1130. spurningaþraut: Hér er spurt um Egiftaland

1130. spurningaþraut: Hér er spurt um Egiftaland

Þema­þraut dags­ins er um Egifta og Egifta­land.

Fyrri auka­spurn­ing — hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét síð­asti þjóð­höfð­ingi Egifta­lands áður en Róm­verjar tóku þar völd laust fyrir upp­haf tíma­tals okkar?

2.  Hvað heitir borgin sunn­ar­lega í Egifta­landi þar sem er að finna gríð­ar­lega stíflu í ánni Níl?

3.  Hvað er hið egifska híeróg­lýfur?

4.  Hvað heitir höf­uð­borg Egifta­lands?

5.  Hverjir eru hinir egif­sku koptar?

6.  Hversu margir eru Egiftar — nokkurn veg­inn? Eru þeir 24 millj­ónir — 64 millj­ónir — 104 millj­ónir — eða 144 millj­ónir?

7.  Hann lét reisa sér graf­hýsi sem talið var eitt af hinum sjö undrum forn­aldar og hið eina sem enn stendur. Hvað hét hann?

8.  Hann varð for­seti Egifta­lands korn­ungur 1954 og lést í emb­ætti aðeins 52 ára árið 1970. Hann var umdeildur og leiddi þjóð sína út í stríð við Ísrael 1967 sem tap­að­ist eftir aðeins sex daga. Hvað hét hann?

9.  Eft­ir­maður þessa for­seta fékk aftur á móti frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir hlut sinn af samn­ingum við Ísrael, en var vegna þess myrtur 1981. Hvað hét hann?

10.  Einn Egifti hefur fengið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Hver er sá?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar, svör:

1.  Kleópatra.

2.  Aswan.

3.  Forneg­ifska mynd­letrið.

4.  Kaíró.

5.  Kristinn söfn­uður Egifta.

6.  104 millj­ónir.

7.  Khufu eða Keóps.

8.  Nasser.

9.  Sadat.

10.  Mahfouz.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Nefer­títí drottn­ing.

Á neðri mynd­inni er Mo Salah fót­bolta­karl.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár