Jafn margir segjast ætla að kjósa Sósíalistaflokkinn og Vinstri græn

Sam­fylk­ingin mælist nú með 24,4 pró­sent fylgi, eða 4,2 pró­sentu­stigi meira en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Fylgi Vinstri grænna hefur rúm­lega helm­ing­ast og sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er komið undir 40 pró­sent.

Jafn margir segjast ætla að kjósa Sósíalistaflokkinn og Vinstri græn
Kosn­ing­arnar 2021 Margt hefur breyst síðan að lands­menn kusu síð­ast til Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin mælist með 24,4 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Maskínu. Það er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Fylgið mæld­ist 23,3 pró­sent í febr­úar og eykst því um 1,1 pró­sentu­stig milli mán­aða. Frá síð­ustu kosn­ingum, sem fóru fram haustið 2021, hefur Sam­fylk­ingin bætt við sig 14,5 pró­sentu­stigum af fylgi. 

Allir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fimm á þingi utan eins hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Píratar mæl­ast nú með 10,2 pró­sent, og dala nokkuð milli mán­aða, og Viðreisn mælist með 9,1 pró­sent, sem er 0,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í sept­em­ber 2021. Mið­flokk­ur­inn, sem fékk 5,4 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með 5,7 pró­sent. Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur tapað fylgi er Flokkur fólks­ins, sem vann ágætis kosn­inga­sigur fyrir einu og hálfu ári síðan þegar hann fékk 8,8 pró­sent atkvæða. Fylgi hans nú mælist 5,2 pros­ent sem þýðir að flokk­ur­inn er við það að detta út af þingi ef kosið yrði í dag. 

Við þetta má bæta að Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn manni á þing í síð­ustu kosn­ingum þar sem hann fékk 4,1 pró­sent atkvæða, mælist nú með sex pró­sent fylgi. 

Sam­an­lagt fylgi þeirra flokka sem mynda stjórn­ar­and­stöðu og þess flokks sem er ekki með full­trúa á þingi en mælist með nægj­an­legt fylgi til að ná slíkum inn, mælist nú 60,6 pró­sent. 

Stjórnarflokkarnir undir 40 prósentin

Það þýðir að sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er komið undir 40 pró­sent. Nánar til­tekið er það 39,4 pró­sent nú en Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur fengu 54,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum. Flokk­arnir þrír hafa því tapað 14,9 pró­sent af fylgi sínu á því eina og hálfa ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ingum. Rík­is­stjórnin væri kol­fall­inn ef kosið yrði í dag.

Mestu hafa Vinstri græn, sem héldu lands­fund um liðna helgi, tapað. Fylgi flokks­ins mælist nú sex pró­sent hjá Maskínu sem gerir það að verkum að Vinstri græn mæl­ast þriðji minnsti flokk­ur­inn á þingi. Munurinn á þeim og Mið­flokknum og Flokki fólks­ins er þó innan skekkju­marka. Auk þess segj­ast jafn margir styðja Vinstri græna og Sós­í­alista­flokk­inn, sem skil­greinir sig vinstra megin við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Alls hefur fylgi Vinstri grænna meira en helm­ing­ast frá síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 12,6 pró­sent atkvæða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað næst mestu fylgi stjórn­ar­flokk­anna á kjör­tíma­bil­inu, eða 4,2 pró­sentu­stigum. Fylgi hans nú mælist 20,2 pró­sent, sem yrði versta útkoma flokks­ins frá upp­hafi ef hún kæmi upp úr kjör­köss­unum. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 13,2 pró­sent fylgi og hress­ist aðeins milli mán­aða. Flokk­ur­inn er þó tölu­vert frá kjör­fylgi sínu, en hann vann kosn­inga­sigur haustið 2021 þegar 17,3 pró­sent lands­manna settu X við B. Því hefur Framsókn tapað 4,1 pró­sentu­stigi á kjör­tíma­bil­inu.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Ég ætla að kjósa Flokk Fávita eins og síðast. Kveðja, Siggi Þóriss.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár