1101. spurningaþraut: „Í kvöld lýkur vetri ...“ og hvað svo?

1101. spurningaþraut: „Í kvöld lýkur vetri ...“ og hvað svo?

Fyrri auka­spurn­ing:

Persónan hér að ofan kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið 1. maí 1999 og heitir ... hvað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ár var fyrsta fyrsta maí ganga á Íslandi? Muna má einu ári.

2.   Í dag heldur upp á 69 ára afmæli sitt banda­rískur tón­list­ar­maður sem er frægastur fyrir lag sem hann samdi í víð­fræga kvik­mynd árið 1984 og báru lagið og kvik­myndin sama nafn. Þetta var mynd um yfir­nátt­úru­leg efni en þó fyrst og fremst hneggj­andi grín­mynd. Tón­list­ar­mað­ur­inn heitir Ray Parker jr. en hvað heitir lagið?

3.  „En í kvöld lýkur vetri / sér­hvers vinn­andi manns, / og á morgun ...“ Hvað ger­ist á morgun?

4.  Á þessum degi 1995 voru for­seta­kosn­ingar í Frakk­landi og nýr maður var kjör­inn for­seti. Hann gegndi svo emb­ætt­inu sam­fleytt til 2007. Hvað hét hann?

5.  Á þessum degi 2004 gengu hvorki fleiri né færri en tíu ríki í Evr­ópu­sam­bandið. Þar á meðal var eitt fyrrum Júgóslavíu­ríki. Hvaða ríki var það?

6.  Á þessum degi 1961 var eyríki eitt lýst sós­íal­ískt lýð­veldi og lýð­ræð­is­legar kosn­ingar afnumdar. Hvaða ríki var það?

7.  Það var raunar ekki 1. maí, heldur fyrsta apríl árið 2002 sem and­að­ist hér á landi frægur útvarps­maður, djass­geggj­ari og póli­tískur bar­áttu­maður utar­lega á vinstri vængnum. Hvað hét hann?

8.  Á þessum degi árið 1945 svipti kona nokkur sig lífi eftir að hafa áður unnið það grimmd­ar­verk að myrða sex börn sín. Hvað hét þessi kona? Eft­ir­nafn hennar dugar.

9.  Á þessum degi 1899 fædd­ist tón­skáld og síðar var gerð kvik­mynd um ævi þess sem nefnd­ist Tár úr steini. Hvað hét tón­skáldið?

10.  Á þessum degi árið 1486 gekk sjó­maður að nafni Krist­ó­fer Kólumbus fyrir drottn­ingu eina á Spáni og kynnti henni hug­myndir sínar um að finna nýja sigl­inga­leið til Kína með því að sigla í vestur yfir Atl­ants­hafið. Hvað hét þessi drottn­ing?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi ánægði karl myndi í dag halda upp á 138 ára afmælið sitt ef hann væri enn á lífi. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  1923. Rétt telst því 1922-1924.

2.  Ghost­busters. Parker var reyndar sak­aður um að hafa stolið lag­inu frá Huey Lewis and the News og var að lokum gerð sátt í því máli.

3.  „... skín maísól.“

4.  Chirac.

5.  Slóvenía.

6.  Kúba.

7.  Jón Múli Árnason.

8.  Hún hét Magda Goebbels. Eig­in­maður hennar Josef svipti sig einnig lífi.

9.  Jón Leifs.

10.  Ísabella.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Svampur Sveins­son er á fyrri mynd­inni.

Á þeirri seinni er Jónas Jónsson frá Hriflu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár