Spurningaþraut Illuga 16. júní 2023

Fyrri mynd:

Hvaða ár var þessi fræga ljósmynd tekin?

Seinni mynd:

Hver er þetta?

1.  Hver var fyrsta konan sem var leik­hússtjóri á Íslandi?

2.  Hver er stærsta kattar­tegund heimsins nú um stundir?

3.  Stytta af hvaða skáldi er næst Hljóm­skálanum í Reykjavík?

4.  Hvaða fótboltalið frá Spáni vann Evrópu­deildina í karla­flokki í úrslita­leik fyrir viku síðan?

5.  Hver skrifaði skáld­söguna Gerplu?

6.  Hvaða íslenski banki kom á fót á sínum tíma hinum alræmdu Icesave-reikningum?

7.  Við brúðkaup í tilteknu þorpi urðu veislu­haldarar uppi­skroppa með vín. Þar sem Jesús var einn af veislu­gestunum reyndist þó auðvelt að redda því. En hvar var þetta brúðkaup haldið?

8.  Hver er fimmta reikistjarnan frá sólinni?

9.  Nelson Piquet heitir karl einn sem nú er sjötugur en varð á níunda áratug síðustu aldar þrisvar heims­meistari í tiltekinni grein. Hvaða grein var það? – og svarið þarf að vera hárnákvæmt!

10.  Hvað fann litla gula hænan?

11.  Hver samdi ljóða­bókina Enginn dans við Ufsaklett: Ástin ein tauga­hrúga – og fékk tilnefningu til bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs?

12.  Í hvaða Evrópu­landi er borgin Poznań?

13.  Sú mynd sem flestir hafa lækað á Instagram (rúmlega 75 milljón manns) var tekin 18. desember síðastliðinn, sem sé 2022. Raunar er um að ræða nokkrar myndir en langmest ber á einum ungum karlmanni. Hver ætli það sé?

14.  Við hvaða þéttbýlis­stað er Robert James Fischer grafinn?

15.  Jórunn Sigurðar­dóttir lét af störfum hjá RÚV Rás eitt fyrir viku en hún hafði í árafjöld annast þar vinsælan þátt sem nefnist Orð um ... hvað?

Svör við mynda­spurningum:

Fyrri myndin var tekin við innrásina í Normandí 1944. Seinni myndin er af söng­konunni Bríeti.

Svör við öðrum spurningum:

1.  Vigdís Finnboga­dóttir.  –  2.  Tígris­dýrið.  –  3.  Jónas Hallgrímsson.  –  4.  Sevilla.  –  5.  Halldór Laxness.  –  6.  Lands­bankinn.  –  7.  Í Kana.  –  8.  Júpíter.  –  9.  Í Formúlu 1.  Kapp­akstur dugar ekki!  –  10.  Fræ.  –  11.  Elísabet Jökuls­dóttir.  –  12.  Póllandi.  –  13.  Leo Messi. Myndin er af fagnaðar­látum hans og félaga hans í argentínska lands­liðinu í fótbolta þegar Argentínu­menn urðu heims­meistarar.  –  14.  Selfoss.  –  15.  Bækur.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár