1093. spurningaþraut: Hvar er sportbíllinn Mada 9 framleiddur?

1093. spurningaþraut: Hvar er sportbíllinn Mada 9 framleiddur?

Fyrri auka­spurn­ing:

Á skjá­skot­inu hér að ofan má sjá leikkonu fara með hlut­verk í sjón­varps­þætti. Hvað heitir ann­að­hvort leik­konan eða per­sónan? Í til­felli per­són­unnar dugar for­nafn hennar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvernig dýr er Sonic?

2.  Hvaða kunni íslenski rit­höf­undur fædd­ist á þessum degi árið 1902?

3.  Hvað heitir prinsessan í mynd­unum um Shrek?

4.   Árið 1535 var franski land­könn­uð­ur­inn Jacques Cartier á ferð á mjög fjar­lægum slóðum. Hann hitti tvo unga menn af ættum frum­byggja og bað þá að vísa sér veg. Þeir bentu honum þá á leið­ina til [XXX] og orðið sem þeir nefndu þýddi ein­fald­lega „þorp“. Cartier og menn hans héldu hins vegar að ungu menn­irnir ættu við nafn alls lands­ins. Landið hefur síðan verið kallað þessu nafni, og heitir ... hvað?

5.   Hvar er banda­ríska her­stöðin sem fyrrum var kölluð Thule?

6.  Í hvaða landi er tísku­húsið Prada upp­runnið?

7.  Hverjir voru Ásbirn­ingar?

8.  Hversu gömul er Jörðin talin vera?  14,5 millj­arða ára? — 10,5 millj­arða ára? — 4,5 millj­arða ára? — 1,5 millj­arða ára? — 6.500 ára?

9.  Hver samdi og söng hið vin­sæla dæg­ur­lag Don't Try to Fool me?

10.  Á hvaða hljóð­færi spil­aði Bít­ill­inn George Harrison fyrst og fremst?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá Mada 9, til­rauna­ein­tak af rán­dýrum sport­bíl sem hugs­an­lega verður settur í fjölda­fram­leiðslu á næst­unni. Bíllinn er búinn jap­anskri vél en er að öðru leyti fram­leiddur í landi sem er ekki beint þekkt fyrir bíla­fram­leiðslu, og allra síst fyrir fram­leiðslu á lúx­us­sport­bílum. Þó ekki væri annað, þá er vega­kerfi þessa hrjáða lands varla sniðið fyrir lága lúx­us­bíla. Hvaða land fram­leiðir Mada 9?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Brodd­göltur.

2.  Halldór Laxness.

3.  Fíóna.

4.  Kanada.

5.  Á Græn­landi.

6.  Ítalíu.

7.  Höfð­ingja­ætt á Sturl­unga­öld. Nákvæmara þarf svarið ekki að vera.

8.  4,5 millj­arða ára.

9.  Jóhann G. Jóhanns­son.

10.  Gítar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Lisa Kudrow að leika per­són­una Phoebe í sjón­varps­þátt­unum Friends.

Sport­bíll­inn á neðri mynd­inni er fram­leiddur í Afganistan.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár