Á bilinu tveir til 166 leikskólakennarar hafa útskrifast árlega frá 2005

Braut­skrán­ingum úr leik­skóla­kenn­ara­fræði fækk­aði gríð­ar­lega eftir að námið var lengt úr þremur í fimm árið 2008. Braut­skrán­ingum fer nú aftur fjölg­andi eftir að meist­ara­nám til kennslu var inn­leitt árið 2020 auk laga­breyt­ingar sem veitir kennslu­rétt­indi óháð skóla­stigi. Því er ekki víst að allir leik­skóla­kenn­arar skili sér inn á leik­skóla­stigið.

Á bilinu tveir til 166 leikskólakennarar hafa útskrifast árlega frá 2005
Óvíst hvort leik­skóla­kenn­arar stafi á leik­skóla­stig­inu Braut­skráðum leik­skóla­kenn­urum fer fjölg­andi eftir að þeim fækk­aði mikið þegar námið var lengt úr þremur árum í fimm árið 2008. Ný lög um kenn­ara­nám tóku gildi 2020 sem veitir kenn­urum eitt leyf­is­bréf óháð skóla­stigi og því er óljóst hvort leik­skóla­kenn­arar skili sér á leik­skóla­stigið. Mynd: Heiða Helgadóttir

73 braut­skráð­ust úr leik­skóla­kenn­ara­fræði á síð­asta ári, 93 færri en árið 2006, þegar 166 luku námi og höfðu aldrei verið fleiri. Aðeins tveir braut­skráð­ust árið 2013 þegar útskrift fór fram í fyrsta sinn eftir að leik­skóla­kenn­ara­nám var lengt úr þremur árum í fimm með laga­setn­ingu árið 2008. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í svari háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, um hversu margir hafa útskrif­ast með B.Ed.-gráðu og M.Ed.-gráðu í leik­skóla­kenn­ara­fræði ár hvert á árunum 2005-2022.

Mannekla hefur ein­kennt leik­skóla borg­ar­innar svo árum skiptir en und­an­farið hefur annar vandi bæst við þar sem leik­skólum hefur verið lokað og starf­semi færð annað vegna raka- og myglu­skemmda. Biðlistar eftir leik­skóla­plássi lengj­ast og for­eldrar hafa komið saman í ráð­húsi Reykja­víkur fyrir fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dögum síð­ustu vikur og mót­mælt stöð­unni. Reykja­vík­ur­borg greindi frá því í síð­ustu viku að einn leik­skóli mun ekki taka við nýjum börnum í haust og að end­ur­bætur og fram­kvæmdir á leik­skóla­hús­næði munu hafa áhrif á inn­ritun sex ann­arra leik­skóla.   

Óvíst hvort leikskólakennarar starfi á leikskólastiginu

Eftir að námið var lengt úr þremur árum í fimm árið 2008 fækk­aði braut­skráðum leik­skóla­kenn­urum úr 47 árið 2012 í 2 árið 2013 þegar aðeins tveir braut­skráð­ust. Á árunum 2014-2020 voru braut­skrán­ingar á bil­inu 12-31. Árið 2021 fjölg­aði braut­skrán­ingum á ný eftir inn­leið­ingu svo­kall­aðs MT-náms, sem er á sama stigi og M.Ed.-nám, sem veitir kenn­ara­rétt­indi. 

Þannig voru braut­skrán­ingar 31 árið 2020 en 41 árið 2021 þegar fyrsta braut­skrán­ingin úr MT-nám­inu fór fram. Meist­ara­nám til kennslu, MT-nám, er aðgengi­legt þeim sem hafa lokið 120 ein­ingum á bakkalár­stigi í kennslu­greinum grunn­skóla. Að loknu tveggja ára námi er hægt að sækja um leyf­is­bréf sem kenn­ari óháð skóla­stigi. Í fyrra voru braut­skrán­ing­arnar 73 eins og áður segir. 

Braut­skráðum leik­skóla­kenn­urum er því farið að fjölga á ný en ljóst er að leng­ing náms­ins ann­ars vegar og laga­breyt­ing sem tók gildi í upp­hafi árs 2020 þar sem kenn­arar fá eitt leyf­is­bréf óháð skóla­stigi hafa haft áhrif á fjölda leik­skóla­kenn­ara sem starfa á leik­skóla­stigi.

Mannekla birtingarmynd á alvarlegasta vanda leikskólastigsins

Skúli Helga­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og fyrr­ver­andi for­maður skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, vakti athygli á þróun fjölda braut­skráðra úr leik­skóla­kenn­ara­fræði á fundi borg­ar­stjórnar í gær. Hann sagði mann­eklu vera birt­ing­ar­mynd á al­var­leg­asta vanda leik­skóla­stigs­ins í borg­inni und­an­far­inn ára­tug.

Skúli sagði áhrif leng­ingar náms­ins árið 2008 vega þungt, auk þess sem laga­breyt­ingin um eitt leyf­is­bréf óháð skóla­stigi sem tók gildi í upp­hafi árs 2020 hafi haft alvar­legar afleið­ingar þar sem aðsókn í námið hafi hrunið.  „Og í stað þess að við vær­um að út­skrifa í kring­um átta­tíu nýja kenn­ara inn í leik­skól­ana á hverju ári eins og var frá ár­un­um 2010-2011, þá fór fjöld­inn þegar verst lét í rúm­lega tutt­ugu á ári. Og hélst þannig í mörg ár, lung­ann af síð­asta ára­tug. Þannig að það var fall í fjölda út­skrif­aðra um 75 pró­sent,“ sagði Skúli á fundi borg­ar­stjórnar í gær þar sem til­laga borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks um bráða­að­gerðir í mál­efnum barna á leik­skóla­aldri var til umfjöll­unar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár