Vorpestin lét á sér kræla í ár og þá gátu vinnualkar loksins leyft sér að horfa ótæpilega á sjónvarpið án samviskubits. Hér á bæ var gerð heiðarleg tilraun til að horfa á That 90’s Show á Netflix.
Þau okkar sem skemmtu sér yfir fyrirrennaranum, sem hét í línulegri dagskrá Svona var það sjötíuogsex, eða That 70’s Show, glöddumst og héldum að við ættum gott í vændum. Eftir tíu mínútur var þessi hvimleiði uppvakningur lagður til hinstu hvílu með einum fjarstýringarsmelli. Nostalgíuneistinn hafði engu að síður kviknað í brjósti mínu og Disney+ svaraði kallinu með sjö þáttaröðum af Malcolm in the Middle.
Ef til vill hafði hitamók áhrif á dómgreindina en kannski eru þetta bestu þættir allra tíma og ég stefni að því að mæla jafn oft með þeim og Jón Gnarr mælti með þáttunum The Wire. Wilkerson klanið er versta fjölskylda í heimi og nánast eins og The Upside down útgáfa af Huxtable fjölskyldunni (ef við leggjum til hliðar seinni tíma uppljóstranir um fyrirmyndarföðurinn sjálfan). Við sem þraukuðum í gegnum uppeldisaðferðir sextíu og átta kynslóðarinnar erum öllum hnútum kunnug í heimilislífinu sem ber fyrir sjónir í þessari skemmtilegu seríu. Hver þáttur er eins og fallega ofið veggteppi þar sem hver einasti þráður gegnir mikilvægu hlutverki. Leikaravalið er óaðfinnanlegt og Bryan Cranston, mögulega betur þekktur sem Walter White í Breaking Bad, fer á kostum sem gamanleikari.
Grínarar á netinu hafa haldið því fram að Breaking Bad sé í raun og veru löng martraðasena í höfðinu á Hal, pabbans í Malcolm in the Middle. Ef ég ætti eina ósk þá væri hún sú að geta skrifað svona fyndna þætti … ég meina eina ósk á eftir óskinni um frið á jörð auðvitað.
Handritshöfundurinn og nýjasta átrúnaðargoðið, Maggie Bandur, er ein þeirra sem kom að þáttunum. Hún hefur einnig skrifað fyrir Community (ekki horfa fyrst á fyrstu seríu, byrjið á annarri og horfið á þá fyrstu þegar ykkur þyrstir í meira. Ekki spyrja spurninga!) Maggie er ein af ósýnilegu hetjum sjónvarpsins, handritshöfundur sem fær örugglega minna borgað en barnastjörnurnar sem leika í þáttunum, konan sem kyndir örbylgjuofninn minn.
Athugasemdir