1094. spurningaþraut: Hver er „Skepnan“?

1094. spurningaþraut: Hver er „Skepnan“?

Fyrri auka­spurn­ing:

Milli hvaða staða í Evrópu liggur það sjáv­ar­sund sem sjá má á skjá­skot­inu hér að ofan? Og svo er lár­við­ar­stig fyrir að muna hvað sundið heitir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét æðsti yfir­maður her­afla Banda­manna sem gerði inn­rás í Frakk­landi í júní 1944?

2.  Þegar Donald Trump var hand­tek­inn fyrir nokkrum vikum kom í ljós að mála­rekstur gegn honum sner­ist að mestu um pen­inga sem hann var sagður hafa greitt tveim konum fyrir að þegja um ein­hvers konar ást­ar­sam­band þeirra. En þriðja málið kom einnig við sögu í ákæru­skjal­inu. Trump var sak­aður um ólög­legar greiðslur til karl­manns, sem gegndi óvæntu starfi — var sem sé ekki lög­fræð­ingur. En hvaða starfi gegndi sá?

3.  Og yfir hverju átti sá karl­maður að þegja?

4.  Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er Mar-a-Lago?

5.  Tvö ríki eiga strand­lengju að flóa einum miklum sem heitir Tonkin flói. Hvaða ríki eru það?

6.  Fanney Birna Jóns­dóttir frétta­maður fékk nýlega eft­ir­sótt stjórn­un­ar­starf í menn­ing­ar­geir­anum. Hvaða starf er það?

7.  Hvað heitir tíma­ritið sem heldur úti lista yfir rík­asta fólk heims­ins?

8.  Með hvaða fót­boltaliði í Danmörku leikur hinn efni­legi piltur Hákon Arnar Har­alds­son?

9.  Hver er hæsta jafna talan sem jafn­framt er prím­tala?

10.  Nýjasta mynd Baltasars Kormáks nefn­ist Beast og var frum­sýnd í fyrra. Hvaða fyr­ir­bæri er sú skepna sem myndin er nefnd eftir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða sjón­varps­s­eríu birt­ast þessa ábúð­ar­miklu per­sónur?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eisenhower.

2.  Dyra­vörður.

3.  Um barn sem Trump var sagður hafa eign­ast utan hjóna­bands.

4. Flórída.

5.  Víetnam og Kína.

6.  Dag­skrár­stjóri Rásar eitt.

7.  Forbes.

8.  FC Köben­havn.

9.  Tveir.

10.  Ljón.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sundið er milli Korsíku og Sardiníu í Mið­jarð­ar­haf­inu. Og það heitir Bonifacio-sund.

Á neðri mynd­inni eru per­sónur úr banda­rísku ser­í­unni Succession.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Fríða Gunnarsdóttir skrifaði
    Frekar ruglingslegt að tala um ríki í spurningu 4 og í spurningu 5, þegar annarsvegar er átt við fylki/ríki í BNA og hinsvegar land/sjálfstætt ríki í heiminum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár