1095. spurningaþraut: Hver er Tryggur gamli?

1095. spurningaþraut: Hver er Tryggur gamli?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða þjóð reisti þau mann­virki sem sjást á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver sagði: „Afsakið, herra, mig langar í meira“?

2.  Þau Christina Hammock Koch, Reid Wiseman, Victor Glover og Jeremy Hansen voru nýlega valin til mik­il­vægs verk­efni sem þau munu leysa á næstu miss­erum. Hvaða verk­efni er það?

3.  Charles Spencer er rétt tæp­lega sex­tugur karl. Hann var prýði­lega met­inn blaða- og sjón­varps­maður í æsku og skrif­aði nokkrar bækur um sögu­leg efni og mælt­ust þær yfir­leitt vel fyrir. Ein þeirra, um orr­ust­una við Blenheim í upp­hafi 18. aldar var meira að segja met­sölu­bók. Spencer er þó — eða var — þekkt­astur fyrir allt annað. Hvað er það?

4.  Nokkrar borgir bera nafnið Alex­andría. Í hvaða landi er hin stærsta þeirra?

5.  Hvað eiga Claire Foy, Olivia Colman, Helen Mirren og Imelda Staunton sam­eig­in­legt — svo pró­fes­sjónalt séð?!

6.  Hvar er tón­leika­stað­ur­inn Græni hatt­ur­inn?

7.  Hvað heitir útvarps­þátt­ur­inn á Rás eitt þar sem KK leikur tón­list af ýmsum upp­runa?.  

8.  Hvaða fyr­ir­bæri er það sem Banda­ríkja­menn kalla Old Faithful?

9.  Hvað hét fræg­asta ridd­ara­reglan sem starf­aði í kross­ferðum krist­inna Evr­ópu­búa til Mið­aust­ur­landa?

10.  Sú regla var bæld niður af mik­illi hörku í upp­hafi 14. aldar. Hver gerði það? Hér dugar emb­ætt­is­tit­ill frekar en nafn, en þeir sem hafa nafnið hár­rétt fá kross­fara­stig að auki.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Karlinn á mynd­inni hér að neðan var fræg hetja. Og þó telja margir að sögur um hetju­skap hans hafi verið heldur ýktar og hann hafi kannski fyrst og fremst verið skemmti­kraftur. Hvað kall­aði hann sig?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Oliver Twist.

2.  Þau eru geim­farar sem eiga að fara til tungls­ins. Þau eiga ekki að LENDA á tungl­inu en nefni ein­hver það, þá fæst samt rétt stig út á tunglið.

3.  Hann er bróðir Díönu prinsessu.

4.  Egifta­landi.

5.  Þær hafa allar leikið Elísa­betu Breta­drottn­ingu.

6.  Á Akureyri.

7.  Á reki.

8.  Goshver, geysir.

9.  Must­er­is­ridd­ar­arnir, Knights Templar á ensku.

10.  Frakka­kóngur gekk milli bols og höf­uðs á ridd­urum. Hann hét Filippus og var kall­aður „fríði“ en Filippus dugar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Tikal og Majar reistu. Ekkert annað svar er rétt, aðeins Majar.

Á neðri mynd­inni má sjá Buffalo Bill.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Er það pottþétt að Musterisriddarar séu frægari en Jóhannesarriddarar?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár