1131. spurningaþraut og sú síðasta — í bili, vænti ég

1131. spurningaþraut og sú síðasta — í bili, vænti ég


Þetta verður síð­asta spurn­inga­þrautin mín hér á þessum vett­vangi — í bili að því er ég best veit. Vænt­an­lega verður þráð­ur­inn tek­inn upp aftur í haust. En í til­efni af tíma­mót­unum verður þessi þraut helguð hinu síð­asta ...

Fyrri auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan er úr kvik­mynd einni frá 1961 sem er fræg meðal ann­ars vegna þess að hún varð síð­asta mynd tveggja afar frægra kvik­mynda­stjarna. Þið þurfið að hafa nöfnin á þeim báðum rétt til að fá stig. Svo er síð­asta lár­við­ar­stigið fyrir að þekkja einnig nafnið á bíó­mynd­inni.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Síðustu orð konu nokk­urrar munu hafa verið: „Afsakið mig, herra.“ Þá hafði hún óvart stigið ofan á tána á böðl­inum sem var að búa sig undir að háls­höggva hana á aftöku­stað. Hver var þessi kurt­eisa og/eða vel upp alda kona?

2.  Renaissance er síð­asta plata hvaða söng­stjörnu? (Þótt hún verði sjálf­sagt ekki sú allra síð­asta þegar upp verður staðið.)

3.  Síðari heims­styrj­öld­inni lauk í ágúst 1945. Síðustu stóru orr­ustu stríðs­ins hafði hins vegar lokið nokkru fyrr, eða 22. júní og hafði þá staðið af mik­illi heift síðan í byrjun apríl. Við hvaða stað er sú orr­usta kennd?

4.  Hvað heitir síð­asti jóla­sveinn­inn sem kemur til byggða?

5.  Síðustu bækur Halldórs Laxness (fyrir utan greina­söfn og dag­bók­ina Dagar hjá múnkum) voru fjórar end­ur­minn­inga­bækur sem komu út 1975-1980. Nefnið þrjár af þessum fjórum bókum.

6.  Hvað hét síð­asta konan sem var tekin af lífi hér á landi af yfir­völd­unum?

7.  Hvað heitir síð­asta (ysta) reiki­stjarnan í sól­kerfi okkar?

8.  Hvað heitir síð­asta bókin í þrí­leiknum Hringa­drott­ins­sögu eða Lord of the Rings?

9.  Hver var síð­asti keis­ari vest­ur­róm­verska rík­is­ins?

10.  Hver var síð­asta Bítla­platan sem gefin var út um það bil sem þeir hættu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi freska eftir Leonardo da Vinci heitir ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  María Antoinette drottn­ing sem háls­höggvin var 1793 meðan franska bylt­ingin stóð sem hæst.

2.  Beyonce.

3.  Okinawa.

4.  Kerta­sníkir.

5.  Þær fjórar heita Í tún­inu heima, Heiman ég fór, Sjömeist­ara­sagan og Grikk­landsárið.

6.  Agnes. Hún var Magn­ús­dóttir en skírn­ar­nafnið dugar.

7.  Neptúnus.

8.  The Return of the King, Hilmir snýr heim — hvort heldur er rétt.

9.  Rómúlus Ágústúlus. Ann­að­hvort nafn­anna dugar.

10.  Let It Be.

***

Svör við síð­ustu auka­spurn­ing­unum (í bili!):

Efri myndin sýnir Montgomery Clift, Marilyn Monroe og Clark Gable, aðal­leik­ara mynd­ar­innar The Misfits. Það var síð­asta mynd Monroe og Gable. Monroe hóf að vísu að leika í annarri mynd en lést áður en náð­ist að klára hana.

Mynd Leon­ar­dos heitir Síðasta kvöld­mál­tíðin.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorbergur Leifsson skrifaði
    Þessi var erfið 2+1
    0
  • KJÁ
    Karl Jóhann Ásmundsson skrifaði
    Alveg voðalegt að missa þennan fasta punkt úr tilverunni. Auðvitað þarf Illugi sumarfrí eins og annað fólk. Spurning um að fá inn einhvern góðan í sumarafleysingar.
    0
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Enn ein fræðsluuppsprettan þornuð í bili. Við bíðum eftirvæntingafull.
    0
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Þetta náttúrulega gengur ekki. Hafi þú þökk fyrir þetta Illugi. Lesenda vegna og fjölmiðilsins vona ég að hléið verði ekki langt því ég veit að það eru fleiri en ég sem opna alltaf Stundina/Heimildina á hverjum degi bara vegna þessarar spurningaþrautar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár