Fleishman í bobba

Sófa­kartaflan rýnir í snemm­mið­aldra hjón í krísu í þátt­unum Fleis­hman is in trouble.

Fleishman í bobba
Snemm­mið­aldra i krísu Hjónin eru leikin af Claire Danes og og Jesse Eisen­berg.

Í síð­ustu viku rann það upp fyrir mér að ef ég geri ekk­ert í mínum málum, þá stefni ég hrað­byri inn í mið­lífskrísu. Ef til vill var það melankól­ísk feg­urð síð­sum­ars­ins sem hratt þessu ástandi af stað en lík­legra þó var það sú upp­götvun að ég muni aldrei eign­ast fal­lega báru­járns­setrið við Suð­ur­götu 4.

Ég rölti fram­hjá hús­inu í sól­inni og dáð­ist að því eins og svo oft áður. Skyndi­lega laust því í koll­inn á mér að ég væri orðin full­orðin og miðað við núver­andi fjár­hag myndi ég aldrei hafa efni á hús­inu, sem ég hef látið mig dreyma um síðan ég var ungur létt­got­hari. Frávita af skelf­ingu rauk ég heim í blokkar­í­búð­ina og faldi hrörn­andi ásjónu mína undir sæng. Um kvöldið náði ég að sefa mig með óhóf­legu sjón­varps­glápi og ein­hvern veg­inn vildi það til að þátta­röðin Fleis­hman is in trouble fann mig einmitt á þeirri stundu.

„Ef til vill var það melankól­ísk feg­urð síð­sum­ars­ins sem hratt þessu ástandi af stað“

Þætt­irnir eru byggðir á sam­nefndri skáld­sögu frá árinu 2019 eftir Taffy Brodesser-Akner og snú­ast um snemm­mið­aldra hjón í krísu. Sagan fjallar meðal ann­ars um sam­skipti gagn­kyn­hneigðra para og sýnir á listi­legan hátt hvernig stétta­kvíði, krafan um hefð­bundin kyn­hlut­verk og streitu­vald­andi nútími geta leikið fólk grátt og skemmt ást­ar­sam­bönd. Stefnu­móta­smá­forrit koma einnig við sögu og það er átak­an­legt að horfa á mann á mínum aldri fóta sig í þeim for­garði vítis í fyrsta sinn.

Upp­bygg­ing þátt­anna og hvernig frá­sögnin fær­ist frá eig­in­mann­inum og loks til eig­in­kon­unnar er ein­stak­lega vel gert. Áhorf­endur fá fyrst um sinn aðeins hálfa sögu en þegar heild­ar­myndin er teiknuð upp, kemur í ljós að sögur eru auð­vitað aldrei ein­hliða, sér í lagi ekki þegar um er að ræða hjóna­skiln­aði. Hjónin eru leikin af Claire Danes og og Jesse Eisen­berg. Sögu­maður þátt­anna er leik­inn af Lizzy Caplan sem, á eft­ir­minni­legan hátt, lék and­fé­lags­legu kúl-stelpuna í mynd­inni Mean girls. Hún leikur þol­in­móða æsku­vin­konu eig­in­manns­ins í þátt­unum um Fleis­hman.

Þegar ég var ung­lingur lá ég í þátt­unum My so called life. Mér þótti því við­eig­andi að jafn­aldra mín, Claire Danes, sem lék aðal­hlut­verkið í þeim þáttum, skyldi nú birt­ast mér aftur þegar ég rambaði á barmi sjálfs­mynd­ar­kreppu mið­aldra konu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sófakartaflan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár