Stærsta fjárfesting ríkisins í Íslandsögunni – 210 milljarðar í uppbyggingu nýs Landspítala

For­sæt­is­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra kynntu í dag áætlun um upp­bygg­ingu inn­viða heil­brigð­is­kerf­is­ins til árs­ins 2030. Í því felst meðal ann­ars að verja 210 millj­örðum króna í upp­bygg­ingu nýs Land­spít­ala. Verk­efnið er að fullu fjár­magnað. Ljóst er að geðsviði spít­al­ans verður fundið nýtt hús­næði.

Stærsta fjárfesting ríkisins í Íslandsögunni – 210 milljarðar í uppbyggingu nýs Landspítala
Land­spít­ali Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra á kynn­ing­ar­fund­inum á Land­spít­ala í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er svo­lítið spenntur,“ sagði Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra, á svölum Land­spít­al­ans við Hring­braut fyrr í dag þar sem gott útsýni var yfir þær nýju bygg­ingar nýs Land­spít­ala sem eru að rísa.

„Maður leyfir sér að vera svo­lítið bjart­sýnn og spenntur að sjá þetta rísa. Þetta er auð­vitað mik­il­væg fram­kvæmd, mik­il­vægt verk­efni fyrir heil­brigð­is­kerfið og fólkið í land­inu til fram­tíðar,“ sagði hann. 

Með­ferð­ar­kjarniFram­kvæmdir við nýjan með­ferð­ar­kjarna Land­spít­al­ans við Hring­braut eru í fullum gangi þessa dag­ana.

Willum Þór, ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra kynntu í dag áætlun um upp­bygg­ingu inn­viða heil­brigð­is­kerf­is­ins sem felst meðal ann­ars í því að verja 210 millj­örðum í upp­bygg­ingu nýs Land­spít­ala. Verk­efnið er að fullu fjár­magnað í þeirri fjár­mála­á­ætlun sem er nú til umfjöll­unar á Alþingi og gildir út árið 2028.

Í fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára er lögð rík áhersla á að halda áfram fjár­magn­aðri inn­viða­upp­bygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Frá árinu 2010 hefur verið fjár­fest í upp­bygg­ingu Land­spít­ala fyrir 28,7 millj­arða króna, þar af fyrir 10,3 millj­arða króna árið 2022. Á þessu ári er áætlað að fjár­fest­ingin ríf­lega tvö­fald­ist á milli ára og nemi 21,5 millj­örðum króna.

Heild­ar­á­ætlun NLSH um fram­kvæmdir við Land­spít­ala hljóðar upp á um 210 millj­arða króna


Bjarni segir um mikil tíma­mót að ræða. „Tíma­mótin fel­ast í því að við erum í fyrsta sinn að lýsa sýn okkar á það hvernig við getum klárað, ekki bara þennan fyrsta áfanga heldur líka annan áfang­ann sömu­leiðis sem gæti þá verið í beinu fram­haldi af þess­ari fjár­mála­á­ætlun sem nær til árs­ins 2027. Núna í ár erum við að fara í fram­kvæmdir sem eru að umfangi jafn miklar og við höfum náð að fram­kvæma síð­ustu tíu árin. Þetta sýnir þessi miklu tíma­mót sem eru að verða í verk­efn­inu og strax á næsta ári erum við farin að gera ráð fyrir 25 millj­arða fram­kvæmdum sem eru gríð­ar­miklar fram­kvæmdir í öllu sögu­legu sam­hengi, og ekki nóg með að það verði á næsta ári heldur næstu þrjú árin erum við að gera ráð fyrir slíku umfangi sem er bara til vitnis um það að við erum núna í miðri stærstu fjár­fest­ingu rík­is­ins í sög­unni. En í heild sinni þegar við tökum annan áfang­ann með þá erum við að horfa á um 210 millj­arða heild­ar­um­fangi,“ segir Bjarni. 

Settur var á fót stýri­hópur um nýjan Land­spít­ala árið 2020 sem ber ábyrgð á sam­hæf­ingu og stjórn meg­in­þátta verk­efn­is­ins. Hópnum er ætlað að tryggja skýra for­gangs­röðun og góða nýt­ingu fjár­muna. Hefur stýri­hóp­ur­inn nú birt fyrstu áfanga­skýrslu sína sem byggir á upp­lýs­ingum frá NLSH ohf., bygg­ing­ar­að­ila nýbygg­inga í Land­spít­ala­þorp­inu við Hring­braut, um heild­ar­á­ætlun verk­efn­is­ins á tíma­bil­inu 2010-2030. 

Fjárheimildir umfram framkvæmdir

Nýjar ákvarð­anir liggja fyrir vegna næsta áfanga verk­efn­is­ins, meðal ann­ars um flutn­ing á geð­þjón­ustu í nýja ein­ingu, nýja og bætta aðstöðu vegna krabba­meins­þjón­ustu og öldr­un­ar­þjón­ustu auk umfangs­mik­illar fjár­fest­ingar í tækjum, bún­aði og stoð­þjón­ustu. Willum segir ekki liggja fyrir hvar ný geð­deild­ar­bygg­ing muni rísa. 

KynningFrá blaða­manna­fund­inum á Land­spít­al­anum í dag.

Spurður hvort þessi upp­bygg­ing sem kynnt var í dag hefði ekki þurft að eiga sér stað mun fyrr segir Bjarni: „Þetta hefur auð­vitað átt sér gríð­ar­lega langan aðdrag­anda og skóflustungan að fyrstu mann­virkj­unum sem hafa risið hér á land­spít­ala­svæð­inu var tekin 2015. Við höfum full­fjár­magnað öll verk­efni frá þeim tíma. Það lýsir sér meðal ann­ars í því að Alþingi hefur veitt fjár­heim­ildir umfram það sem hefur verið hægt að fram­kvæma fyrir. Oft er því haldið fram að það fáist ekki fjár­heim­ildir og þess vegna sé ekki eitt­hvað fram­kvæmt en því hefur alveg verið öfugt farið hér, en sum verk­efni eru bara af þeim toga að hönn­un­ar­tím­inn og und­ir­bún­ings­tím­inn er jafn mik­il­vægur og fram­kvæmda­tím­inn, og þegar menn loks­ins kom­ast á fram­kvæmda­stigið sem við erum að gera núna af fullum þunga þá ger­ast hlut­irnir hratt.“

Langtíma hugsun

Willum segir að upp­bygg­ingin hefði alveg örugg­lega mátt ger­ast fyrr: „Stundum erum við kannski að hugsa til of skamms tíma en hreyfum okkur hægt. Hér erum við að reyna að hugsa til lengri tíma, horfa á sam­fé­lags­þró­un­ina, horfa á fólks­fjölg­un­ina, horfa á breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar, horfum á fjölgun ferða­manna, horfum á nýjar áskor­anir í geð­heil­brigð­is­málum, meira áreiti, aukn­ingu þegar kemur að lífs­stílstengdum sjúk­dómum. Við erum að passa upp á að efna­hags­að­stæður hverju sinni hindri okkur ekki í að byggja upp heil­brigð­is­kerfi,“ segir hann. 

Áætlað er að fyrsta fasa upp­bygg­ing­ar­innar ljúki að mestu leyti innan tímara­mma nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar. Nýtt sjúkra­hótel var fyrsta verk­efnið sem lokið var við en það var tekið í notkun vorið 2019. Öðrum verk­efnum miðar vel áfram og nýjar lyk­il­bygg­ingar Land­spít­ala rísa hratt. Þar má helst nefna svo­kall­aðan með­ferð­ar­kjarna og rann­sókna­hús sem munu gjör­bylta aðstöðu Land­spít­ala til hins betra. Fyrsti áfangi felur einnig í sér nýbygg­ingu við end­ur­hæf­ing­ar­deild­ina við Grensás og umfangs­mikla fjár­fest­ingu í margs konar tækjum, bún­aði og stoð­þjón­ustu. 

Forgangsraðað í þágu heilbrigðisþjónstu

Annar áfangi verk­efn­is­ins felur í sér upp­bygg­ingu dag- og göngu­deilda, legu­deilda og ann­arra mik­il­vægra þjón­ustu­ein­inga og inn­viða, sem munu nýt­ast öllu heil­brigð­is­kerf­inu. Einnig er unnið að því að meta nýt­ingu eldri bygg­inga og þörf á nýjum bygg­ingum. Við þá vinnu verður horft til þarfa sam­fé­lags­ins, starfs­fólks og fram­tíð­ar­hlut­verks Land­spít­ala. Þá er jafn­framt unnið að skipu­lagi á fjöl­mörgum mik­il­vægum þjón­ustu­ein­ingum, meðal ann­ars geð-, krabba­meins- og öldr­un­ar­þjón­ustu. Nú þegar hefur verk­efna­hópur á vegum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins skilað af sér skýrslu um fram­tíð­ar­sýn hús­næðis fyrir geð­þjón­ustu Land­spít­ala. Á grunni hennar hefur verið tekin ákvörðun um upp­bygg­ingu nýrrar geð­heil­brigð­is­ein­ingar sem mun koma í stað núver­andi hús­næðis geð­þjón­ustu. Kostn­aður við þessa upp­bygg­ingu er áætl­aður um 13 millj­arða króna. 

Katrín segir aðal tíð­indi dags­ins séu þau að þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi frestað ýmsum fram­kvæmdum vegna stöð­unnar í hag­kerf­inu þá for­gangsraði hún fjár­fest­ingum í heil­brigð­is­þjón­ustu. „Við sendum líka þau skýru skila­boð að efna­hags­sveifl­urnar hafi ekki áhrif á okkar áætl­anir í því. Við erum alltaf að hugsa út frá þessum vel­sæld­ar­á­herslum,“ segir hún. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JAT
    Jon Arvid Tynes skrifaði
    Ég get ekki séð að nokkuð hafi verið sagt um hvernig á að manna spítalann og hvernig á að stöðva atgerfisflótta frá Landspítalanum. Það er tiltölulega auðvelt að byggja, en mun erfiðara að reka starfsemina.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár