1099. spurningaþraut: Grindavík og Húsavík og Siglufjörður

1099. spurningaþraut: Grindavík og Húsavík og Siglufjörður

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða flug­fé­lag með bæki­stöðvar á Akureyri hætti ferðum í byrjun apríl?

2.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir var upp­haf­lega kosin á þing fyrir ... hvaða flokk?

3.  Albert Uderzo og René Goscinny sköp­uðu frægar teikni­mynda­per­sónur. Hvað hét sú allra fræg­asta?

4.  Hvað heitir leik­stjóri Avatar-mynd­anna tveggja?

5.  Hug­myndir borg­ar­stjórnar Reykja­víkur um að leggja niður til­tekna stofnun hafa orðið afar umdeildar. Hvaða stofnun er um að ræða?

6.  Hér eru þrír þétt­býl­is­staðir á Íslandi í staf­rófs­röð: Grinda­vík, Húsavík, Siglu­fjörður. En hver er röð þess­ara staða eftir íbúa­fjölda (sá fjöl­menn­asti fyrst)? Hafa verður röð­ina hár­rétta til að fá stig.

7.  Hvaða frægi rúss­neski rit­höf­undur var greifi að tign? 

8.  Hvað fæst Camilla Läckberg við í líf­inu? Svarið þarf að vera nokkuð nákvæmt.

9.  Hvað heitir sú fyrrum söng­kona með Sextett Ólafs Gauks sem seinna sá lengi um þátt­inn Óska­stund­ina á Rás eitt? Skírn­ar­nafnið dugar.

10.  Cygnus X-1 er fyr­ir­bæri sem fannst árið 1971. Þannig stað­fest­ust trú og útreikn­ingar margra, allt frá 18. öld, um að fyr­ir­bæri af þessu tagi kynnu að vera til. Segja má að það hafi verið eðl­is­fræð­ing­ur­inn Schwarzschild sem sýndi árið 1915 fram á að fyr­ir­bæri af þessu tagi hlytu að vera til, þó til­vera þeirra sann­að­ist sem sagt ekki end­an­lega fyrr en löngu síðar. Hvað er Cygnus X-1?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan er tekin í Banda­ríkj­unum árið 1959. Hver er konan fyrir miðri mynd. — Og svo fæst lár­við­ar­stig fyrir að vita nafn kon­unnar vinstra megin á mynd­inni. Eft­ir­nafn hennar nægir en lár­við með eik­ar­laufum fáiði ef þið þekkið skírn­ar­nafn hennar líka.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Niceair.

2.  Alþýðu­flokk­inn.

3.  Asterix eða Ástríkur.

4.  Cameron.

5.  Borg­ar­skjala­safnið.

6.  Röðin er sú sama og staf­rófs­röðin: Grinda­vík, Húsavík, Siglu­fjörður.

7.  Tolstoj.

8.  Hún er glæpa­sagna­höf­undur. Rit­höf­undur eitt og sér dugar ekki.

9.  Svan­hildur.

10.  Svarthol, Black Hole.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skáldið Gerður Kristný.

Á neðri mynd­inni er Eleanor Roosevelt fyrir miðri mynd. Hin konan er Nina Kru­stjova. Þið áttuð að láta ykkur það í hug þegar þið sáuð að karl­inn var sov­éski utan­rík­is­ráð­herr­ann Gromyko. Myndin er tekin þegar Krustjov-hjónin voru ásamt fylgd­ar­liði í heim­sókn í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár