1101. spurningaþraut: „Í kvöld lýkur vetri ...“ og hvað svo?

1101. spurningaþraut: „Í kvöld lýkur vetri ...“ og hvað svo?

Fyrri aukaspurning:

Persónan hér að ofan kom fyrst fram á sjónarsviðið 1. maí 1999 og heitir ... hvað?

***

Aðalspurningar:

1.  Hvaða ár var fyrsta fyrsta maí ganga á Íslandi? Muna má einu ári.

2.   Í dag heldur upp á 69 ára afmæli sitt bandarískur tónlistarmaður sem er frægastur fyrir lag sem hann samdi í víðfræga kvikmynd árið 1984 og báru lagið og kvikmyndin sama nafn. Þetta var mynd um yfirnáttúruleg efni en þó fyrst og fremst hneggjandi grínmynd. Tónlistarmaðurinn heitir Ray Parker jr. en hvað heitir lagið?

3.  „En í kvöld lýkur vetri / sérhvers vinnandi manns, / og á morgun ...“ Hvað gerist á morgun?

4.  Á þessum degi 1995 voru forsetakosningar í Frakklandi og nýr maður var kjörinn forseti. Hann gegndi svo embættinu samfleytt til 2007. Hvað hét hann?

5.  Á þessum degi 2004 gengu hvorki fleiri né færri en tíu ríki í Evrópusambandið. Þar á meðal var eitt fyrrum Júgóslavíuríki. Hvaða ríki var það?

6.  Á þessum degi 1961 var eyríki eitt lýst sósíalískt lýðveldi og lýðræðislegar kosningar afnumdar. Hvaða ríki var það?

7.  Það var raunar ekki 1. maí, heldur fyrsta apríl árið 2002 sem andaðist hér á landi frægur útvarpsmaður, djassgeggjari og pólitískur baráttumaður utarlega á vinstri vængnum. Hvað hét hann?

8.  Á þessum degi árið 1945 svipti kona nokkur sig lífi eftir að hafa áður unnið það grimmdarverk að myrða sex börn sín. Hvað hét þessi kona? Eftirnafn hennar dugar.

9.  Á þessum degi 1899 fæddist tónskáld og síðar var gerð kvikmynd um ævi þess sem nefndist Tár úr steini. Hvað hét tónskáldið?

10.  Á þessum degi árið 1486 gekk sjómaður að nafni Kristófer Kólumbus fyrir drottningu eina á Spáni og kynnti henni hugmyndir sínar um að finna nýja siglingaleið til Kína með því að sigla í vestur yfir Atlantshafið. Hvað hét þessi drottning?

***

Seinni aukaspurning:

Þessi ánægði karl myndi í dag halda upp á 138 ára afmælið sitt ef hann væri enn á lífi. Hvað hét hann?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  1923. Rétt telst því 1922-1924.

2.  Ghostbusters. Parker var reyndar sakaður um að hafa stolið laginu frá Huey Lewis and the News og var að lokum gerð sátt í því máli.

3.  „... skín maísól.“

4.  Chirac.

5.  Slóvenía.

6.  Kúba.

7.  Jón Múli Árnason.

8.  Hún hét Magda Goebbels. Eiginmaður hennar Josef svipti sig einnig lífi.

9.  Jón Leifs.

10.  Ísabella.

***

Svör við aukaspurningum:

Svampur Sveinsson er á fyrri myndinni.

Á þeirri seinni er Jónas Jónsson frá Hriflu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
5
GreiningHorft til Evrópu

„Já“ þarf mörg­um sinn­um en „nei“ bara einu sinni

Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á morg­un leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in­um síð­ar að mati Ól­afs Þ. Harð­ar­son­ar, pró­fess­ors emer­it­us. Verði „já“ nið­ur­stað­an þyrfti að kom­ast yf­ir marga þrösk­ulda áð­ur en Ís­land gengi í ESB, hvað þá tæki upp evru. Mörg rök „nei“-hreyf­ing­ar­inn­ar séu einnig rök gegn áfram­hald­andi veru í EES.
Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp
6
InnlentHorft til Evrópu

Vildu ekki koma aft­ur til Ís­lands með 100 manna hóp

Vil­borg Arna Giss­ur­ar­dótt­ir tók á móti 100 frönsk­um kon­um sem komu hing­að til að keppa í vetr­arí­þrótt­um. Kostn­að­ur­inn kom í bak­ið á skipu­leggj­end­um móts­ins sem ákváðu að fara næst til Finn­lands. Finn­ar hafa nýtt styrki ESB við upp­bygg­ingu heim­skauta­ferða­mennsku, en Vil­borg vann að verk­efni í byggða­þró­un á Suð­ur­landi sem fékk 100 millj­óna styrk þeg­ar Ís­land var síð­ast í að­ild­ar­við­ræð­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
4
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár