá rík­is­stjórn­inni.“

Bjarni svar­aði gagn­rýn­inni og benti á mik­il­vægi þess að kæla hag­kerfið sökum of mik­illar þenslu. „Það er fullt atvinnustig. Kaup­máttur er mjög hár, hann er hærri en víð­ast ann­ars staðar. Kaup­máttur lægstu launa er líka hár á Íslandi. En þessu er ógnað af verð­bólg­unni og verð­bólgu­horfum.“ 

Fjár­mála­ráð­herra telur vert að hafa áhyggjur af þeim heim­ilum sem eiga erfitt vegna greiðslu­byrðar. „En við getum samt ekki horft fram hjá því á sama tíma að þrátt fyrir allt þá hafa verið hér nei­kvæðir raun­vextir. Eigna­verð hefur verið að hækka og lánin hafa borið nei­kvæða raun­vexti sem er merki­leg stað­reynd. Og þegar reikn­ingur heim­il­is­ins er gerður upp í heild sinni þá er staðan ekki jafn svört og ætla mætti af umræð­unni.“

Seðlabankinn að fórna heimilunum

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokk fólks­ins telur lík­legt að Seðla­banki Íslands hækki stýri­vexti að minnsta kosti um eitt pró­sentu­stig í fyrra­málið. Hún lét hörð orð falla í garð Seðla­banka­stjóra, gagn­rýndi völd Pen­inga­stefnu­nefndar og taldi bank­ann fórna heim­ilum lands­ins vegna „eigin mis­taka“.

„Það nær hrein­lega ekki nokk­urri átt að þrjár mann­eskjur í Seðla­bank­anum hafi meiri völd en rík­is­stjórnin, alþing­is­menn, sveit­ar­stjórnir og verka­lýðs­hreyf­ingin sam­an­lagt. Að kjörnir full­trúar lands­ins hafi minni áhrif á fjár­hag heim­il­anna en örfáir ein­stak­lingar uppi í Seðla­banka.“

Spurði Ást­hildur Lóa þá fjár­mála­ráð­herra: „Ætla fjár­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin að standa áfram á hlið­ar­lín­unni á meðan þrír nefnd­ar­menn pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar leiða þús­undir heim­ila og fyr­ir­tækja í glötun? Er ein­hver von til þess að hann og þessi rík­is­stjórn axli ein­hvern tím­ann ábyrgð sína gagn­vart heim­ilum lands­ins sem kjörnir full­trúar eða eruð þið bara búin að gefa þetta eftir?“

„Er ein­hver von til þess að hann og þessi rík­is­stjórn axli ein­hvern tím­ann ábyrgð sína gagn­vart heim­ilum lands­ins sem kjörnir full­trúar eða eruð þið bara búin að gefa þetta eftir?“

Bjarni svar­aði fyr­ir­spurn­inni á þá leið að rík­is­stjórnin væri ekki búin að gefa neitt eftir. „Við höfum sagt frá upp­hafi að okkar aðgerðir myndu ann­ars vegar snú­ast um það að nýta rík­is­fjár­málin til að styðja við lægri verð­bólgu og hins vegar að grípa til aðgerða til að verja stöðu þeirra sem eru við­kvæm­astir fyrir verð­bólgu­hækkun. Um það vitna aðgerðir okkar um síð­ast­liðin ára­mót og nú höfum við boðað að á þessu þingi verði lögð til breyt­ing á almanna­trygg­inga­kerf­inu til þess að hækka bætur í takt við verð­hækk­anir sem eru umfram for­sendur fjár­laga.“

Sjálstæður seðlabanki

Um stöðu Seðla­bank­ans sagði Bjarni: „Hér á þing­inu hefur verið sam­staða um að reka sjálf­stæðan seðla­banka, hafa hér sjálf­stæða pen­inga­stefnu­nefnd og fela Seðla­bank­anum það verk­efni að vernda verð­gildi pen­ing­anna og að stefnt skuli að því að verð­bólga í land­inu sé að jafn­aði í kringum 2,5%, og að færa þurfi fram sér­staka grein­ar­gerð ef verð­bólgan fer út fyrir vik­mörk sem eru þá 4%. Þetta er það grund­vall­ar­kerfi sem við erum með.“

Ást­hildur Lóa hélt gagn­rýni sinni áfram og sagði meðal ann­ars: „Rík­is­stjórnin og pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans bera fulla ábyrgð á þeim hörm­ungum sem brátt dynja yfir tug­þús­undir heim­ila. Hversu langt ætlar rík­is­stjórnin að leyfa þessu að ganga áður en hún grípur í taumana?“.

Bjarni ítrek­aði mik­il­vægi Seðla­bank­ans og þau stjórn­tæki sem hann hefur gegn verð­bólg­unni. „Ef það er verð­bólga hér á landi, stöðug, og verð­bólgu­horfur eru slæmar mun það að sjálf­sögðu bitna á heim­il­unum, fyrst á þeim sem hafa minnst milli hand­anna. Að sjálf­sögðu mun það brjót­ast út í kjörum hús­næð­is­lána og í öllum vaxta­kjörum á mark­aðnum. Hækkanir Seðla­bank­ans eru til þess að slá á vænt­ingar um það hversu lengi þetta tíma­bil mun vara. En þetta er grund­vall­ar­um­ræða um það hvort við eigum yfir höfuð að láta Seðla­bank­ann hafa vaxta­á­kvörð­un­ar­tækið.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár