1100. spurningaþraut: Þemaþraut um Kanada

1100. spurningaþraut: Þemaþraut um Kanada

Þema dags­ins er Kanada.

Fyrri auka­spurn­ing: Hvaða kanadísku konu má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða borg í Kanada varð þunga­miðja Íslend­inga­byggðar þar á ofan­verðri 19. öld og er raunar enn?

2.  Hvað er merki­legt við stað­inn L'Anse aux Meadows á Nýfundna­landi?

3.  Um þessar mundir eru tvær konur lík­lega fræg­ustu rit­höf­undar Kanada. Önnur skrif­aði vís­inda­skáld­sögu eða öllu heldur fram­tíð­ar­spá sem varð met­sölu­bók. Ekki dró úr vin­sældum bók­ar­innar þegar feyki­vin­sæl sjón­varps­s­ería var gerð eftir bók­inni. — Hin fékk Nóbels­verð­laun 2013, fyrst kanadískra höf­unda, og er einkum fræg fyrir smá­sögur. Nefnið aðra þess­ara kvenna. Ef þið hafið bæði nöfnin rétt, þá fæst auka­stig.

4.  Hvað heitir svo höf­uð­borgin í Kanada?

5.  Á fána Kanada er lauf­blað. Af hvaða tré er það lauf­blað?

6.  Justin Trudeau for­sæt­is­ráð­herra Kanada er sonur karls sem einnig gegndi sama emb­ætti. Hvað hét pabb­inn að for­nafni?

7.  Hvað heitir stærsti fló­inn við Kanada?

8.  Nelly Furtado — k.d.lang — Avril Levigne — Joni Mitchell — Alanis Morri­sette — Taylor Swift — Shania Twain. Hver af þessum söng­konum er EKKI kanadísk? Tekið skal fram að það gildir um aðeins eina þeirra.

9.  Mikill fjöldi eyja til­heyrir Kanada. Hvað heitir sú stærsta?

10.  Hversu margir eru íbúar Kanada nokkurn veg­inn? Eru þeir 10 millj­ónir — 40 millj­ónir — 70 millj­ónir — eða 110 millj­ónir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá fyrir miðju þriðju fjöl­menn­ustu borg Kanada úr lofti. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Winnipeg.

2.  Þar hafa fund­ist rústir af byggð nor­rænna manna.

3.  Atwood er sú fyrri (skrif­aði Sögu þern­unnar), Munro sú síð­ari og fékk Nóbels­verð­launin.

4.  Ottawa.

5.  Hlynur.

6.  Pierre.

7.  Hudson.

8.  Taylor Swift er ekki kanadísk.

9.  Baffins­land.

10.  40 millj­ónir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Celine Dion.

Á neðri mynd er Vancouver.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár